14.12.1948
Neðri deild: 34. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (134)
90. mál, gjaldaviðauki 1949
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Fjhn. mælir með samþykkt þessa frv. og ber fram brtt. á þskj. 203, en sú brtt. er eingöngu leiðrétting. Það hafði viljað til það óhapp, þegar l. yfirstandandi árs voru afrituð, að það féll niður úr 1. gr. heimildin um að innheimta með 50% viðauka eignarskatt samkv. 14. gr. 1. nr. 6 9. jan. 1935, álagðan á árinu 1949. Þessar reglur hafa gilt undanfarið, og er þess að vænta, ef d. vill samþykkja þessa framlengingu á annað borð, að hún fallist á að hafa þessa hækkun á eignarskattinum með, eins og verið hefur undanfarið.