16.05.1949
Efri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í B-deild Alþingistíðinda. (1231)

23. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þessi till. sem fram er komin á þskj. 752 og leggur til, að framlagið verði lækkað um helming og komi ári seinna til framkvæmda, en gert er ráð fyrir í frv., er gerð í samráði við ríkisstj. og þannig til komin, að þeim, sem hafa fjármálin með höndum, finnst ekki fært að mæla með því að samþ. að svo stöddu svo háa fjárveitingu til þessa máls eins og frv. gerir ráð fyrir. Enn fremur hefur verið bent á það, að ef framlagið eigi að gilda fyrir 1949, komi það þvert ofan í það,. sem búið er að gera í afgreiðslu fjárl. Ég hef þess vegna, til þess að auka líkurnar fyrir því, að þetta mál nái fram að ganga, fallizt á að mæla með þessari brtt. Ég get vel skilið það sjónarmið, sem kom fram hjá hv. þm. Seyðf., sem finnst rangt að draga úr því framlagi, sem frv. gerir ráð fyrir. En ég vil samt fara fram á það við þá, sem vilja málinu vel, að þessi brtt. verði samþ., því að eftir því sem ég hef athugað um framgang málsins, sýnist mér samþykkt hennar nauðsynleg til þess, að málið nái fram að ganga. En ég vil benda á, að ef frv. nær núna fram að ganga með þessari fjárveitingu, sem er stórt spor í áttina, er hægara að taka upp baráttu fyrir viðbótarframlagi, en ef svo færi, að málið næði ekki fram að ganga. Vil ég þess vegna skora á velunnara málsins að leggja. ekki stein í götu þessa frv. með því að fella þessa brtt.