25.03.1949
Sameinað þing: 54. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í B-deild Alþingistíðinda. (1384)

42. mál, fjárlög 1949

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) [Frh.]:

Herra: forseti. Ég gat þess, út af þeim ádeilum, sem hv. form. fjvn. kom fram með viðkomandi ónauðsynlegu mannahaldi í Atvinnudeild háskólans, og út af því, að sumir, sem þar ynnu, virtust vera annars staðar á launum og jafnvel vinna fyrir fullum launum annars staðar, að ég mundi beina því til hæstv. landbrh. að svara þeim aths., því að vitaskuld á sá hæstv. ráðh. að svara fyrir sína stjórnardeild. Það er eðlilegt, að hv. fjvn. geri aths. sem slíkar. Og þessi ábending mín var sízt til þess að vera á móti þessari gagnrýni, heldur beindi ég henni til réttra aðila. Sama má segja um þá gagnrýni, sem hv. form. fjvn. kom með varðandi bílareksturinn og ferðalög póst- og símamálastjórnarinnar, sem og þær lántökur, sem hann minntist á, að sú stofnun hefði tekið. Ég sagði í því sambandi, að þar yrði sá ráðherra, sem hefur með samgöngumál að gera, að gefa skýringar, því að hvorki væru ákvarðanir um þessar ferðir teknar af fjmrn. né heldur hefðu neinar þær lántökur, sem átt hefðu sér stað og hv. form. fjvn. minntist þá á, farið fram á neinn hátt í samráði við fjmrn. eða fjmrh. — Það er vitanlega rétt hjá hv. form. fjvn., að það er nauðsyn á meira eftirliti og raunhæfara eftirliti frá ríkisins hálfu gagnvart ýmsum þeim rafvirkjunum, sem ríkið ber ábyrgð á, heldur en enn hefur verið kostur á að hafa með höndum. Og sérstaklega er nauðsyn á, að árangur af slíku eftirliti komi fram í því að hjálpa til eða benda á leiðir til þess, að þessar rafveitur beri sig betur, en þær nú gera. Og þetta á í raun og veru ekki eingöngu við um rafveitur, heldur og ýmislegt annað, sem reist er með ríkisábyrgð, en ríkið hefur á hinn bóginn harla lítil tök á að skipta sér af. Ábyrgðir ríkissjóðs nema stórkostlegum fjárfúlgum, eins og kunnugt er. Alþ. hefur verið mjög örlátt í því að veita ábyrgðir. En hitt er líka farið að koma í ljós, að ríkið er farið að verða fyrir alvarlegum skellum af þessum ábyrgðum. Mér þykir hlýða í því sambandi að gefa þær upplýsingar, að eftir því sem ég hef fengið upplýst hjá ríkisbókhaldinu nú síðustu dagana, þá hafa greiðslur fallið á ríkið vegna ábyrgða, sem Alþ. hefur heimilað — þ.e. þær greiðslur, sem ríkissjóður hefur orðið að inna af hendi samkv. þessu, nema nú 13.600.000 kr. rúmlega. Og þessar greiðslur eru náttúrlega eitt af því, sem hleðst á bak ríkissjóðs sem skuld hjá Landsbankanum. Þar er náttúrlega langstærsti liðurinn Síldarverksmiðjur ríkisins. Það er kannske rétt, að ég geri grein fyrir því, hvernig þessar meira en 13 millj. kr. ábyrgðir ríkissjóðs greinast. Ríkið hefur greitt vegna ábyrgða sem hér segir:

