13.05.1949
Efri deild: 106. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (1222)
23. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Hv. þm. Barð. tekur það talsvert að ófyrirsynju, að ég skyldi hafa staðið hér upp og varið dr. Helga Tómasson fyrir ásökunum hans og illmælgi. Hv. þm. verður að skilja það, að á því er reginmunur og þó að köpuryrði fari á milli deildarmanna, jafnvel þó að við tökum oft sterkar til orða og segjum um hvern annan meira en ætlunin er og látum teygja okkur til þess að kveða sterkar að orði og lengja orðræður frekar, en hugur stendur til. Með þessu er ég síður en svo að taka mig undan þessu, því að ég játa, að ég hef svarað fullum hálsi og reynt að láta ekki mitt eftir liggja, þegar því hefur verið að skipta: En þetta horfir dálítið öðruvísi við, þegar um utanþingsmenn er að ræða, sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér, en fá þetta aðeins flutt í þingtíðindum og fréttum, en eru annars ókunnir andanum hér eða orðblæ hv. þm. Þess vegna verða þingmenn að gæta betur tungu sinnar gagnvart þeim mönnum en þeim, sem eiga þess kost að svara hér aftur í sömu mynt. Ég þori því að fullyrða, að hv. þm. Barð. hefur hér notað sterkari orð heldur en hann í raun og veru ætlaði sér eða meinti, enda hefur nú játning á þessu komið fram, þegar hann sagði, að þetta hefði ekki verið sagt, eða ef ég hafi skilið það svo, þá hafi það verið ranglega heyrt. Ég verð því að segja, að það er með allundarlegum hætti, sem hljóðið berst hérna á milli okkar, ekki lengri leið, en það er nú, því að ég hygg nú, að hv. þm. hafi sagt þetta, þó að hann kannist nú ekki við það, alveg eins og ég kannast ekki við það, sem hv. þm. heldur fram, að ég hafi sagt. Hljóðið hlýtur því að hafa breytzt hérna á leiðinni yfir salinn, því að hv. þm. hefur heyrt önnur orð, en meiningin var.
Hv. þm. spyr, hvers vegna ég hafi ekki varið landlækni á sama hátt og ég varði dr. Helga? Bæði er þar nú nokkur manna munur, og í öðru lagi er ég honum það kunnugur, að ég hefði talið mig vera stórum ámælisverðan, ef ég hefði ekki gert það, en því er ekki þannig varið með hinn. Þeir, sem þekkja hann, geta tekið það að sér að mæla honum bót, ég tel ekki, að mér beri að gera það. Þar að auki er það líka mjög einkennilegt, að hv. þm., sem vill svipta dr. Helga Tómasson áhrifum á þessi mál og flytur um það till., skuli ekki einnig flytja till. um að svipta landlækni þeim. Mér finnst, að nákvæmlega eins eftir sem áður verði landlæknir aðalráðamaður um þessi mál, ekki síður eftir till. þm. Barð. en till. meiri hl. n., svo að með þessari till. sinni hefur hann dregið nokkuð úr því, sem hann hefur sagt. Hvaða ástæða var þá fyrir mann eins og mig, sem ekki hef meiri trú á honum en ég hef, að fara að standa upp og verja hann, þegar hv. þm. hefur sjálfur afturkallað það, sem hann hefur sagt.
Hv. þm. sagði, að ég hefði sagt, að það væri ekki nema rétt að setja þessa menn í kjallarann og væri ekki nema eðlilegt, að lögreglan færi harkalega með þá. Ekkert af þessu sagði ég. Ég tók það skýlaust fram, að núverandi ástand væri slæmt og þyrfti raunhæfra umbóta við, og þó að umbæturnar væru ekki til stórra bóta, þá vildi ég samt styðja þær, af því að núverandi ástand væri óviðunandi, Þetta er það, sem ég sagði. Og ég get ekki skilið, hvernig hægt er að sýna meiri óánægju með núverandi ástand — og kjallarann líka — en að fallast á þær till., sem maður er ekki alveg öruggur um, að muni leysa úr þessu vandamáli. Hitt er annað mál, að kjallarinn sem vistarvera er ekki ósvipaður öðrum fangelsum eða vistarverum fyrir óða menn. Og ég á nú eftir að sjá, að þær vistarverur, sem settar kunna að verða upp á spítölum fyrir þessa menn, verði alltaf vistlegar, því að það er ekki hægt að búast við því, að sá staður verði vistlegur, sem þeir eru settir inn í á meðan þeir eru algerlega ósjálfbjarga, svo að það vellur úr þeim að ofan og neðan, og brjóta svo allt og bramla, sem þeir koma nærri. Það má ekki búast við því, að það verði fagurt um að litast. Hv. þm. býsnast yfir því, að ég skuli hafa sagt, að ég ætti eftir að sjá, hvort þessar vistarverur spítalanna verði minna fráhrindandi, en kjallarinn. Ég verð nú að segja eins og er, ef heilbrigður unglingur með mannlega hugsun á hlut að máli, þá hefur hann ekki síður ama af því að vera settur í stofnun sem kjallarann heldur en að vera settur inn á spítala. Ég játa, að sem ungur maður hefði ég talið það allömurlegra og meiri vanvirðu að lenda í þessum kjallara, sem kallaður er, heldur en að vera meðhöndlaður sem sjúkur maður á spítala. Þó að það sé tæknilega rétt að telja þann mann sjúkan, sem er ölvaður, þá er hann þó ekki sjúklingur í venjulegri merkingu þess orðs. Og maður, sem drekkur frá sér vitið um stund, hann þarf ekki endilega að vera sjúklingur, og þess vegna er ekki ástæða til þess að líta hann frá því sjónarmiði, því að það er ekki sjúkleiki nema hjá fáum. Engu að síður finnst mér það rétt að gera þessa tilraun, til þess að hægt sé að sjá, hvort þessi breyting mundi verða til bóta, því að ástandið er svo slæmt, að taka verður hverju tækifæri til þess að gera tilraun til að bæta úr því. Þetta er mín afstaða til málsins.
