03.05.1949
Neðri deild: 97. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 836 í B-deild Alþingistíðinda. (1307)

203. mál, skemmtanaskattur og Þjóðleikhús

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Ég býst við, að fleirum hv. þdm. en mér muni hafa hnykkt allmikið við þær upplýsingar, sem í þessu frv. felast, nefnilega þær, að því fari allfjarri, að það fé, sem í árslok 1947 var áætlað, að mundi nægja til þess að fullgera þjóðleikhúsið, skuli nú engan veginn hrökkva til þess. Það liggja að vísu ekki fyrir upplýsingar um það í grg. frv., hversu mikið þar vanti á. En ég vænti, að það muni verða upplýst í þeirri n., sem fær þetta mál til afgreiðslu. Ég get, vegna þess að ég á sæti í þeirri n., stytt mál mitt á þessu stigi umr., en vil þó segja það, að ég er að sjálfsögðu sammála hæstv. ráðh. um það, að nauðsyn beri til þess að afla fjár til þess að ljúka þjóðleikhúsinu og til þess að standast þau óvæntu útgjöld, sem þarf að inna af hendi til fullbyggingar þess. En ég verð að segja, að mér finnst þetta, sem þetta frv. leggur til, nokkuð harkalegt. Samkv. þeim l., sem sett voru um skiptingu skemmtanaskattsins árið 1947, rennur 40% af skemmtanaskattinum í rekstrarsjóð þjóðleikhússins frá áramótum 1947 og 1948, 50% í hinn nýstofnaða félagsheimilasjóð og 10% til lestrarfélaga og kennslukvikmynda. Samkv. þessu frv., sem hér liggur fyrir, er hins vegar lagt til, að 65% skattsins renni um ótakmarkað tímabil til þjóðleikhússjóðs, þar af 30% til rekstrarsjóðs þjóðleikhússins og 35% í þjóðleikhússjóð til þess að ljúka byggingu þess, en 25% skattsins renni í félagsheimilasjóð og svo sömu 10% og áður til lestrarfélaga og kennslukvikmynda. — Eins og ég sagði, þá er ég sammála hæstv. menntmrh. um það, að nauðsyn beri til þess að ljúka þjóðleikhúsinu og afla fjár til þess. En mér þykir þetta nokkuð harkalega að hinum nýstofnaða félagsheimilasjóði farið og sérstaklega þegar á það er litið, að heildartekjur af skemmtanaskattinum hafa hækkað verulega við ráðstafanir, sem hér hafa nýlega verið gerðar á Alþ. samkv. l. um dýrtíðarráðstafanir. — Ég skal ekki fara ýtarlega út í að ræða afstöðu mína til þessa máls. En ég tel óhjákvæmilegt og vil láta það koma fram strax á þessu stigi málsins, að þeim hlutföllum verði breytt, sem þetta frv. leggur til um skiptingu skemmtanaskattsins. Ég tel í þessu frv. gengið of langt í því að skerða tekjur félagsheimilasjóðs, og ég þarf ekki að rekja þau rök nú, sem til þess hníga, að nauðsyn beri til þess að skerða ekki um of starfsmöguleika þess sjóðs. Ég hef og ýmsir aðrir hv. þm. flutt þau rök fram hér áður, og þarf ekki að þreyta hv. þm. með þeim nú. En ég hefði talið æskilegt, að þegar hæstv. ríkisstj. sá framan í þann aukna kostnað við byggingu þjóðleikhússins, þá hefði hún að minnsta kosti gert sér það ómak að athuga í leiðinni, áður en hún lagði þetta til, möguleika til þess að auka tekjur af skemmtanaskattinum, ekki sízt þegar fyrir þessu sama þingi, sem þetta frv. er lagt fram á, einnig liggur fyrir frv. um að afla aukinna tekna fyrir bæði þjóðleikhússjóð og félagsheimilasjóð. Þetta hefur hæstv. ríkisstj. ekki viljað ómaka sig til að gera, heldur lagt þetta frv. þráðbeint hér fram. Það er kannske vegna þess, að ég er nokkuð nátengdur þessu frv. um að auka tekjur þjóðleikhússins af skemmtanaskattinum, sem mér finnst þetta, þar sem ég er 1. flm. þess og ber það fram vegna tekna félagsheimilasjóðs. En mér finnst, að hæstv. ríkisstj. hefði borið að taka þetta atriði til athugunar í leiðinni og leggja ekki það eitt til að taka helminginn af þeim tekjum, sem hæstv. Alþ. hefur nýlega ákveðið, að félagsheimilasjóður ætti að hljóta, því að það er það, sem gert er með þessu frv. Það er tekinn helmingurinn af tekjum félagsheimilasjóðs og hann fenginn þjóðleikhúsinu, án þess að gerð sé tilraun til þess að fara aðrar leiðir til þess að afla fjár til að ljúka byggingu þjóðleikhússins. Ég tel þetta miður farið, en ég treysti nú hæstv. menntmrh., sem eðlilega hefur forgöngu um þetta mál f.h. ríkisstj., til þess að taka nú þetta atriði, sem ég nefndi, með í reikninginn einnig. Og ég er fús til þess að vinna með honum að því að tryggja leikhúsinu nauðsynlegt fé, til þess að hægt sé að ljúka því. En ég tel ekki að, að nauðsynjalausu eigi að ganga svo langt í því að skerða tekjur hins nýstofnaða og lítils megnuga félagsheimilasjóðs, með þeim geysivíðtæku verkefnum, sem fram undan eru hjá honum.

Annað atriði, en sjálfa skiptingu teknanna snertir, vil ég minnast á, en þ.e., að þetta ákvæði á að gilda ótímabundið. Þessi lög skulu gilda frá 1. janúar 1949 og þangað til byggingarkostnaður þjóðleikhússins er að fullu greiddur. Ég hefði talið æskilegt, að eitthvað ákveðnara hefði verið til tekið um gildistíma l. en þetta, þannig að það væri ekki alveg ótímabundið, hve lengi 65% skemmtanaskattsins rynnu í þjóðleikhússjóðinn. Og ég hefði talið æskilegt, að n. sú, sem fær þetta frv. til meðferðar, athugaði þetta atriði.

Að öðru leyti skal ég ekki gera þetta mál að umtalsefni nú. Ég vænti, að hv. n., sem athugar málið, fái allar upplýsingar um fjárþörf þjóðleikhússins, hversu mikið kostnaðurinn við að fullgera það muni fara fram úr áætlun og yfirleitt um framkvæmd þessara mála.