29.10.1948
Neðri deild: 8. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (1186)

23. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra

Pétur Ottesen:

Ég vil taka undir með þeim, sem látið hafa í ljós ánægju sína yfir þessu frv. og þeirri viðleitni, sem í því felst til þess að ráða bót á þeim þjóðarvoða, er við horfumst í augu við vegna drykkjuskaparins í landinu. Ég býst við því, að þær ráðstafanir, er í þessu frv. felast, geti orðíð nokkur meinabót, ef vel er á þessu haldið og þeim mönnum falin framkvæmdin, er hafa skilning á því, hvernig á að búa að þeim vesalings ólánsmönnum, er drykkjuskapurinn hefur orðið að fjörtjóni. En það, sem ég er hræddur um, er, að þessar aðgerðir verði of seinvirkar. Hér á að byggja á því, að sveitar- og bæjarfélög hafi framtak um framkvæmdirnar og njóti stuðnings ríkisins. Í öðru lagi á ríkið að standa fyrir framkvæmdum. Á þess kostnað á að reisa gæzluhæli, er stjórnað skal af yfirlækninum á geðveikrahælinu Kleppi. Þetta eru þá framkvæmdaraðilarnir, er byggja skal á.

Nú er hins vegar, samkvæmt 15. gr., ekki gert ráð fyrir því, að neitt fé verði veitt til þessara framkvæmda fyrr en á árinu 1949, og máske ekki fyrr en í árslok þá. Ég vil því leyfa mér að spyrja hæstv. menntmrh., hvað hann hyggst fyrir um framkvæmdir varðandi gæzluvistarhælið, er gert er ráð fyrir í 8. gr. frv. Jafnframt vildi ég spyrja, hvort vitað sé, hvað t.d. Reykjavík hyggst fyrir um framkvæmdir í þá átt að koma upp hæli, er miðað sé við lengri dvöl fyrir þá, sem misst hafa fótfestuna vegna drykkjuskapar. Eins og nú er, er ekki til neitt hæli, sem hægt er að koma slíkum mönnum fyrir á. Einasta úrræðið er að stinga þeim inn í klefa, nokkurs konar sakamannaklefa, bæði í Reykjavík og úti um land, þar sem þeir eru til. En auk þess, sem aðstaðan að þessu leyti er óhallkvæm, er húsrýmið svo lítið, að ekki er hægt að sjá öllum þeim fyrir vistarveru, er þarf að hirða, og ekki forsvaranlegt að flytja heim til konu og barna, verður stundum að grípa til þess ráðs með hættulegum afleiðingum.

Eins og komið hefur fram í þessum umr., hefur sá vísir, sem komið var á fót í Kumbaravogi og Kaldaðarnesi, ekki orðið langlífur. Stofnanirnar hafa verið lagðar niður án þess, að ráðstafanir hafi verið gerðar til þess að koma upp hliðstæðum stofnunum. Fyrst nú er málið tekið til meðferðar og ráðstafanir ráðgerðar 1949.

Mér er sagt af mönnum, sem eru kunnugir í Reykjavík, að hér í bæ séu 100 manns, er þyrftu að komast inn á þær stofnanir, sem ráð er gert fyrir í frv., stofnanir, sem taka áfengissjúklinga í von um, að hægt sé að lækna þá. Svo eru aðrir, sem eru svo djúpt sokknir, að lítil eða engin von er til þess, að þeir geti aftur náð fótfestu í lífinu til þess að verða þar starfandi menn. Og þeir, sem segja, að nú séu í Reykjavík 100 af þessum mönnum, segja, að reynslan sýni það, að 5–10 menn bætist í þennan auðnuleysishóp á ári, menn, sem eftir fjögurra til fimm ára drykkjuskap smátt og smátt sogast í djúpið, þar til þeir hafa misst allt, sem einkennir starfandi þjóðfélagsborgara. Hér er því mikið verkefni fyrir höndum og voði á ferð, og ég vil spyrja hæstv. menntmrh., sem flytur frv. fyrir hönd ríkisstj., hvort vænta megi framkvæmda í þessum málum fyrir árslok 1949. Og máske líka, ef hæstv. ríkisstj. hefur sett sig í samband við bæjarstjórnir, þar sem slíkra aðgerða sem þessara er þörf, hvað þær muni hyggjast fyrir um framkvæmdir, því að ég lít þannig á þetta mál, að aðstoð ríkisins muni hljóta í þessum efnum að vera allt önnur og ríkari en að því er snertir það að koma upp venjulegum sjúkraskýlum eða sjúkrahúsum. Og þessi afstaða mín byggist á því, að ríkisvaldið með sínum aðgerðum sér fyrir því, með takmarkalausu vínframboði, að fýsnum þessara vesalings manna, sem drykkjuskapurinn hefur orðið að falli, sé og geti verið fullnægt, eftir því sem þessir vesalingar hafa getu til að afla sér þess fjár, sem þarf til þess að kaupa vínið fyrir. Þess vegna skilst mér, að aðstoð ríkisvaldsins sé og eigi að vera allt önnur og ríkari til þess að hamla eitthvað á móti þeim voða, sem af þessum aðgerðum ríkisvaldsins stafar og er alveg bein og hlykkjalaus afleiðing af því, hvernig ríkisvaldíð hagar áfengissölunni í landinu, því að eins og kunnugt er, þá er af hálfu ríkisvaldsins spekúlerað, eins og mögulegt er í að gera, í drykkjufýsn þjóðarinnar til þess að afla sem mestra tekna handa ríkinu. Þetta er sannleikurinn, alveg brotalaust sagður, og er ekki hægt að breiða neinn hjúp yfir það, og dettur heldur engum í hug að gera slíkt.

Ég ætla svo ekki frekar að fara út í þessa sálma. Ég býst við, að ef nokkrar verulegar aðgerðir eiga að geta orðið í þessu efni, þá sé það fé, sem ætlað er til þessara hluta samkv. 15. gr. frv., sízt of mikið, ef við eigum áfram að búa við það ástand í þessum málum, sem við höfum búið við nú um alllangt skeið. En ef þjóðin til dæmis á skömmum tíma vitkaðist svo, að gerð yrði tilraun til að koma hér vörnum við, þá mundi mjög draga úr þessari nauðsyn, sem ákvæði þessa frv. miða að að bæta úr, þó að við vitanlega yrðum samt um margra ára og jafnvel áratuga skeið að búa við afleiðingarnar af því, sem gerzt hefur að undanförnu í þessum efnum, og þá bera uppi ærinn kostnað, sem af því leiðir.

Ég vænti svo að heyra svör hæstv. ráðh., ef hann hyggst fyrir um skjótar aðgerðir í þessum efnum. Og mundi þá ekki vera ástæða til að ákveða rífari framlög í þessu skyni en í frv. er gert ráð fyrir? En ef svo er ekki, að hæstv. ráðh. hyggi á skjótar framkvæmdir, lít ég svo á, að full ástæða mundi vera til að taka til athugunar það, sem er alveg óákveðið í þessu frv., hvenær skuli hafizt handa um þá byggingu, sem hér um ræðir og ríkið á að standa straum af. Eins og nú er, er heldur ekki vitað, hvað þau bæjarfélög, sem hér er í frv. byggt á um framkvæmdir, ætlast fyrir um framkvæmdir að sínu leyti.