16.05.1949
Efri deild: 111. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (1282)

180. mál, fiskiðjuver í Reykjavík

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Mér skilst, að þetta mál sé það stórt, að það sé alveg ótilhlýðilegt að vísa því til 2. umr. án þess að það fari fyrst í n. Ég skil ekki í því, að hv. form. sjútvn. þurfi að fara að rannsaka það nú í sambandi við afgreiðslu þessa frv., hvort fiskiðjuverið hefur verið stofnað löglega eða ekki. Það er allt búið að vera. Hann getur vítt það í þáltill. í Sþ., en það er þessu frv. alveg óviðkomandi. En ég get ekki samþ. það að láta svona fjárhagslega stórt frv. fara í gegnum þingið án n. og legg því til, að því verði vísað til n.