Andakilsárvirkjun, Borgarfirði.. ……………. kr. 380.025.00

Barnaskólalán Neskaupstaðar …………… — 38.000.00

Búðanes h. f., Stykkishólmi ……………… — 251.250.00

Búðahreppur, Fáskrúðsfirði …………………— 29.000.00

Dalvíkurhr., Eyjafjarðarsýslu,

hafnargerð ............................................. — 34.500.25

Flateyjarhreppur, S-Þing. .........................— 19.494.27

Húsavíkurhreppur, höfnin ... — 231.645.80

Hofshreppur, Skagafjarðarsýslu — 23.910.01

Ísafjarðarkaupst., hafnarger𠅅………. — 39.448,40

Landshöfn í Keflavík, Njarðvík …………….— 92.825.00

Ólafsvikurhreppur .................................. — 64.91

Stykkishólmur, rafv. og vatnsv. — 98.137.08

Síldarútvegslán, 1948 …………………… — 625.627.75

Siglufjarðarkaupstaður, Skeiðsfossvirkjun — 1.917.665.65

Siglufjarðarkaupstaður, Rauðka,

verksm. ……………………………………..— 101.340.00

Samvinnubyggingarfél. Ólafsv................ — 95.909.90

Skagastrandarhöfn ................................ — 584.144.65

Sauðárkrókshreppur .............................. — 5.203.52

Stokkseyrarhreppur ............................... — 31.431.69

Síldarverksmiðjur ríkisins ………………… — 8.928.965.44

Tunnuverksm. s.f., Siglufirði …………….. — 51.941.26

Vélbátatryggingarfélög .......................... — 35.000.00

Vestmannaeyjakaupstaður .................... — 18.800.00

Kr.13.634.330.58

Þar að auki hefur ríkið orðið að greiða ýmislegt, sem líka mun hafa bætzt við yfirdráttarskuld ríkisins við Landsbankann, og skal ég, af því að það er ekki svo langur listi, upplýsa hér, hvað það er, sem er raunverulega óviðkomandi rekstri ríkisins, en hefur fallið á ríkið að greiða.

Vegna smíði innlendu bátanna ……………………………….. kr. 10.137.500

Bátakaup, Svíþjóðarbátar .................................................... — 1.324.000

Ferðaskrifstofa ríkisins ........................................................... — 146.000

Höfðakaupst., Skagaströnd .................................................. — 1.825.000

Lýsisherzluverksmiðja ............................................................ — 589.700

Landssmiðjan, víxill frá '44 ………………………………………… — 682.000

Niðursuðuverksmiðja ................................................................ — 92.800

Síldarútvegsnefnd ……………………………………………………— 415.300

Tunnuverksmiðjan, Siglufirði …………………………………….. — 1.453.800

Sævar ex., gamli Þór ……………………………………………….. — 440.000

Þjóðhátíðarnefnd .................................................................... — 134.000

Hreinsun Hvalfjarðar ……………………………………………… — 250.000

Flatey, Breiðafirði, hafnarger𠅅………………………………….. — 35.000

Lán til síldarútvegsmanna, 1945 ………………………………… — 3.700.000

Lán til – 1947……………………………………. — 5.000.000

Stofnlán v/ vanskilagr. togara og

báta .................................................................................................. — 3.061.000

Kr. 29.291.100

Um síðasta liðinn er það að segja, að Landsbankinn hefur skuldað ríkissjóði fyrir vangreiddum stofnlánum togara og báta. En það eru náttúrlega meiri skuldir, sem eru þar í óreiðu, en vegna þeirra skuldaskilalaga, sem gerð voru hér í vetur, hefur ekki enn sem komið er verið dembt yfir ríkissjóðinn meiru af stofnlánaskuldum slíkra báta.

Í sambandi við það að öðru leyti, sem hv. form. fjvn. sagði um nauðsynina á eftirliti, sérstaklega með rafveitum, get ég upplýst, að fjmrn. er nú í samvinnu við félmrn. að hefja aðgerðir í því efni að ná fastara eftirliti af ríkisins hálfu með rafveitum, sem lenda í vanskilum. Það nær t.d. ekki nokkurri átt, að ríkið hafi enga íhlutun um söluverð á rafmagni hjá rafveitum, sem lenda í svo miklum vanskilum, að skuldagreiðslur falla á ríkissjóð þeirra vegna. En enn sem komið er sé ég ekki, að hægt sé að skipta sér af því á þann hátt, sem þarf að vera, þ.e.a.s. að ríkisvaldið eða þess fulltrúar hjá rafmagnseftirlitinu eða annars staðar geti hlutazt til um, að hæfilegt verð verði sett á rafmagnið undir slíkum kringumstæðum.

