17.05.1949
Efri deild: 112. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 826 í B-deild Alþingistíðinda. (1288)

180. mál, fiskiðjuver í Reykjavík

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Það eru engin undur, þótt hv. form. sjútvn. bæðist undan að taka þetta mál þangað á síðustu stundu, því að ef það hefði farið til n., hefði það þurft mikillar athugunar við, en n. hafði ekki tóm til þess, þar sem slíta á þingi á morgun. Hins vegar er það enn augljósara, að d. getur enn síður afgr. málið athugunarlaust, og er furðulegt, að málið skyldi ekki koma fyrr frá hæstv. ríkisstj., þar sem hæstv. fjmrh. hefur verið það ljóst fyrir löngu, að ekki væri forsvaranlegt að reka fyrirtækið án lagaheimildar. En vegna þess að d. hefur enga möguleika til að afgr. frv. á viðunandi hátt, þá vildi ég vísa því frá með rökst. dagskrá. En þar sem hægt hefur verið að reka fyrirtækið svo lengi án lagaheimildar, ætti það eins að vera hægt til næsta þings, en það er þungt á metunum, sem hæstv. fjmrh. sagði, að ekki sé viðkunnanlegt að stjórna milljónafyrirtæki á þann hátt, og þar sem ég tel bót að þessu frv., mun ég ekki bera fram rökst. dagskrá til að vísa því frá. En ég felli mig ekki við, að í lögum um rekstur fyrirtækisins skuli vera heimilað að selja það. Það hefði verið viðkunnanlegra, að einstakir þm. hefðu komið fram síðan með till. um slíka heimild, en hún ekki verið sett í sjálft frv. Ég vil því leggja fram till. um, að 10. gr. falli niður, og er ég þar alveg öndverður við hv. 1. þm. Reykv., sem vildi fella frv., en láta 10. gr. standa. Ég vil því, að 10. gr. falli niður, því að ég hef þá trú, að fyrirtækið geti borið sig, ef því verður fulllokið og gefnir möguleikar til að starfa með því að láta það hafa nægilegt hráefni og efni í niðursuðudósir, en skortur á þessu hefur hamlað starfseminni. Það má vera, að staðsetning þess hér sé ekki góð og betra hefði verið að hafa það þar, sem nóg hráefni er, en því verður ekki þokað héðan af, hvort sem ríkið eða einstaklingar eiga það. Hér er það, og hér verður það að vera. En þetta fyrirtæki hefur verið reist, og ríkið á það og verður að búa svo að því, að það geti starfað.

Ég vil svo leyfa mér að leggja fram brtt., sem ég boðaði.