16.05.1949
Efri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í B-deild Alþingistíðinda. (1114)

1. mál, togarakaup ríkisins

Páll Zóphóníasson:

Enda þótt ég sé yfirleitt á móti málinu öllu, tel ég þó þessa grein betur fara eins og hún er nú. Og þó að henni væri breytt, þá er ég ekki víss um nema það kæmi á ríkissjóð eins fyrir það að greiða þetta. Var það ekki svo í gömlu l., að þeir ættu að borga togarana, sem fengju þá? Er ekki eitthvað af þeim óborgað enn? Ég held, að það geti því farið eins nú, og segi því já, en mun greiða atkv. á móti frv. í heild.