16.05.1949
Efri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (1229)
23. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra
Björn Kristjánsson:
Herra forseti. Ég hef ásamt tveimur hv. þm., þeim hv. 1. og 7. landsk., leyft mér að bera fram brtt. við þetta frv. Því miður hef ég ekki þskj. hér hjá mér, og hefur það einhvern veginn orðið eftir, þegar þskj. var útbýtt. En efnislega er brtt. eingöngu í því fólgin, að lagt er til, að hið árlega framlag, sem gert er ráð fyrir í 15. gr., sé lækkað, þannig að í stað orðanna „á árunum 1949–1955 verja hálfri annarri milljón á hverju ári“ komi: á árunum 1950–1956 750 þús. kr. á hverju ári. — Er því einnig lagt til, að þetta framlag frá áfengisverzluninni komi ekki til framkvæmda fyrr en 1950, en ekki 1949, eins og er í frv. — Ég hygg, að um þessa breyt. hafi orðið samkomulag innan ríkisstj., og er þetta eingöngu borið fram til þess að gera það aðgengilegra fyrir þm. að greiða frv. atkvæði, en ekki vegna þess, að ekki sé talin fullkomin þörf fyrir þetta framlag eins og það er nú í greininni.
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þessa brtt. Ég veit, að þm. átta sig alveg á því, hvað hún hefur inni að halda, og verða þeir að gera sér grein fyrir því, hvort þeir vilja gera þetta til samkomulags, til þess að frv. nái fremur samþykki. — Sé ég svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum.