14.05.1949
Efri deild: 109. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í B-deild Alþingistíðinda. (1226)

23. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra

Hannibal Valdimarsson:

Ég hef tekið það fram í umr. um málið, að þó að brtt. meiri hl. n. væru felldar, þætti mér veigur í frv. og mundi heldur fylgja því, og segi ég því já.