01.04.1949
Sameinað þing: 61. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1017 í B-deild Alþingistíðinda. (1409)

42. mál, fjárlög 1949

Jón Pálmason:

Herra forseti. Ég hef nú ekki lagt í að flytja hér mikið af brtt., þó ekki vegna þess, að ég telji ekki, að mikil þörf sé fyrir meiri fjárframlög til ýmissa nauðsynlegra framkvæmda og framfaramála í mínu héraði heldur en lagt er til hafnabóta, vegabóta o.fl. Ég skil það vel, að ekki muni vera hægt að fullnægja öllum þeim þörfum í þessum efnum, og ég veit, að eins erfiðir tímar og núna eru í fjármálum okkar, þá hefur fjvn. sýnt mjög virðingarverða viðleitni. Þó er það svo, að mikið af framkvæmdum, sem fé hefur verið lagt til, er komið í sjálfheldu vegna aukins kostnaðar og annarra erfiðleika.

Ég hef leyft mér að flytja brtt., og er hún á þskj. 481, VI. liður 1, og er hún um framlag til bryggjunnar á Blönduósi, að það verði hækkað úr 40 þús. kr. í 80 þús. Þannig er ástatt í þessum málum, að í fyrra var farið í endurbætur á þessum mannvirkjum með því að setja steinsteypt ker fyrir framan bryggjuna, og var á s.l. sumri varið til þessara framkvæmda 280 þús. kr. En svo hörmulega vildi til, að fyrir mistök þeirra, sem stjórnuðu, ef einhverjum er um að kenna, starfsmanna vitamálastjórnarinnar, þá fór það þannig, að þegar fyrsta brimið kom, sem var nú reyndar stórbrim, þá eyðilagðist þetta mikið. Nú er það áætlað af vitamálastjórninni, að það mundi kosta 76 þús. kr. að gera við þetta, og vegna þeirrar skuldar, sem hreppurinn hefur þegar bakað sér vegna þessa, þá er Blönduóshreppi algerlega ófært að koma þessu í lag, og enda þótt þessi brtt. verði samþ., þá mun það reynast honum mjög erfitt að standa undir svona miklum kostnaði. En nú má segja það með nokkrum rétti, að það hafi ekki verið fullkomlega rétt að fara út í þessar framkvæmdir, en það væri skárra, að ekki hefði verið farið í þær í upphafi, ef ekki fæst fjárframlag nú, til þess að hægt sé að gera við, því að eins og gefur að skilja, þá er bryggjan ónothæf, ef hún verður ekki löguð. Nú hefur hreppurinn, Blönduóshreppur, farið þess á leit við mig með bréfi, sem hann hefur sent til mín, að ríkisstj. kosti að öllu leyti lagfæringu, því að bilunin sé sök starfsmanna ríkisins, og það eru fordæmi fyrir því, að slíkt hefur verið gert áður, t.d. þegar svipað kom fyrir með brimbrjótinn á Bolungavík. Nú neitar fjvn. að verða við þessum óskum, en ég vona þó, að n. geti fallizt á, að þessi upphæð verði hækkuð. Þetta er eina till., sem ég flyt varðandi mitt hérað sérstaklega.

þá flyt ég aðra brtt., sem er á þskj. 481, VI.2., og er um það, að fé það, 235 þús. kr., sem gert er ráð fyrir í till. fjvn. til ferjuhafnar í Hvalfirði, verði lagt niður, en lagt til viðhalds á Hvalfjarðarveginum. Vegamálastjóri hefur í þessu sambandi sagt, að hvorki hann né hans starfsmenn væru því meðmæltir, að haldið væri áfram með þetta fyrirtæki, enda er þetta eitt hlálegasta fyrirtæki, sem lagt hefur verið í. Mér er sagt, að fjvn. sé búin að eyða við þetta fyrirhugaða mannvirki nálega 5 millj. kr. Að vísu er þessu ekki öllu kastað á glæ, því að mikið hefur farið í vegi þarna, sem annars hefði þurft að leggja, en málið er fullkomin fjarstæða, og hvort sem haldið verður áfram eða ekki, þá verður að halda Hvalfjarðarveginum við. Þetta er mál, sem varðar allt Vestur- og Norðurland, því að hér er um að ræða samgönguleið, sem hefur mikla þýðingu, bæði fyrir flutninga á vörum og fólki, þetta varðar því einnig mitt kjördæmi. Það er nú komið svo, að mikið framlag af vörum hér í Reykjavík er flutt frá Norðurlandi með bifreiðum, og það er ekki hægt að hugsa sér, að það sé ekki haldið við og gerðir upp Hvalfjarðarvegirnir. Þetta ferjumál er einhver sú mesta fjarstæða, sem ég get hugsað mér, því að enda þótt hugsanlegt væri, að samgöngur væru þá tryggari milli Akraness og Reykjavíkur, þá væri miklu nær að halda heldur veginum við og tryggja þær á þann hátt en að kasta út milljónum til Hvalfjarðarferjunnar. Það var eðlilegt, að mönnum dytti einu sinni í hug að safna undirskriftum á Alþ. varðandi þetta mál, því að það var áður en vegurinn var lagður, og Hvalfjarðarleiðin var hálfgerð vandræðaleið, sem alls ekki var fær nema yfir hásumarið, og síðan vegurinn var gerður upp, þá er hann jafnvel oft illa fær, af því að það vantar þarna ýmsar framkvæmdir, t.d. vantar brú við Bláskeggsá og ýmsar breyt. á veginum, sem vegamálastjóri telur þýðingarmiklar.

Hér er ekki um aukin fjárútlát að ræða, heldur aðeins tilfærslu á fé, og ég held áreiðanlega, að mikill fjöldi og mikill meiri hl. manna óski heldur eftir því, að þessu fé verði varið til þess að gera upp veginn, en að láta það fara í þessa ferjuvitleysu, þar sem meiningin er að nota skemmda báta, sem Akraneshöfn hefur notað í fleiri ár.

Ég vænti þess svo, að hv. þm., sem ekki geta að fullu tekið tillit til mín, að þeir leiti þá álits vegamálastjóra um það, hvað rétt sé að gera í þessu máli, áður en þeir greiða atkv., því að það verður að gera sér grein fyrir, þótt ekki sé nema þeirri upphæð, sem þegar hefur verið veitt til ferjuhafnarinnar, og það verður líka að gera sér grein fyrir því, að það þarf geysimikla upphæð til viðbótar, til þess að hægt sé að koma í nothæft ástand því fyrirtæki, sem þarna er fyrirhugað.

Þó að ég vilji ekki fara að ræða almennt um afgreiðslu fjárl., þá verð ég að segja það, að almennt séð verðum við að haga afstöðu okkar, eins og nú horfir í fjármálunum, þannig, að lagt sé í það eitt, sem kraftar og geta leyfir okkur. Við verðum að halda við og fullgera þau mannvirki, sem þegar er búið að leggja mikið fé í og ekki er hægt að komast af án, en ekki leggja til þess, sem við getum án verið, þó að það sé ef til vill þægilegt að hafa það, ef það er nýtt, og Hvalfjarðarferjumálið er mál, sem getur beðið, þó að það geti hugsazt að halda því máli áfram síðar, sem ég þó tel, að ekki komi til mála. Að öðru leyti vil ég ekki þreyta hv. þm. vegna afgreiðslu fjárl.