04.04.1949
Sameinað þing: 62. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í B-deild Alþingistíðinda. (1414)

42. mál, fjárlög 1949

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ýmsum skeytum hefur nú verið skotið til fjvn. í sambandi við umræðurnar. Ég mun nú í svarræðu minni benda á ýmislegt, sem er rangt með farið, og gera grein fyrir ýmsu, er megi verða til skýringar á tillögum fjvn. En sérstaklega vil ég beina því til hæstv. forseta, að eðlilegt má heita, að viðkomandi aðilar hlusti á andsvör mín, einkum þó hæstv. samgmrh. vegna árása hans á mig í sambandi við póstsjóð, þar sem hann ber fram órökstuddar fullyrðingar og lætur blað sitt flytja þær án leiðréttinga. Ég hefði haldið, að honum þætti meiri sómi að því að svara þeim ásökunum, sem bornar eru fram í garð þeirrar stofnunar, sem hann á að bera ábyrgð á, heldur en kasta fram órökstuddum fullyrðingum til mín og n. — Ég mun þá svara fyrst hv. 1. landsk., sem gerði ágreining í n., þar næst hv. minni hl., síðan hv. 5. þm. Reykv., að svo búnu hæstv. fjmrh., þá hæstv. samgmrh. o.fl. hv. þm. eftir aths. þeirra. Ég vil hvorki hlaupa yfir einstök atriði né slíta samhengið, heldur verð að halda ræðu minni fram, hvort sem aðilar eru við eða ekki. Þó mun ég hætta, ef hæstv. forseta lízt það hentast. En persónulega er mér alveg sama, hvort þeir eru viðstaddir eða ekki. (Forseti: Ég mun gera ráðstafanir til að athuga, hvort aðilar eru við í húsinu. Ella verður að ráðast, hvort þeir hlusti eða ekki. En komi ekkert sérstakt fyrir, hafði ég hugsað mér, að fundi skyldi lokið fyrir kl. 4.) Herra forseti. Ég held þá fram ræðu minni. Áður en ég held lengra, skal ég þó benda á, að ég hef gert yfirlit yfir fram komnar brtt., eftir að fjvn. gerði till. sínar. En það er á þessa leið: Hækkunartill. frá stuðningsmönnum hæstv. ríkisstj., — það mun gott fyrir hæstv. fjmrh. að fylgjast með þessu, — nema um 5407000 kr. En auk þess eru óskir til hækkunar 6.6 millj. kr. af hendi hæstv. ríkisstj. Hún og stjórnarflokkarnir gera því till. til hækkunar, sem nemur um 12 millj. kr. frá brtt. fjvn. Hér kemur þá hæstv. ráðh. Ég var rétt í þessu að geta þess, ráðh., að brtt. stuðningsmanna hæstv. ríkisstj. til hækkunar nema um 5407000 kr., en hæstv. ríkisstj. óskar hækkunar um 6.6 millj. kr., svo að stjórnarliðið gerir till. um 12 millj. kr. hækkun samtals. Mér finnst þessar till. og ýmis ummæli, sem látin hafa verið falla í sambandi við þær, gefa tilefni til að ætla, að till. n. verði eigi samþ., heldur felldar, og að því loknu verði till. hv. þm. samþykktar, og bætast þá við gjaldamegin 18 millj. kr. að viðbættum 3 millj., sem ríkissjóður verður að standa undir fyrir sakir ábyrða. Svo bera sósíalistar fram hækkunartill. um 16113000 kr. og aðrir andstæðingar stj. eru með 645 þús. kr. hækkun, svo að alls verða þetta þá 16758000 kr. Ætla má, að eitthvað af till. verði samþ., ef hv. þm. vilja hækka útgjöldin á annað borð. — Ég vil benda á þetta í upphafi til þess að sýna, á hvaða leið þ. er varðandi afgreiðslu fjárl.