Ég minntist á það í sambandi við flugmálin og vil taka það skýrt fram, að það má ekki misskilja þá gagnrýni, sem ég hafði við hv. fjvn. út af þeim eina pósti, einnig, að ég leggist á móti sparnaðartill. eða lækkunartill. hv. fjvn. yfirleitt. Það er sérstaklega þessi eina till., sem ég gagnrýndi. En ég minntist á það í sambandi við þá till., að ég teldi það líka hættulegt að nema um of við neglur sér framlag frá Alþ. til slíkra mála vegna þeirra tilhneiginga, sem gera vart við sig hjá ýmsum opinberum stofnunum, sem hafa þannig lagaðan rekstur og einhverjar sterkar tilhneigingar til að fara með reksturinn eins og part af sínum eigin fjármálum, og ég tók það fram, að ég áliti það óheimilt. Þetta fer fram algerlega fyrir utan fjmrn., sem eftir öllum venjulegum hætti á að hafa slíkt eftirlit með höndum. Ég get t.d. nefnt það, að það mun hafa verið samþ. á þinginu 1946, að ríkinu væri heimilt að ábyrgjast fyrir Landssímann 12 millj. kr. lán, og þegar kom fram á árið 1947, var leitazt við að fá þetta lán. Það fór ekki fram fyrir milligöngu fjmrn., og mér er sagt af Landsbankanum, að það hafi verið fallizt á að lána 6 millj. kr. af þessu fé. Póst- og símamálastjórnin hefur aðra sögu af þessu að segja, en landsbankastjórnin segir annað. Ég tek þetta dæmi vegna sérstakra óþæginda, sem fjmrh. varð fyrir síðar meir út af því, hvernig með þetta mál var farið. Þrátt fyrir það að þessi lánsheimild væri ekki notuð eins og til stóð, það fékkst aðeins helmingur af fénu, þá virðist póst- og símamálastjórnin hafa framkvæmt þau verk, sem fyrir hendi lágu, eða brúkað féð, og að sjálfsögðu með samþykki síns yfirmanns. Það kom sem sagt í ljós, þegar kom fram á árið 1948, að ekki höfðu verið brúkaðar 6 millj. kr., heldur 12 millj., og mikið af því fé hafði gengið í gegnum póst- og símamálastjórnina sem innheimtir tollar. Sá háttur hefur verið á frá fornu fari, að póstinum hefur verið skylt að innheimta tolla, sem náttúrlega er talsverð upphæð. Nú var um þetta leyti ríkið sjálft komið í yfirdrátt hjá Landsbankanum, svo að raunverulega varð það svo, að þessar 6 millj. kr., sem pósturinn hafði notað fram yfir það, sem lán hafði fengizt til, hlóðust beint og óbeint á ríkissjóð, beint með því, að bankinn varð að fá fé úr ríkissjóði fyrir verk, sem búið var að vinna, og kostnað, sem hann hafði bakað sér, og óbeinlínis á þann hátt, að ríkið fékk ekki í sínar hendur tolltekjur, sem það hefði átt að fá, vegna þess að póst- og símamálastjórnin var búin að brúka þær í þessar framkvæmdir. Ég vil í þessu sambandi geta þess, að framkvæmdirnar voru heimilaðar af Alþ. Við þetta óx svo yfirdráttur ríkisins hjá Landsbankanum, og ég sætti gagnrýni fyrir það. að ríkisframkvæmd hafði farið krókaleið til að ná láni úr Landsbankanum til þessara framkvæmda, sem Landsbankinn hafði verið búinn að neita um, þ.e.a.s. þessar síðari 6 millj. Allar þessar aðgerðir fóru fram án þess, að rn. sem slíkt hefði nokkuð fengið um það að vita fyrr en þetta allt var um garð gengið, þrátt fyrir að verkið var unnið, a.m.k. var peningunum eytt. Þetta sýnir það, hvað kerfið, sem unnið er eftir í þessum efnum, er farið að verða úrelt með þeim vinnubrögðum, sem við eru höfð. Vinnubrögðin kunna að vera þau sömu, sem hafa tíðkazt frá öndverðu, meðan ráðh. höfðu gleggri yfirsjón yfir þessi mál og stofnanirnar voru færri og upphæðirnar smærri og allt viðráðanlegra, — þetta kann að hafa verið þolandi þá, en óþolandi nú. Og það er ekki hvað sízt þess vegna, að ríkisstj. hefur lagt fram í Ed. frv. um eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana, sem þar er enn og biður eftir þriðju afgreiðslu. Þessa eftirlits er orðin brýn þörf, ekki sízt þegar þess er gætt, hve mikið af fjármálum ríkisins fer í gegnum stofnanir, sem heyra undir hin ýmsu rn. og líta á sig sem nokkurs konar sjálfseignarstofnanir, sem geti farið sínu fram án þess að bera sig saman við a.m.k. fjmrn., þó að þær kunni að bera sig saman við þá ráðh., sem er falið að hafa umsjón með þeim.

Ég tók eftir því í ræðu hv. frsm., að það hafði mjög komizt á orð, enda var það till. frá sparnaðarnefnd, að slíta úr tengslum viðtækjaverzlunina og ríkisútvarpið, þannig að tekjur Viðtækjaverzlunarinnar rynnu hér eftir í ríkissjóð, en ekki til ríkisútvarpsins. Eins og allir vita, þá var það gert á sínum tíma, meðan ríkisútvarpið hafði úr litlu að spila, að láta það njóta þessa styrks frá Viðtækjaverzlun ríkisins, síðan hefur margt breytzt og þar á meðal það, að tekjustofnar ríkisútvarpsins eru orðnir miklu meiri en áður var. Af auglýsingum og því um líku fær útvarpið ákaflega miklar tekjur, og sparnaðarnefnd leit þannig á, að það væri í rauninni óþarft að láta ríkisútvarpið hafa áframhaldandi tekjur af viðtækjaverzluninni og ég er sömu skoðunar, og ég heyrði, að hv. form. fjvn. er sömu skoðunar. En hverjir eru þá það í fjvn., sem heldur kjósa að láta útvarpið halda þessum tekjustofni, sem því, vissulega er óþarfur, ef rekstur þess er rekinn af nokkurri hagkvæmni, vilja heldur halda þessu fyrirkomulagi, en að láta ríkissjóð fá þessar tekjur og þar með slaka eitthvað á þeim kröfum, sem annars þarf að gera til skattgreiðendanna og tollgreiðendanna í landi hér? Það væri æskilegt að heyra hér fyrir opnum tjöldum rök þeirra fjvn.-manna, sem ekki geta fallizt á þessa tilhögun, sem er hvort tveggja. í senn, að hún eykur tekjur ríkissjóðs og skaðar útvarpið, ef rétt er með farið, á engan hátt.

