28.03.1949
Sameinað þing: 55. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (1395)
42. mál, fjárlög 1949
Jón Sigurðsson:
Herra forseti. Ég á hér aðeins eina brtt., sem ég er 1. flm. að, á þskj. 488, og langar mig til að ræða um hana með nokkrum orðum og gera grein fyrir henni. Hún er þess efnis að hækka fjárveitingu til Skagfirðingabrautar úr 85 þús. kr. í 120 þús., en til vara 100 þús. kr. Ástæðan til þess, að þessi hækkunartill. er fram borin, verður tæplega skýrð án þess að gera stuttlega grein fyrir þeirri vegagerð, sem þarna hefur farið fram. Þessum vegi er ætlað það hlutverk, að vera aðalleið úr öllum framhluta Skagafjarðar vestan Héraðsvatna. Fyrir fáum árum náði þessi vegur aðeins fram að Mælifelli, þ.e.a.s. sá hluti hans, sem hægt var að telja vagnfæran. Þar tóku við viðáttumiklar hallandi mýrar á margra km svæði, sem jafnframt voru þannig, að mikil þörf var að ræsa þær fram til ræktunar. Af forustumönnum héraðsins var því unnið að því að sameina framræslu og vegagerð, að þetta gæti farið fram hvort tveggja í einu til að greiða fyrir þessu máli. Þetta tókst. Vegarstæðið var ákveðið með hliðsjón af hvoru tveggja, framræslu og þörf heimilanna fyrir vegi. Ég tel, að allir séu á einu máli um, að það hafi verið mikill ávinningur fyrir vegagerðina og framræsluna og þá búendur, sem þarna eiga hlut að máli. Svo var fengin skurðgrafa til að vinna aðalverkið. Skurðurinn var grafinn svo djúpur, að gröfturinn nægði alveg til að fá hæfilega undirbyggingu í veginn. Þar næst var jarðýta sett á ruðninginn til að jafna hann og undirbúa undir malarburð. Hygg ég, að þetta sé fyrsti vegurinn, sem lagður er hér á landi með slíku samstarfi milli skurðgröfu og jarðýtu. Þetta hefur heppnazt ágætlega. vegurinn er prýðilegur, það, sem búið er af honum. Kostnaðinum við skurðgröftinn og vegagerðina var jafnað þannig, að vegagerðin og landeigendur hafa komið sér saman um menn til að meta kostnaðinn, og ég held, að óhætt sé að segja, að báðir hafi verið vel ánægðir með þá útkomu, samanborið við það, ef hvor hefði átt að bera kostnaðinn einn. Þetta er aðalaðdragandinn. En það varð að halda verkinu áfram, þó að fjárveitingin hrykki ekki fyrir greftinum. Það var ekki hægt að flytja gröfuna burt, því að það mátti búast við, að þeir, sem fengju hana, yrðu ekki reiðubúnir til að sleppa henni aftur, þegar hentaði að fá hana aftur til vegagerðarinnar. Þess vegna var það fyrir milligöngu okkar þm. Skagf., að upp úr áramótunum 1947 fékkst samþykki ríkisstj. til þess, að hreppurinn mætti leggja fram fé sem vaxtalaust lán til að þoka veginum áfram. Þetta hefur verið gert. Unnið hefur verið samfellt að greftinum, en að jöfnun á ruðningnum var unnið eftir því, sem fé var fyrir hendi. Nú er búið að grafa það, sem grafa þarf. Aðeins er eftir að ganga frá síðasta kaflanum, þ.e.a.s. það er búið að ganga frá honum að öðru leyti, en að malbera hann. Vegamálastjóri áætlaði kostnaðinn 75–85 þús. kr. að fullgera þennan vegarkafla, svo að vegurinn komi að fullum notum, en það er sama upphæð og fjvn. leggur til í till. sínum.
Þá er þess að geta, að af því að unnið var svona stöðugt, er svo komið nú, að vegagerð ríkisins skuldar Lýtingsstaðahreppi 136 þús. kr., sem þeir hafa lagt fram og er vaxtalaust lán. Með þeirri fjárveitingu, sem fjvn. leggur hér til, er því um annað tveggja að ræða, að ekkert verður unnið að veginum á þessu ári, en fjárveitingin verður að ganga upp í þá skuld, sem myndazt hefur, eða þá sem ég tel vegna allra aðstæðna enn meira aðkallandi, að þessi partur, sem eftir er, verði malborinn, lokið við hann, svo að hann verði fær og vegurinn komi að fullum notum og að jafnframt verði lagt fram nokkuð rífara fé til þessa vegar, til þess að þeir, sem hafa lagt þarna fram fé, fái nokkra endurgreiðslu upp í sitt framlag. Mér virðist það eðlilegt, og okkur þm. hefur þess vegna komið saman um að bera fram till. um nokkra hækkun til þessa vegar, því að við treystum því, að bæði hv. fjvn. og aðrir viðurkenni dugnað, áhuga og fórnfýsi þessara manna, sem þarna hafa unnið að, með því að hækka þessa fjárveitingu. Vegamálastjóra bárust ekki öll gögn í hendur í þessu máli snertandi þennan veg fyrr en nú fyrir skömmu, og mun hann þá hafa verið búinn að senda fjvn. till. sínar. Mér er þess vegna nær að halda, að það hefði getað farið svo, ef þessi gögn hefðu verið komin, að till. hans hefðu orðið á annan veg, ef hann hefði haft fullt yfirlit yfir, hvernig sakir stóðu. Loks vil ég minna á, að þeir bændur, sem þarna eiga hlut að máli, eru sauðlausir nú sem stendur, og þeirra einu afurðir eru mjólk, sem þeir verða að sjálfsögðu að koma daglega á sölustað. Til þess að þetta gæti orðið, hafa þeir orðið að fara umræddan vegarkafla í vetur, eftir að fraus, þó að hann sé ekki malborinn, til þess að geta komið mjólkinni á markað, en það er þeim lífsnauðsyn. Í vetur var þannig tíðarfar, að þetta var hægt, það var litið um blota eða skarpar hlákur. Vegurinn var því frosinn. Mér er sagt, að þetta hafi bjargazt mjög vel hingað til, en það hlýtur að verða mjög erfitt eða ógerlegt, þegar verulegar þíður koma, og verður það til mikils tjóns fyrir þá, sem hlut eiga að máli. Loks má benda á eitt, sem liggur í hlutarins eðli. Það fer enginn áð leggja fram vaxtalaust lán á annað hundrað þúsund krónur í mörg ár, nema þeir telji, að sé mikils virði fyrir sig fjárhagslega. Þetta, sem ég hef greint frá, tel ég vera fyllilega rök fyrir þeirri hækkunartill., sem við þm. Skagf. höfum borið fram í sameiningu, og ég teldi sannarlega vel farið, ef hægt væri að færa jafngóð rök fyrir öllum þeim fjárveitingum sem þingið verður að fjalla um, sem vissulega eru margar og miklar.
Ég á hér líka ásamt hv. samþm. mínum sem síðari flm. nokkrar fleiri brtt. Ég ætla ekki að ræða um þær. Hann mun mæla fyrir þeim, og ég þarf ekki neinu þar við að bæta þau rök, sem hann hefur fram að flytja fyrir þeim till.
Um aðrar till., sem fyrir liggja, eða frv. í heild sé ég ekki ástæðu til að ræða að þessu sinni. Það er tilgangslítið. Ég mun þess vegna láta nægja þá grg., sem kemur fram í atkv. mínu, þegar þar að kemur.