26.11.1948
Neðri deild: 23. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (1196)
23. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra
Frsm. (Sigurður E. Hlíðar):
Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur athugað mál þetta á þrem fundum og athugað það eftir þeim gögnum, sem hún hefur fengið, og boðað á fundina menn þá, er að samningu frv. stóðu. Á tveim fundunum mættu þeir landlæknir og dr. Helgi Tómasson yfirlæknir. Að fengnum upplýsingum þeim og gögnum, sem þeir töldu liggja til grundvallar fyrir frv., var nefndin sammála um, að hér væri stefnt í rétta átt og mikilvæg atriði, er mæltu með frv. Hins vegar voru ekki allir á sama máli um staðsetninguna, t.d. hvort binda ætti stofnunina við Kleppsspítalann, og gæti ef til vill verið heppilegra að binda hana við annað sjúkrahús. Í öðru lagi er kostnaðarhliðin dálítið ótrygg, og hefur verið látið í veðri vaka, að Reykjavíkurbær mundi taka drjúgan þátt í kostnaðinum, og í 6. gr. er talað um almennan rekstrarkostnað. Slíkur kostnaður verður allmikill, þar sem gert er ráð fyrir 40 rúmum, en hvort það verður á Kleppi eða annars staðar, skiptir minna máli.
Nefndarmenn áskilja sér rétt til að fylgja eða flytja brtt., en eru að öðru leyti með framgangi þessa frv.