17.05.1949
Neðri deild: 113. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 864 í B-deild Alþingistíðinda. (1353)
203. mál, skemmtanaskattur og Þjóðleikhús
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Sú breyt. hefur verið gerð, að 3. gr. frv. hefur verið felld niður. Ýmsir í Ed. vildu gera hluta rekstrarsjóðs meiri, en gert er í frv., en hættu við það, þar sem þeir vissu, hvaða skoðun Nd. hafði á því, og þess vegna var aðeins 3. gr. felld niður, en þessi breyt. þýðir það, að von er til, að þessir peningar komi í rekstrarsjóð síðar meir.
Ég vil svo mælast til, að frv. verði afgr. óbreytt.