03.05.1949
Neðri deild: 97. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (1306)

203. mál, skemmtanaskattur og Þjóðleikhús

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Þegar nýju ákvæðin voru sett í l. um nýja skiptingu á skemmtanaskattinum, var ráðgert, að árið 1947 yrði búið að safna nógu í þjóðleikhúsbygginguna, en komið hefur í ljós, að talsvert vantar á, að svo sé. Hins vegar á þjóðleikhúsbyggingin fyrsta rétt í skattinum, og við það að athuga allar ástæður hefur rn. komizt að þeirri niðurstöðu að leggja til við hæstv. Alþ., að til bráðabirgða verði gerð breyt. á þeirri skiptingu, sem ákveðin var með nýju löggjöfinni um skiptingu þessa skatts, og teljum við, að með þessari skiptingu, sem hér er gert ráð fyrir til bráðabirgða, mundi verða hægt að koma þessari húsbyggingu í höfn. En þegar það væri búið, gengju í gildi af sjálfu sér þau ákvæði, sem sett voru í nýju löggjöfinni um skiptingu skemmtanaskattsins.

Ég vil óska þess, að þessu máli verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.