16.05.1949
Efri deild: 111. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í B-deild Alþingistíðinda. (1120)

1. mál, togarakaup ríkisins

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Það mun hafa verið í l. um kaup á togurum þeim, sem búið er nú að kaupa, sams konar ákvæði og nú eru í 1. gr. þessara l. um greiðslu á skipunum. Nú langar mig til að spyrja hæstv. fjmrh., sem einnig er sjútvmrh., hvort þessu ákvæði hafi nokkurn tíma verið framfylgt. Mér hefur verið sagt, að enn sé eftir að greiða ríkinu sumt af andvirði nýju togaranna og ákvæði eldri l. séu því aðeins dauður bókstafur. Ef svo hefur verið, að stofnlánadeildin hafi verið tæmd og ávísanir nýbyggingarráðs reynzt falsávísanir einar, eins og ávísanirnar á jeppana, þá vildi ég spyrja hæstv. ráðh., hvernig hann héldi, að það yrði með þessa. Nú er enginn slíkur sjóður til að lána úr, svo að ekki er hægt að ávísa á hann, og hvert á þá að vísa þeim mönnum, sem þessa togara kaupa? Ég vil einnig fá um það upplýsingar, hvort gjaldeyrisástæður eru til að kaupa þessi skip. Mér er að vísu sagt, að nægur gjaldeyrir sé fyrir hendi til kaupa á því, sem á innflutningsáætlun er, en ekki eru þessi skip þar á skrá.

Ég spurði um það á sínum tíma, hvernig væri með mannskap á nýju skipin, sem keypt hafa verið, og núverandi fjmrh., sem þá var form. nýbyggingarráðs, sagði þá, að alltaf kæmu nýir menn, það væri ástæðulaust að óttast um mannleysi. Í sama streng tók þá hv. 2. þm. Reykv. En þetta reyndust allt rangir spádómar. Reynslan hefur sýnt, að bændum hefur fækkað frá því að vera 6.200 1940 í 5.586 1948. Einnig standa nú uppi 80–90 bátar, sem ekki er hægt að gera út vegna mannleysis. Mér er nú spurn: Hvar á að taka mannskap á þessi skip? Eiga þeir að koma frá landbúnaðinum, eða á aðeins að leggja skipunum?

Það er sem sagt þrennt, sem ég vil spyrja hæstv. ráðh. um.

1. Hvernig er með greiðslu á gömlu togurunum?

2. Hvar er ætlazt til, að lán sé fengið til að kaupa þessa?.

3. Hvar á að taka mannskap á skipin?

Það vantar fólk alls staðar, hvar sem litið er. Hvaðan á fólk að koma á þessi skip? Allt þetta vildi ég fá upplýsingar um, áður en ég greiði atkv., því að það gæti orðið mér leiðbeining um það, hvernig ég ætti að gera það.