Hv. frsm. minntist meðal annars á 18. gr. og taldi hana mjög gallaða. og ég skal alls ekki fullyrða neitt um það, að hún þurfi ekki talsverðrar lagfæringar við. Af rn. hálfu var að okkar dómi litið inn á hana tekið að þessu þessu sinni annað en það, sem sjálfsagt og skylt þótti, og hv. frsm. minntist þar á einn einasta. mann, fyrrverandi skipherra á Ægi, sem fyrir tilhlutun fjmrn. var settur á 18. gr. nú, þangað til sá tími er kominn, að hann getur fengið lögboðna lífeyrissjóðsgreiðslu. Það má vel vera, að þetta hafi verið helzt til góð gerð og það hafi verið vel á valdi n. að gera þar breyt., en ég taldi mér sérstaka skyldu til að sjá til þess, að þessi maður, sem er sagður frá starfi, væri ekki skilinn eftir gersamlega án aðhlynningar þennan tíma, þangað til hann fær sína lögboðnu lífeyrissjóðsgreiðslu. Nafn þessa manns hefur verið nefnt áður af hv. frsm. fjvn., þ.e. Jóhann P. Jónsson skipstjóri, sem flestir landsmenn munu þekkja að góðu. Að öðru leyti, varðandi þessar misfellur á 18. gr., sem hv. form. taldi yfirleitt miklar, þá hefði ég vel þegið það, að n. sé ekki að láta sitja við aðfinningar einar út í bláinn, heldur taki að sér endurskoðun á gr., eins og ég veit, að hefur stundum áður fram farið í fjvn. gagnger endurskoðun á 18. gr., og það hefði alls ekki verið sakazt um það af minni hálfu, þótt slíkt væri gert, og þó að n. hafi þessa mánuði, sem málið var hjá henni, ekki gert það, þá er enn tími til stefnu, og ég vil beina því til hv. fjvn., að hún geri till. og lagfæringar á þeim misfellum, sem lýst var af hv. form., að væru á þessari gr. Þetta er eitt af þeim störfum, sem liggur í hlutarins eðli, að er verkefni fjvn., því að allir vita, að frv., eins og það er útbúið, er en enginn ómissanlegur kjörgripur, sem ekki má breyta, enda sannast sagna, að menn eru fúsir til að gera breyt. við þetta frv., eins og rétt er, og á hvers þm. valdi að gera slíkar till.

