17.05.1949
Efri deild: 113. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (1302)

180. mál, fiskiðjuver í Reykjavík

Gísli Jónsson:

Út af því, sem hæstv. ráðh. upplýsti áðan, að sjóðurinn mundi ekki geta staðið undir þeim verkefnum að lána til frystihúsa, ef þetta frv. væri fellt, þá vil ég benda hæstv. ráðh. á það, að sjóðstjórnin sjálf, sem hefur valið þessa leið, tekur stórkostlegt fé frá þessari starfrækslu til þess að binda í svona fyrirtæki. Skil ég ekki þá stefnu, sem hér er verið að marka, að taka fyrst stórkostlegar fjárfúlgur til þess að ráðast í svona fyrirtæki og svo, þegar allt er komið í hundana, þá skuli hæstv. fjmrh. hlaupa til þess að taka alla ábyrgð frá þessum mönnum. Mér er ómögulegt að skilja svona ráðstafanir, og þetta er sá sami hæstv. ráðh. sem hefur hvað eftir annað lýst yfir, að ríkissjóður gæti ekki sinnt ýmsum öðrum verkefnum, sem eru meira aðkallandi en þetta. Það hefur verið neitað framlögum til sjúkrahúsa og skorið niður til fávitahæla o.fl., sem nauðsynlegt er, meðan settar eru milljónir í fyrirtæki, sem undir öllum kringumstæðum eru byggð og geta gengið með sérstökum tekjustofnum samkv. öðrum l. Ég hefði getað tafið málið í sjútvn., en taldi það ekki rétt, en mig undrar, að hæstv. fjmrh. skuli setja l. um milljóna útgjöld í gegnum þingið, og ég vil lýsa vantrausti á slíkri meðferð mála.