16.05.1949
Efri deild: 111. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (1280)

180. mál, fiskiðjuver í Reykjavík

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Það er satt, að málið kemur seint hingað í þessa hv. d., en það er ekki sök sjútvmrh. eða sjútvmrn. Málið hefur tafizt ótilhlýðilega á hv. sjútvn. Nd., og var það ekki vegna þess, að n. sem slík skildi ekki, að það þurfti að setja löggjöf um málið. Brtt. hennar benda ekki til þess, að hún hafi haft mikið við það að athuga, eins og það kom frá stj. Það er satt, að þetta er milljónamál, en mest af því eru millj., sem þegar er búið að eyða. Fiskiðjuverið hefur kostað yfir 7 millj. kr., eins og getið er um í grg. Ég skal ekki halda því fast fram, að málið fari til n. og bið þá um það, að það megi ganga til 2. umr. án n., ef það er vilji hv. form. sjútvn.