Hv. 8. landsk. var að benda á einhvern geipilegan mismun á fjárl. ársins 1946 og fjárlfrv., eins og það nú liggur fyrir, og mér skildist með brtt. fjvn. Vissulega ber þarna margt á milli. En ég vil í því sambandi benda á nokkrar staðreyndir, sem hv. 8. landsk. þm. hirti ekki um að fara út í. Í fyrsta lagi er geipilegur munur á fjárl. fyrir árið 1946, eins og þingið afgreiddi þau, og útkomu ársins 1946, því að útgjöldin reyndust 43 millj. kr. meiri en áætlað var og sakaði ekki mjög þá, því að á árinu 1946 voru tekjurnar mun drýgri, en búizt var við. Útgjöldin, sem höfðu verið áætluð 127 millj. kr., reyndust 170 millj. kr. Að öðru leyti vildi ég gera nokkurn samanburð, hvað hina einstöku liði snertir, til skilningsauka fyrir hv. 8. landsk. þm. Á fjárl. 1946 voru vextir áætlaðir 1,1 millj. kr., en 1949 eru vextir áætlaðir 7,3 millj. kr. Kostnaður við æðstu stjórn landsins var á fjárl. 1946 áætlaður 300 þús. kr., en í fjárlfrv. núverandi stjórnar 352 þús. kr. Alþingiskostnaður var í fjárl. 1946 áætlaður 11/2 millj. kr., en í frv. því, sem hér liggur fyrir, 2.3 millj. kr., 800 þús. kr. mismunur. Stjórnarráðið í fjárl. 1946 3.6 millj: kr., en 1949 5.4 millj. kr. dómgæzla í fjárl. 1946 12.6 millj. kr., en 1949 19.3 millj. kr. Heilbrigðismál, fjárl. 1946 10.3 millj. kr., en í fjár.l. 1949 13.4 millj. kr. Samgöngumál, fjárl. 1946 31.7 millj. kr., en í fjárl. 1949 29.2 millj. kr. Kirkju- og kennslumál, fjárl. 1946 24.8 millj: kr.; fjárl. 1949 31.8 millj. kr. Til bókmennta, lista og vísinda, 1946 5.1 millj. kr., fjárl. 1946 62 millj. kr. Atvinnumál, fjárl. 1946 12.4 millj. kr.,. fjárl. 1949 26.6 millj. kr. Félagsmál fjárl. 1946 7.4 millj. kr., fjárl. 1949 26.2 millj. kr. Eftirlaun fjárl. 1946 3.7 millj. kr., fjárl. 1949 5.8 millj. Óviss útgjöld, fjárl. 1946 12.5 millj., fjárl. 1949 39.5 millj. kr. Sé svo tekið tillit til þeirrar hækkunar, sem nú liggur fyrir samkvæmt till. n., þá vaxa útgjöldin, og þá aðallega vegna dýrtíðarráðstafana, 43 millj. kr., og samkv. till. n. vegir og brýr um 7 millj. kr. Mismunurinn er vitanlega allmikill. En stærsti liðurinn í þessum mismun er þannig til orðinn, að það , er hvorki á valdi þessarar né annarrar ríkisstj. að skera þar niður af sjálfsdáðum. Stærstu liðirnir eru til orðnir samkvæmt nýjum samþykktum þingsins. T.d. eru vextirnir, sem hafa vaxið um 6.1 millj. kr., blátt áfram afleiðing af lántökum, sem þingið hefur ráðizt í, og allir vita, að ríkisstj. ein ræðst ekki í lántökur án heimildar þingsins, og efast ég ekki um, að allir hv. þm. álíti þessar lántökur nauðsynlegar, t.d. lántökur til að rétta útvegsmönnum hjálparhönd út af síldarbresti hvað eftir annað. Þær hafa vissulega átt frá sjónarmiði Alþ. rétt á sér, annars hefðu þær ekki verið samþykktar. Dómgæzla í landinu hefur vaxið um 6.6 millj. kr. á þessu tímabili miðað við það, sem áætlað var 1946, en sá kostnaður reyndist meiri en áætlaður var, svo að sá liður hefur raunverulega ekki vaxið um 6 millj. kr. Kirkju- og kennslumál hafa vaxið á þessu tímabili, miðað við fjárlagaáætlunina, um 7 millj. kr. Þó hefur sá kostnaður vaxið miklu meira líka samkvæmt nýrri löggjöf um þetta efni, sem, eins og kunnugt er, er ákaflega kostnaðarsöm. Þá eru atvinnumálin. Hækkunin á þeim er á fleiri en einum lið, og mun það mest vera til ýmiss konar aukins styrks við landbúnaðinn, og munu a.m.k. landbúnaðarmenn hér á Alþ. tæplega telja það eftir. Félagsmálin, aukningin á þeim er einna mest, það er tryggingalöggjöfin, sem þar veldur straumhvörfum, vöxturinn er, miðað við frv. 1946 og frv. 1949, 18.7 millj. kr. Mestu skiptir þó í þessum efnum dýrtíðarútgjöldin, sem voru áætluð 1946 ekki nema 12,5 millj. kr., en við vitum, að þótt í frv. nú sé ekki gert ráð fyrir nema 33 millj. kr., þá er fjvn. á því, og ég vil ekki vefengja hennar álit, að samkvæmt þeirri löggjöf, sem nú hefur verið staðfest um fiskábyrgð o.fl., þá muni í þetta fara einar 75 millj. kr. á þessu ári. Mér þótti rétt að draga fram þessa liði, vegna þess að það er gagnrýni, sem er ekki annað en óhróður, þegar menn aðeins nefna svona tölur frá ári til árs, eins og hv. 8. landsk. gerði, án þess að taka tillit til þeirrar aðstöðu, sem hækkunin hefur valdið, en telja þetta og tíunda aðeins í því skyni að sýna fram á óreiðu hjá öðrum en þeim sjálfum. Hver skyldi efast um, að hv. 8. landsk. þm. hafi verið með í flestu því, sem hér hefur valdið mestum, hækkunum, og ég vil segja hans flokkur? Ætli hann hafi verið á móti fræðslulöggjöfinni, tryggingalöggjöfinni, eða ætli hann hafi verið á móti fiskábyrgðarl. eða niðurgreiðslum til bænda o.s.frv.? Ég þarf ekki að bíða eftir svari hv. þm., ég veit, að hann hefur verið með þessum hækkunum og mörgum fleiri hækkunum, sem engum öðrum þm. hefur dottið í hug að ljá sitt lið.

