24.03.1949
Sameinað þing: 53. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 953 í B-deild Alþingistíðinda. (1380)

42. mál, fjárlög 1949

Frsm. samvn. samgm.. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Samgm. beggja þd. hafa haft sama hátt á og undanfarið um undirbúning till. um skiptingu styrksins til flóabátasamgangnanna. Forstjóri Skipaútgerðar ríkisins, Pálmi Loftsson, hefur og unnið með n. að þessum málum. vil ég, áður en ég drep á einstaka þætti nál., fara nokkrum orðum um þennan rekstur almennt.

Í frv. hæstv. fjmrh. var gert ráð fyrir að veita 300 þús. kr. framlag til flóabátanna, en s.l. ár nam styrkurinn 912 þús. kr. rösklega. Samvn. samgm. taldi sér því skylt að athuga, hvort hægt væri að draga verulega úr útgjöldum ríkissjóðs til þessarar starfsemi, þannig að fjárveitingin til þessa hluta samgöngumálanna nálgaðist eitthvað það, sem áætlað var af hæstv. fjmrh. Þessi mál voru því töluvert rædd og einkum það, hvort hinir nýju strandferðabátar gætu að einhverju eða öllu leyti leyst flóabátana af hólmi. Vildi n. gjarna freista þess að fækka flóabátunum, ef slíkt sýndi sig. En athuganir n, leiddu í ljós, að það er a.m.k. mjög erfitt, ef ekki ómögulegt. Strandferðabátarnir fara allir héðan frá Reykjavík og flytja vörur til hinna einstöku staða úti á landi. Hins vegar eru flóabátaferðirnar miðaðar við flutningaþörf hinna einstöku héraða innbyrðis og annast flutninga milli sveita og bæja úti á landi. Það mun því reynast afar erfitt að samræma ferðir flóabátanna og strandferðabátanna, og þegar rætt er við fulltrúa hinna einstöku byggðarlaga um möguleikana á því að leggja niður flóabátana, þá mótmæla þeir því mjög ákveðið. N. hefur því sannfærzt um það, að ekki sé hægt að leggja flóabátana niður og leysa flutningaþörf héraðanna með strandferðaskipunum. Hins vegar með því að lengja akvegakerfið geta einstakir flóabátar orðið óþarfir.

