16.05.1949
Neðri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 823 í B-deild Alþingistíðinda. (1267)

180. mál, fiskiðjuver í Reykjavík

Sigfús Sigurhjartarson:

Ég vildi biðja hæstv. forseta um að bera nú 10. gr. sérstaklega undir atkv. Ég vil benda á, að það er svo ástatt fyrir mér og fleiri hv. þm., að ef 10. gr. á að standa í frv., þá kýs ég heldur það orðalag, sem er í brtt. á þskj. 717, en vildi þó helzt, að gr. væri ekki í frv. Þess vegna vil ég geta greitt atkv. með brtt., en gegn 10. gr. svo breyttri.