Hv. þm. segir, að það sé til þess ætlazt af öllum nema sér, að lögreglan ætti að hafa afskipti af þessum mönnum, hann ætlast til, að lögreglan hætti afskiptum sínum af þeim. Þetta ætlaðist hann til, þar til ég benti honum á, að í frv. sé það tekið fram, að hér sé um refsivert athæfi að ræða, og þar með, að hann ætlast til, að refsivert athæfi sæti ekki afskiptum lögreglunnar. Ef hv. þm. væri nú samkvæmur sjálfum sér, þá ætti hann að flytja till. um það, að ölvunarbrot sé ekki refsivert og falli úr refsilöggjöfinni. Ef hann nú meinar þetta, þá er engin afsökun að bera það þá ekki fram í þessu frv. Ég teldi það rangt að breyta þessu, en fyrir þann, sem hefur eins eindregna skoðun í gagnstæða átt og hv. þm. Barð., er ekki nema eðlilegt að flytja till. til breyt. Það verður hvort sem er farið með þessa menn eins og brotamenn, bæði eftir till. hv. þm Barð. og annarra, og jafnvel þó að þetta ákvæði verði fellt niður, því að það er óumflýjanlegt, að það lendi á lögreglunni að taka við þessum mönnum. Þetta hefur hv. þm. viljað telja til mannvonsku hjá mér. En hverjir haldið þið, að muni fást til þess að taka þetta að sér nema lögreglan? Ég hefði gaman að sjá, hvort hann mundi vilja taka þessa menn að sér og aka þeim í bifreið sinni á sjúkrahúsið. Hv. þm. svarar með gífuryrðum, en það staðfestir bara hugboð mitt um, að hann vildi ekki gera það. Nei, lögreglan mundi gera þetta eftir sem áður, en það mundi aðeins verða sú breyting á, að farið yrði með mennina í sjúkrahús í stað kjallarans. Það er hægara að tala um þetta, en að koma í framkvæmd. Það þarf ekki að vera að frýja mér hugar með því, að afstaða mín byggist á því, að þetta komi ekki til um mín börn. Það er rétt, að það kemur ekki til með mín börn, þó að ekki væri nema fyrir það eitt, að þau hafa ekki aldur til þess. En ég hef samúð með þessum mönnum og unglingum, sem og foreldrum þeirra og aðstandendum, og þurfum við því ekki að tala um manngæzku. En hér er um að ræða þjóðfélagslegt böl, sem bæta þarf, og það verður ekki bætt með gífuryrðum. En það yrði enginn fegnari en ég, ef þessi tilraun heppnaðist. En ég sé ekkert ljótt við það, þó að ég segi eins og er, að ég hafi ekki eins mikla trú á, að tilraunin geri svo mikið gagn, og hinir bjartsýnustu menn vona. En ég tel rétt að gera þessa tilraun og sé ekkert eftir því fjármagni, sem hún kemur til með að kosta. — Að öðru leyti borgar sig ekki að lengja umr. frekar, en orðið er. Ef það væri til einhver allsherjarlækning til þess að lækna drykkjusjúklinga, þá væri löngu búið að finna hana upp. Það er alveg rétt, að trúin á lækningu geti að vissu marki verið til góðs. Í þessu máli verðum við annars að þreifa okkur áfram í von um betri niðurstöðu, en hingað til hefur verið, og þess vegna er rétt að gera þessa tilraun.