Um rekstrarkostnað flóabátanna er það að segja, að hann hefur yfirleitt hækkað nokkuð, en þrátt fyrir það taldi n. sér ekki fært að leggja til, að styrkurinn yrði lækkaður almennt. Hins vegar þótti n. sem ekki yrði komizt hjá því að hækka lítillega styrki til örfárra þeirra báta, sem hvað verst hafa orðið úti á s.l. ári. — Skal ég nú snúa mér að einstökum atriðum, og ræði þá fyrst um Breiðafjarðarsamgöngur. Gert er ráð fyrir, að þær verði að mestu óbreyttar frá s.l. ári. Þó er gert ráð fyrir, að vélastyrkur til Flateyjarbátsins, sem annast ferðirnar um norðanverðan Breiðafjörð, sem var á s.l. ári 30 þús. kr., falli nú niður, þar sem ný vél hefur nú verið sett í bátinn. Hins vegar er gert ráð fyrir, að styrkur til Skógarstrandar- og Langeyjarnesbátsins verði hækkaður um 3 þús. kr., og verði samtals 10 þús. kr. — Ísafjarðarsamgöngur hafa verið svipaðar og áður, en ferðum hefur þó verið fjölgað nokkuð. Rekstrarafkoma bátsins hefur verið slæm vegna hækkaðs rekstrarkostnaðar, en n. taldi þó ekki fært að leggja til, að styrkur til hans yrði hækkaður. — Varðandi Norðurlandsbátana er lagt til, að sú breyt. verði gerð, að styrkur til Húnaflóa- og Strandabáts, sem heldur uppi ferðum um vestanverðan Húnaflóa milli Ingólfsfjarðar og Hvammstanga, verði hækkaður um 3 þús. kr., og er orsökin sú, að báturinn hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum vegna aflabrests á síldveiðum undanfarin ár. Þá leggur n. til, að styrkur til Norðurlandsbáts, sem gengur milli Akureyrar og Sauðárkróks, verði hækkaður um 10 þús. kr. Útgerðarmaður bátsins færði rök að því, að styrkurinn þyrfti að hækka um 30 þús. kr., en n. taldi sér ekki fært að leggja til meiri hækkun en 10 þús. kr. Hins vegar leggur n. til, að þá verði felldur niður styrkur til Haganesvíkurbáts, en Norðurlandsbátur taki upp viðkomu á Haganesvík. Þetta getur ef til vil] orðið nokkuð erfitt, en talið var, að leysa mætti þörf Haganesvíkurbúa með þessum hætti. Um Austfjarðarsamgöngur er það helzt að segja, að lagt er til, að styrkur til Norðfjarðarbáts verði lækkaður um 13 þús. kr. vegna þess, að ráð er gert fyrir því, að akvegasamband við Neskaupstað skapist á miðju næsta sumri. Hins vegar er lagt til að hækka styrkinn til Eskifjarðarbátsins um 2 þús. kr. Er með því reynt að greiða fyrir hentugri ferðum bátsins í sambandi við áætlunarferðir bifreiða. Þá leggur n. til, að styrkur til Hornafjarðar-Austfjarðabáts verði lagður niður. Undanfarin ár hefur enginn sérstakur bátur annazt þessar ferðir, en Skipaútgerð ríkisins hefur ýmist með eigin skipum eða leigubátum leyst þessa flutningaþörf, og hefur styrkurinn því runnið beint til hennar. N. taldi eðlilegra, að kostnaður við þessar ferðir væri færður á reikning Skipaútgerðarinnar, en að veittur væri sérstakur styrkur til þeirra á fjárlögum. N. ætlast að sjálfsögðu til, að Skipaútgerðin sjái þessum byggðarlögum fyrir svipuðum ferðum og undanfarið. Þá leggur n. enn til, að styrkur til Loðmundarfjarðarbáts verði hækkaður um 2 þús. kr., því að hann mun ekki geta haldið uppi ferðum sínum milli Seyðisfjarðar og Loðmundarfjarðar með óbreyttum styrk. — Er þá komið að Faxaflóasamgöngunum. Um þær er það að segja, að ekki er gert ráð fyrir styrk úr ríkissjóði. H.f. Skallagrímur í Borgarnesi hefur ekki óskað eftir styrk, en stjórn félagsins hefur hins vegar ítrekað ósk félagsins um það, að því verði greiddur halli sá, sem varð á rekstri m.s. Víðis 1947, en hann nam 150 þús. kr. Ég gat þess í framsögu á síðasta Alþ., að n. hefði ekki treyst sér til að verða við þessari ósk, enda var þá ekki vitað um heildarafkomu útgerðarfélagsins 1947. Nú liggja reikningarnir fyrir, og samkomulag varð um það í n., að ríkisstj. yrði veitt heimild til þess á 22. gr. fjárlaga að greiða 40 þús. kr. í bætur vegna þessa halla. Á sínum tíma gaf n. vilyrði fyrir því, að halli, sem verða kynni á ferðum m.s. Víðis, yrði greiddur úr ríkissjóði. Um þetta geta hv. þm. sannfærzt með því að kynna sér nál. frá 1947. N. taldi því ekki annað fært en að heimila þessar 40 þús. kr. — Þá er þess að geta, að komið er akvegasamband við byggðina í Selvogi, og leggur n. því til, að styrkur til Selvogsferða verði felldur niður. Loks leggur n. til, að nýr liður, 30 þús. kr. vegna vöruflutninga til Öræfa, verði tekinn í heildartillögur hennar um flutninga- og flóabátastyrki. Hæstv. fjmrh. lét þess getið í athugasemdum við fjárlagafrv. þessa árs, að hann teldi eðlilegra, ef þessum lið yrði haldið, að hann yrði færður undir flóabátastyrk, og féllst n. á þetta. Á fjárlögum 1948 nam þessi fjárveiting 29.800 kr. Hér er því aðeins að ræða um flutning milli liða fjárlaga, en hins vegar ekki hækkun á flutningastyrkjum. Samkvæmt till. samvinnun., sem ég hef nú rakið, áætlar n. styrk til vöruflutninga og flóabátaferða á fjárlögunum 1949 samtals 878 þús. kr., en það er 34 þús. kr. lægra en 1948 og 37.500 kr. lægra en 1947. Ekki verður annað sagt, en að tekizt hafi að halda þessum útgjöldum mjög niðri, þegar litið er á verðlagsþróunina s.l. þrjú ár. Það verður að teljast gott, að hægt hefur verið að halda sama styrk eða öllu heldur lægri, en 1947, þrátt fyrir það að rekstrarkostnaður bátanna hefur aukizt og þeim er bannað að hækka fargjöld og farmgjöld. Hv. þm. sjá í nál., hvernig n. leggur til, að styrkurinn skiptist, og sé ég ekki ástæðu til að lesa það upp. Ég vil að lokum segja það, að samvn. hefur haft fullan vilja á því að stilla þessum útgjöldum í hóf, en n. hefur orðið að taka tillit til þess, að aðkallandi þörf er fyrir þessar samgöngur. Enn er ekki hægt að láta strandferðaskip og strandferðabáta leysa þessa þörf í stað flóabátanna, kannske verður það hægt síðar, en þó dreg ég það í efa, því að hér er um óskyldar þarfir að ræða. Ég vil svo aðeins skjóta því fram og hefði viljað, að hæstv. samgmrh. hefði heyrt það, að ég tel óhjákvæmilegt að leyfa sumum bátunum að hækka farmgjöldin, meðan svo mjög er haldið niðri þessum styrk. Ég vil skjóta þessu til stj. og tel, að athuga þurfi málið vel, áður en umleitunum í þá átt er hafnað, því að það mundi geta skapað margháttaða erfiðleika.