16.05.1949
Neðri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 816 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)

180. mál, fiskiðjuver í Reykjavík

Frsm. (Pétur Ottesen):

Eins og grg. ber með sér, réðst fiskimálanefnd í það 1945 að reisa fiskvinnslustöð hér í Rvík, sem hlotið hefur nafnið Fiskiðjuver ríkisins. Kostnaðurinn við að reisa þetta er orðinn nálega 7 millj. kr. eða 6 millj. 850 þús., og á þessu fyrirtæki hvíla stofnlán, sem nema ofurlítið hærri upphæð, eða 7.153 þús. króna, og er þó ekki búið að ganga frá þessu fyrirtæki eins og fyrirhugað er, og er í þessu frv. veitt heimild til þess að taka lán með ábyrgð ríkisstj., allt að 1.200.000 kr., til þess að fullgera fiskiðjuverið og auk þess að ábyrgjast sem rekstrarlán allt að milljón króna.

Þetta fyrirtæki var fyrst rekið á vegum fiskimálanefndar í 2 ár, og liggja fyrir hér í grg. niðurstöðutölur um rekstur þess fyrir árið 1947 svo og 1948, og hefur halli orðið á rekstrinum bæði árin: 1947 var hann 289 þús., en árið 1948 var hann nokkru minni, eða 106 þús. kr., og er gerð grein fyrir þessu í grg. frv. Það er að því vikið, að þetta eigi rót sína að rekja til þess fyrst, að fyrirtækið hafi ekki verið fullbúið og ein eða fleiri starfsgreinar því orðið að liggja niðri. En eins og yfirlitið ber með sér, hefur útkoman orðið allóhagstæð. Þegar fiskimálanefnd réðst í þessar framkvæmdir, var það ekki gert með samþykki Alþ., heldur var það gert með almennri heimild í lögum, og hefur þáv. ráðh., sem fór með þessi mál 1945, gefið samþykki sitt til þess. Ég skal ekki fara að deila um það hér, hvort sú heimild hefur verið hyggileg, enda er það þýðingarlaust úr því sem komið er. En aðalviðfangsefnið var ekki að stofna þetta fyrirtæki, heldur var það að veita stuðning þessum málum. Það var aðaltilgangur löggjafarinnar. En þar sem ekki hafa verið sett nein lög um þetta fyrirtæki, heldur má segja, að rekstur þess hafi verið utan við lög og rétt, þá þykir sjútvn. nauðsynlegt, að slík lög séu sett, auk þess sem þar er tekin upp heimild til þess að selja þetta fyrirtæki, ef það þykir hagkvæmara fyrir ríkið.

Ég get lýst því yfir fyrir hönd okkar þriggja nm., hv. 2. þm. N–M. (HÁ) og hv. 5. þm. Reykv. (SK), að við fyrir okkar leyti erum því samþykkir, að þetta fyrirtæki verði selt; og leggjum áherzlu á þetta ákvæði frv. En okkur finnst vera skorinn of þröngur stakkur í 10. gr. og þar vera of einskorðað, hverjum fyrirtækið sé selt, og þess vegna viljum við rýmka þessa heimild og flytjum um það brtt. á þskj. 717. Ég vil taka það fram, að þó að hv. þm. Ísaf.

(FJ) og hv. þm. Siglf. hafi skrifað undir þetta með fyrirvara, þá er ekki ágreiningur um þessa brtt. út af fyrir sig, ef ákvæðið verður látið standa.

Mér þykir ekki ástæða til þess að fara um þetta fleiri orðum. Það er eðlilegt, að sett verði lög um þetta, en ég vil aðeins endurtaka það um afstöðu okkar þriggja nm., að við erum því samþykkir að fyrirtækið sé selt og ríkisstj. noti sér heimild til þess, ef viðunandi verð fæst.