Það var rétt hjá hv. frsm. fjvn., að þegar ég afhenti frv. til hæstv. Alþ. á sínum tíma, þá var ekki ætlað til dýrtíðarráðstafana nema 33 millj. kr. Og það er líka rétt, að ég benti þá á það, að það þyrfti að athuga það grandgæfilega hvort ekki væri unnt varðandi fiskábyrgð að fara aðra leið í þeim málum, en að borga beint úr ríkissjóði, og sagðist ég mundu hafa áhrif á það, að það yrði nákvæmlega tekið til athugunar. Það var líka gert af ýmsum. Og eins og hv. frsm. fjvn. er kunnugt, var ekki nema að litlu leyti og reyndar að engu leyti farið inn á þetta, sem varpað var fram, sem átti upptök sín hjá Landssambandi íslenzkra útvegsmanna, hversu bæta skyldi fiskinn. Dýrtíðarlöggjöfin frá því um áramótin s.l. markaði ekki spor í þessu efni, sem var geðfellt af öllum og ég vil segja var geðfellt af fæstum að stíga. En ég þarf ekki að rekja þá sögu og aðdragandann að því, að útgerðarmenn stóðu hér bæði gagnvart ríkisstj. og jafnvel Alþ. með fyrirheit um það, að bátaflotinn hreyfði sig ekki, nema eitthvað væri bættur þeirra hagur og voru kröfur þeirra enda róttækari, en það, sem fært var að fara inn á. Afleiðingin er svo sú, að þegar hv. fjvn. leggur sitt nál. og brtt. fyrir hæstv. Alþ., er það ljóst, að það þarf auknar tekjur, um eða yfir 30 millj. kr. nema tilsvarandi niðurskurður á frv. eigi sér stað á öðrum liðum — til þess að báðir endar geti mætzt og fjárlagafrv. verði skilað með sama hætti af hálfu hæstv. Alþ. eins og af hálfu fjmrh. Því var skilað í hendur Alþ. á sínum tíma, sem sagt svo að segja greiðsluhallalausu. Hvaða leið sem farin kynni að verða í þessu efni, þá álít ég, að stefnunni beri að halda, það sé næsta brýn þörf fyrir hæstv. Alþ. að afgreiða fjárlögin greiðsluhallalaus. Boginn er orðinn það hátt spenntur, tekjuvonir hjá ríkissjóði það veiktar á ýmsum sviðum af ástæðum, sem ekki þarf hér að gera að umtalsefni, að Alþ. ber nú hin ríkasta skylda til — oft hefur skyldan verið brýn fyrir Alþ. að skila af sér greiðsluhallalausum fjárlögum, en ég tel þó þessa nauðsyn enn þá brýnni nú en nokkurn tíma fyrri hefur verið, og það af ýmsum ástæðum, sumum hverjum þannig vöxnum, að þær hafa ekki legið fyrir áður við afgreiðslu fjárlaga. Það er sýnt, og er margt, sem um það ber vitni, að stríðsgróðahugarfar það eða peningaflóðshugarfar það, sem komst inn hjá þjóðinni á stríðsárunum, það hugarfar hefur ekki tekið eins æskilegum breytingum og maður hefði getað ætlað, svo langt sem liðið er síðan sú alda gekk hér yfir, og því miður langtum síðar en nauðsynlegt var, að hugarfarsástand þjóðarinnar í þessum efnum kæmist í eðlilegt og gott horf. Og ekki síður fyrir þetta er hæstv. Alþ. nauðsynlegt að halda fast þeirri stefnu, sem mörkuð var, þegar þetta frv. var lagt fram, að afgr. fjárlögin greiðsluhallalaus. Við höfum verið þess vottar á undanförnum mánuðum, hversu margt breytist og hversu margt er hvikult, sem við byggjum okkar þjóðarbúskap á og verðum að byggja hann á. Þetta frv. er samið á þeim tíma í haust, þegar margra vonir stóðu til þess, að ríkuleg Hvalfjarðarsíldveiði yrði, og þegar ekki var vitað, að óvenjuleg illviðri mundu hamla veiðum bátaflotans í miklu fleiri vikur en venja er framan af vertíðinni, og enn fremur þegar ekki var vitað, að stærstu framleiðslutæki þjóðarinnar yrðu, fyrir mistök mannanna og ég vil segja heimsku, látin hætta að starfa á bezta uppskerutíma flotans. Ég geri ráð fyrir því, að ef allt þetta hefði verið vitað á þeim tíma, þegar þetta frv. var samið, þá hefði þótt enn brýnni nauðsyn á því að höggva í ýmislegt, sem þar var fyrir hendi. En fyrir það, sem gert var í því efni að höggva niður kostnað á fjárl., hef ég að vísu litlar þakkir fengið. Og nú berst hv. fjvn. við það að rétta þá slagsíðu, sem henni þykir vera komin á frv. í þeim efnum. Gott og vel. En höfum það þá í huga, að allt, sem eytt er, verður að greiðast.

