17.05.1949
Efri deild: 112. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 832 í B-deild Alþingistíðinda. (1296)
180. mál, fiskiðjuver í Reykjavík
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Mér virðast allmótstríðandi skoðanir um þetta mál, og vildi ég sérstaklega gera aths. við það, sem hv. 3. landsk. (HV) sagði, er hann vildi því um kenna, að frv. væri svo seint fram komið, að ekki hefði gefizt neinn tími til athugunar. Ég vil taka það fram, að frv. var útbýtt hinn 4. dag aprílmánaðar, og það er ekki mér að kenna, þó að sjútvn. Nd. hafi haldið því svo lengi sem raun ber vitni um. Ég flutti þetta mál eftir beiðni fiskimálasjóðs, en skrifstofustjóri rn. fór í gegnum það, og ég geri ráð fyrir, að það sé svipað löggjöf af svipaðri tegund, t.d. um síldarverksmiðjurnar.
Ég get fullvissað hv. 6. landsk. um það, að fiskur liggur ekki undir steini, þar sem 10. gr. er, hann þarf ekkert að óttast það. Það bága er til að byrja með, að það liggur ekki fiskur undir steini og hefur ekki legið fyrir þetta fyrirtæki, sem flokksbróðir hans hefur hrúgað upp. Það vantar sem sé hráefni fyrir það fyrsta. Í öðru lagi eru markaðir ekki fyrir hendi. Markaðirnir hafa brugðizt. Ég skýrði frá því í Nd., að frá Ameríku væri komin fram krafa um endurgreiðslu fyrir vörur, sem keyptar hefðu verið af fyrirtækinu. Varan seldist ekki, þegar hún var komin vestur, en firmað heimtar dollara sína til baka. Það eru sem sagt hvorki fiskur eða peningar, sem liggja undir steini. En hitt skal ég játa, að ef framleiðslukostnaðurinn yrði ódýrari en hann er nú, þá gæti þetta breytzt, því að það er ekki kunnáttu þeirra manna, sem þarna stjórna og vinna, sem um er að kenna, heldur eru framleiðslustörfin svo dýr, en ég veit ekki um ástæðuna fyrir því.
Hv. þm. Str. er að tala um, að ríkisstj. eigi að fullgera eða að minnsta kosti að pússa húsið, áður en hún sé farin að hugsa um að selja það. En ríkisstj. hefur ekki nein úrræði, hvorki fé né lán, til þess að fullgera það né heldur heimild til þess. En hér er um að ræða heimild, sem mögulegt er að nota.
Varðandi 10. gr. vil ég með ánægju verða við þeim tilmælum um að svara fyrirspurn um það, hvort nokkuð kauptilboð hefði borizt í fyrirtækið. Ég skal svara því til, að atvmrn. hefur fengið eina einustu fyrirspurn um það, hvort það væri hugsanlegt, að hægt væri að kaupa þetta fyrirtæki, án þess þó að um nokkurt ákveðið tilboð hafi verið að ræða. Þessi fyrirspurn var frá samtökum samvinnufélaganna, en í gr. er nú gert ráð fyrir því, að heimildin gildi einnig varðandi þau. Ég sé annars ekki, að það sé neinn skaði skeður, þó að fyrirtækið væri selt einstaklingum eða fyrirtækjum, ef það stæði við hentari stað, en það er bara að bera í bakkafullan lækinn að staðsetja það hér á þessum stað, þetta hraðfrystihús, þar sem nóg eru fyrir, og láta það svo eiga í harðri baráttu við fyrirtæki, sem þó hafa ekki skattfrelsi eins og þetta.
Ég vil svo endurtaka, sem ég hef áður sagt, að ég er ekki að leggja neitt kapp á það, að Alþ. geri þessar ráðstafanir og veiti þessa heimild. Þetta fyrirtæki er ekki byggt í minni stjórnartíð. En ég hef þó gert heiðarlega tilraun til þess að tryggja betur reksturinn í framtíðinni á þessu fyrirtæki, en þegar því er svo þannig tekið, að sjútvn. neitar að afgr. málið, verð ég að biðja hæstv. forseta um að fresta málinu um stund, svo að ég geti fengið að vita hjá hv. þdm., hvern hug þeir bera til málsins eða hvort meiningin sé að stöðva það. Það er stjórn fiskimálasjóðs, sem hefur borið fram ósk um þetta mál, og fyrir því er það borið hér fram. En eins og hv. 1. þm. Reykv. (BÓ) sagði réttilega, þá er ekki síður hagur að því fyrir ríkið, að fyrirtækið sé rekið undir stjórn og á ábyrgð dugandi einstaklinga eða félagssamtaka en þó að það reki það sjálft.
En sem sagt, ég ætla að biðja hæstv. forseta að fresta umr. um málið nú um stund.