29.10.1948
Neðri deild: 8. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í B-deild Alþingistíðinda. (1190)
23. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra
Jón Pálmason:
Herra forseti. Þetta mál, sem hér hefur verið lagt fram, hefur nokkuð skýrzt við þær umr., sem hér hafa átt sér stað, og má vænta þess, að þegar það hefur fengið athugun í þeirri n., sem það vafalaust fer til, heilbr.og félmn., þá fáist fullar skýringar á þeim atriðum, sem ég vék til n. í minni ræðu. En þær ræður, sem hér hafa verið fluttar, sérstaklega af hálfu hæstv. ráðh., gefa mér tilefni til að bæta fáeinum orðum við það, sem ég áður sagði.
Hæstv. menntmrh. viðurkenndi það, sem ég sagði, að það þarf fleira að endurbæta í okkar heilbrigðismálum, en að sjá drykkjusjúklingum fyrir samastað. Sannleikurinn er sá, að ástandið í okkar sjúkrahúsmálum, sérstaklega víðs vegar í hinum strjálbyggðu héruðum, er óþolandi með öllu. Í sjálfu sér er furðulegt, hvernig þeim málum hefur verið tekið undanfarið á Alþingi að gera þar endurbót á. Nú skal ég ekki neita því, og um það munu allir vera sammála, að þeir menn, sem verða ofdrykkjunni að bráð, séu sjúklingar. Og þá ber sjálfsagt að fara með þá á svipaðan veg og aðra sjúklinga. Þetta mál er því í fullkomnu samhengi við sjúkrahúsmál landsins yfirleitt. Mér virðist því, að eðlileg meðferð þessa máls væri sú, að aukið yrði mjög verulega framlag ríkisins til sjúkrahúsbygginga víðs vegar um land, svo að það verði tækifæri til, eins og ég hef bent á í frv., sem ég áður hef flutt, að taka þar á móti sjúklingum, sem stendur mjög misjafnlega á um og ekki geta verið í sama húsnæði eða í sömu deild. Þetta mál er þess vegna þannig vaxið, að ég tel, að það eigi að leysa það í sambandi við önnur sjúkrahúsmál í landinu, og að því er snertir Reykjavíkurbæ, sem hér á aðallega hlut að máli varðandi drykkjusjúklinga, þá hlýtur að hvíla sú skylda á bæjaryfirvöldunum að hafa þar forgöngu um byggingu sjúkrahúss með aðstoð ríkisins, en það, að það hefur ekki gengið betur en raun ber vitni, stafar af því, að aðstoð ríkisins hefur verið alveg ófullnægjandi og hve fjárhagur héraðanna hefur verið lélegur. Þess vegna er það að mínu áliti ekki hægt að taka drykkjusjúklinga út úr og bera þá fyrir brjósti fram yfir aðra sjúklinga, sem mjög skortir á um, að hægt sé að sjá fyrir.
Þá er það þetta fyrrverandi drykkjumannahæli, sem að eðlilegum hætti hefur vafizt inn í þessar umr., því að það er eitt undarlegasta fyrirbrigðið, sem komið hefur fyrir í meðferð opinberra mála, síðan ég hef komið hér á þing, að það skuli eiga sér stað, að ein ríkisstj. tekur sig til og leggur niður stofnun, sem búið er að byggja, lætur hana af hendi og kemur síðan og biður um að byggja sams konar stofnun og þá, sem hún lagði niður. Þetta er aðferð, sem mér þykir furðulegri en flest annað, sem hér hefur verið gert, og er þó margt þannig, að það getur vakið undrun manns. Nú hefur verið upplýst af hálfu hv. 6. þm. Reykv., sem stendur framarlega í þessum málum, að þetta fyrrverandi drykkjumannahæli hafi rúmað 17 menn. Mér hefur verið sagt af byggingameistaranum, sem með það hafði að gera, að þar hafi verið rúm fyrir 20 menn. Nú hefur þetta hæli verið lagt niður og látið af hendi, og svo er ráðgert að byggja annað. Hæstv. menntmrh. hefur lýst yfir, að sá undirbúningur sé byrjaður á Úlfarsá í Mosfellssveit. Mér þætti ekki undarlegt eftir öðru, sem gerzt hefur á ýmsum sviðum opinbers reksturs, að það fari á svipaðan veg með það fyrirhugaða drykkjumannahæli eins og Kaldaðarnes, því að þar var ekki hægt að hafa nema einn mann á 20 manna hæli, og þá sýnist mér ekki mikil vissa fyrir undir svipaðri stjórn, að mjög margir fáist til að sækja fyrirhugað drykkjumannahæli á Úlfarsá. Að vísu er ráð fyrir gert, að breytt verði um stjórn í þessu efni, en þó á hælið að vera í sambandi við geðveikrahælið á Kleppi, sem í sjálfu sér er ekki óeðlilegt, og verður því yfirstjórnin sú sama að því leyti.
Það er komið í ljós með drykkjumannahæli, sem ríkið áður rak, að búið er að verja í þá byggingu 3/4 millj. kr., og þegar þar gátu ekki verið fleiri menn en 1–3, þá gæti farið á svipaðan veg, ef farið væri að byggja annað hæli, þó að það væri nokkrum km. nær Reykjavík en það fyrra, því að það munar ekki svo miklu, að það hefði átt að valda neinum vandræðum að flytja sjúklinga að og frá Kaldaðarnesi, það er ekki svo löng leið.
Varðandi fyrirkomulag á sölu Kaldaðarness þá skal ég ekki fara langt út í það mál að þessu sinni. Hæstv. atvmrh. lýsti yfir í ræðu sinni, að þegar hann kom þar, þá hefði sér litizt þannig á þá jörð og það, sem þar var, að hann hefði ekki viljað eiga það, þó að honum hefði verið gefið það. Mér virðist meðferð hæstv. ráðh. á þessari jörð og þeim mannvirkjum, sem þar eru, hafa verið í samræmi við þessa hugsun. Hæstv. ráðh. gat þess, að þetta hefði verið samþ. af hreppsn. og enn fremur af sýslunefnd Árnessýslu og meiri hl. landbn. beggja deilda Alþingis. Ég vil segja það, að heimildin til að selja þessa fasteign ríkisins eykst ekkert við það, þó að einhver hreppsnefnd samþ. það, og ekki heldur, þó að sýslun. sé því samþ. Þar að auki er meðferð þessa máls í landbn. þannig, að heimildin hefur ekki vaxið fyrir hæstv. ráðh. til sölunnar við það. Það var borið upp í fyrra á sameiginlegum fundi beggja landbn. og fékkst ekki samþ. Þá var ákveðið af form. að fresta fundi, en framhaldsfundur var aldrei boðaður, en mér er sagt, að 6 menn af 10 hafi samþ. yfirlýsingu, sem að mínu áliti hefur ekki minnsta gildi, jafnvel þó að allir nm. hefðu skrifað þar undir, því að landbn. hafa enga heimild til að breyta l. varðandi heimild fyrir sölu á fasteignum, og ég fullyrði, að hæstv. ráðh. hefur selt þessa jörð án þess að hafa fylgt þeim fyrirmælum, sem um það eru í viðkomandi l.