03.05.1949
Neðri deild: 97. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í B-deild Alþingistíðinda. (1309)
203. mál, skemmtanaskattur og Þjóðleikhús
Pétur Ottesen:
Ég hafði nú ekki búizt við því, satt að segja, að lagt yrði til nú á þessu þingi að breyta l. frá 1927 um skemmtanaskatt og þjóðleikhús, eins og samkv. þessu frv. er ætlazt til, að gert verði. Þangað til þau lög voru sett, hafði öllum skemmtanaskattinum verið varið til byggingar þjóðleikhússins, þannig að það fyrirtæki sat eitt að þeim tekjum, sem skemmtanaskatturinn gaf. Með breyt., sem gerð var 1947 á þessum l., þá var svo ákveðið, að 40% af þessum skatti skyldi renna til þjóðleikhússins, en hinum hlutanum ráðstafað þannig, að 50% rynni til félagsheimilasjóðs og 10% til lestrarfélaga og kaupa á kennslukvikmyndum o.s.frv. Nú er hins vegar farið hér með flutningi þessa frv. fram á það, að þjóðleikhúsið fái 65% af þessum skatti, en að sá hluti af skattinum, sem renni til félagsheimilasjóðs, sé 25%, en að 10 prósentin verði notuð áfram eins og gert er ráð fyrir í þeim l., sem sett voru um lestrarfélög og kennslukvikmyndir. Mér virðist, að með þessum hætti sé óeðlilega mikið fé bundið við þetta eina fyrirtæki í landinu, þjóðleikhúsið, og það því fremur þegar þess er gætt, að það hafði um áraraðir setið eitt að öllum þessum skatti, en aðrir, sem að svipaðri starfsemi vinna úti á landinu, að halda uppi þar ýmiss konar skemmtanalífi, iðkuðu leiklist og annað, sem lyftir nú anda mannsins á hærra stig, nutu einskis af þessum skemmtanaskatti, en urðu að inna skattinn af hendi samt sem áður. Samkv. l. frá 1947 átti að greiða götu félags- og skemmtanalífs víðs vegar á landinu, bæði í kaupstöðum og kauptúnum og úti á landsbyggðinni, með því að 50% af þessum skatti rynni til þeirrar starfsemi, en það er vitað, að það er undirstaða félagslegrar starfsemi, að það sé húsakostur, þar sem hægt sé að koma þessari starfsemi við. Þess vegna var þarna lagður mjög mikilsverður grundvöllur að slíkri starfsemi úti á landinu. Og þó að það verði sjálfsagt að viðurkenna, að leikstarfsemi sú, sem farið hefur fram og fer fram hér í Rvík í þjóðleikhúsinu og væntanlega fer þar fram eftirleiðis, þegar það er orðið til tækt til slíkra hluta, hafi að ýmsu leyti aðstöðu til þess að móta skemmtanalíf úti á landsbyggðinni, þá verður þó að stilla hér nokkuð í hóf og gera ekki svo greypilega upp á milli um fjárstuðning til skemmtanalífs eins og ætlazt er til samkv. þessu frv. Það er náttúrlega rétt, að það er út af fyrir sig mjög æskilegt, að hægt verði að ljúka byggingu þjóðleikhússins. En Alþingi má ekki sjást yfir um það, að það eru fleiri fyrirtæki í þessu landi, sem mjög mikið veltur á um, að hægt sé að koma áleiðis, frá því sem nú er. Það er ekki eins og þetta sé það eina, sem leggja þarf áherzlu á. Það er margt hliðstætt þessu og margt, sem er að ýmsu leyti miklu meiri nauðsyn á, að hrundið sé í framkvæmd, en þessu fyrirtæki, þó að gott sé á sínu sviði. Við þekkjum það hér, sem erum að berjast fyrir því á Alþ. áð geta komið fram ýmsum framkvæmdum, sem mjög veltur á fyrir atvinnulíf landsmanna, sem er undirstaðan undir allri okkar afkomu, —- við þekkjum það mjög vel, hve erfitt er að afla fjár og annars stuðnings til þess að koma slíkum framkvæmdum áfram, þannig að þetta er engan veginn það eina nauðsynlega, svo að þess vegna megi setja það fram fyrir allt eða flest annað. Ég vildi þess vegna mjög vona, að ekki þyrfti til þess ráðs að grípa að breyta þessari löggjöf frá 1927, heldur mætti við svo búið sitja og það þótt það yrði afleiðing af því, að lengur drægist en ella að koma þjóðleikhúsinu í starfhæft ástand. Ég er ekki viss um, að það borgi sig fyrir þjóðfélagið að beina svo mjög kröftunum að þjóðleikhúsbyggingunni, að fyrir það verði að slá slöku við að koma til aðstoðar sams konar fyrirtækjum, sem vinna að hliðstæðum markmiðum úti um landsbyggðina. Þessu verður Alþ. að gera sér ljósa grein fyrir við afgreiðslu málsins.
Ég vildi aðeins láta þessu frv. fylgja þessar skoðanir mínar, um leið og það fer til n., eins og sjálfsagt er.