Það er ekkert glæsilegt að horfa á það t.d., að um leið og fjölgar hér nýjum og góðum strandferðaskipum, þá sé nauðsynlegt um leið að hækka þá upphæð, sem fer til að greiða öðrum skipum fyrir strandferðir víðs vegar við strendur landsins. Ég hafði gert mér í hugarlund, að hin nýju strandferðaskip mundu leysa það mál, þannig að flóabátastyrkir þyrftu ekki að vaxa. En ég sé; að það er annar háttur hér fyrir hendi þrátt fyrir þennan nýja og glæsilega skipastól. Það er heldur ekki sérlega ánægjulegt að horfa á það, að þrátt fyrir hin stórvirku tæki, sem hér eru nú til vinnslu, m.a. við vegavinnuna, þá skuli kostnaður við vegaviðhaldið hækka, ef ekki eftir því sem vélum fjölgar, þá a.m.k. þrátt fyrir það, að þessi stórvirka véltækni öll er tekin í notkun á þessu sviði. — Landbúnaðurinn hefur á undanförnum árum mjög bætt sinn vélakost og hyggur enn á umbætur í því efni, og má það eðlilegt heita. Engum bónda er láandi, þó að hann óski eftir því að létta störf sín með aukinni tækni, sem kallað er, ekki sízt þegar hagur bænda er góður og þeir hafa nægilegt fé til þess að kaupa sér slíkar vélar og tæknilega aðstöðu. En því miður bólar ekki á því, að hin aukna tækni landbúnaðarins hafi lækkandi áhrif á landbúnaðarvörurnar. Þær virðast haldast í fullu verði og jafnvel fara hækkandi, ef ekki vegna hinnar auknu tækni, þá a.m.k. þrátt fyrir hana. — Og um sjávarútveginn er það að segja, að það mikla átak, sem gert hefur verið til þess að auka veiðiskipaflotann og þá margvíslegu svo að segja vísindalegu tækni, sem hann hefur yfir að ráða og þjóðin hefur verið ötul að útvega, þá virðist samt sem áður ekki, svona yfirleitt, afkoman vera betri hjá sjávarútveginum en hún áður var, meðan þessi tækni var ekki eins fullkomin og ekki það stór, fé í hann komið, sem nú hefur í hann komizt á síðustu árum. Allt þetta er venjulegum borgara þessa þjóðfélags undrunarefni, a.m.k. annað veifið. Og niðurstöðurnar af heilabrotum fólksins um þessa hluti kunna að vera margar, En það er a.m.k. eitt, sem er örugglega víst, að tæknin út af fyrir sig bætir ekki öll þjóðfélagsmeinin, ekki heldur í atvinnuháttum, Tækninni þarf að fylgja svo margt fleira, sem maður sjálfur leggur til, ef tæknin á að verða til þeirrar blessunar, sem hún getur orðið, þegar bezt lætur.

Ég skal svo ekki þreyta hæstv. forseta eða hv. þm. með lengri ræðu að þessu sinni. En það alvarlega ástand, sem er í okkar þjóðfélagi hvað atvinnumálin snertir, er bæði mér sérstök hvöt og ég þykist viss um öllum hv. þm. sérstök hvöt til þess að stuðla að því, að þessi fjárlagaafgreiðsla, sem nú nálgast sitt síðasta stig, fari sómasamlega úr hendi fyrir hinu háa Alþ.