Þá sný ég mér að hv. 1. landsk. Hann sagði; að ég hefði hafið mál mitt á inngangi, sem ég túlkaði sem skoðanir n., en hann vildi mótmæla sem villandi og röngum. Ég bendi á, að þegar nál. var samið í fjvn., þá var það lesið upp að öllum nm. viðstöddum, og varð þá samkomulag um að fella brott allt það, er einstakir nm. vildu eigi undirrita. Kem ég að þessu atriði síðar. En eðlilegt er, að mér væri heimilað að skýra frá skoðun minni persónulega, enda yrði ég þá að tala á eigin ábyrgð: Fororð mín eru því á mína ábyrgð, og er engin ástæða til að mótmæla þeim á þennan hátt. Það er engan veginn hægt fyrir form. fjvn. að koma fram með till. og nál. fjvn. eftir fjögurra mánaða starf án þess að gera grein fyrir öllum þeim tíma, sem til þess hefur farið. Það er eitt meginatriðið í innganginum að geta þess, hvers vegna tókst eigi að afgreiða fjárlagafrv. til 2. umr. fyrr og hvers vegna. hækkunartill. um 40 millj. kr. komu fram, jafnvel varðandi afgreiðslu mála, sem snertu ekki n. Og hv. 1. landsk. sagðist líka mótmæla öðru. En eins og ég tók fram, þá var það aðeins einn í n., sem gerði fyrirvara um það, að hann væri á móti. Það var þó eigi vegna þess, að hann væri á móti hækkun, heldur var hann á móti lækkun. Hann óskaði þess lengi, að bókuð yrði atkvgr., er gengi í þá átt að lækka útgjöldin. Hann vildi láta það sjást, að hann hefði eigi verið sammála n. Hann sagðist einnig hafa skrifað í frv., en vildi ekki þreyta þm. því að yfirleitt væri langoftast um tillögur í lækkunarskyni að ræða. Þar var hv. þm. á móti. Þetta sannar bezt, að hv. þm. tók sæti í sparnaðarn., en flúði úr n., þegar átti að lækka útgjöldin. Sömu stefnu hélt hann í fjvn. En þegar hann sá, að atkv. hans olli hvorki samþykkt né falli neins máls, þá var hann með síðar. Yfirleitt hefur þó stefna hans verið þessi, sem ég hef nú lýst. Og hann hefur nokkuð verið í samráði við sinn flokk. Hv. þm. sagðist álíta lækkanirnar vera blekkingu eina. Hv. þm. hélt þessu fram, og það er e.t.v. meginástæða þess, að hér er um blekkingu að ræða. Sums staðar væri komið fram á árið og væri eigi unnt að gera áætlanir fyrr, en eftir samþykkt fjárl. En það er framkvæmdarvaldið, sem gerir það að blekkingu. Það átti undir eins að gera pósitífar ráðstafanir, til þess að till. yrðu ekki blekking ein. Ef rétt er, að þetta sé á móti vilja stjórnarforustunnar, þá er von til þess, að tillögurnar verði blekking. Þá er rétt að samþykkja þær ekki, en þó um leið að taka á sig ábyrgðina af að halda áfram á undangenginni braut. Hv. þm. sagði líka, að fjárlagafrv. hafi tekið þeim breytingum, að það sé nú með 28 millj. kr. greiðsluhalla, og n. geri engar till. til að bæta úr því og hún hafi því farið óvarlega. Þetta eru hans óbreytt orð. En þ. veit, að n. réð ekki við þetta. Þótt hún kæmi fram með nauðsynlegar till., þá var það eigi hennar verk að láta 10 millj. meira vegna dýrtíðarinnar. Það er verk, sem hv. 4. þm. Reykv. hefur sérstaklega vegsamað og stært sig af, að væri gert gegn vilja Sjálfstfl. (HV: Er þetta ekki misskilningur?) En hv. 1. landsk. þarf ekki að kenna fjvn. um þetta, og það var ekki hlutverk n. að finna tekjuliði á móti. Það er verk hæstv. fjmrh. Hann vildi bæta við 40 millj. kr., en 33 millj. eru veittar í stjfrv. Þá er það hans og stj. verk að finna tekjur á móti. Ef þá er nokkru óvarlegar farið, þá er eigi n. um að saka, — auk þess sem þess var getið í framsögu minni, að n. hefði rætt við hæstv. ríkisstj., hvernig hún hugsi sér að mæta þessum mun. Því er óþarfi að drótta þessu að n. — Þá sagði hv. þm., að óþarfi væri að bera Alþfl. það á brýn, að hann stæði á móti sparnaði, og gat þess og, að hann teldi sig hafa eins mikla ábyrgðartilfinningu og frsm. Ég sé ekki ástæðu til að svara þessu sérstaklega. Ég hef sýnt fram á afstöðu hans í n. Hann stóð á móti sparnaði yfirleitt. En ég geri ráð fyrir, að hann hafi álitið, að við hefðum ekki fært nægileg rök fyrir lækkunartillögum okkar. Hann stóð á móti sparnaðinum og hefur þar verið í samræmi við flokk sinn. Hins vegar skal ég benda á, að ég þykist vita að hv. 1. landsk. hafi dyggilega farið eftir tillögum síns flokks og hann hafi því farið í aðra átt, en hálfbræður hans, hv. 4. þm. Reykv. og hv. 3. landsk., ef þeir eru rétt feðraðir, en þeir eru hálfbræður sósíalista að móðerni. (GÞG: Við höfum aldrei stutt hæstv. ríkisstj.) Ég met hv. 1. landsk. miklu meira en þá, sem neituðu að styðja foringja sína. Ég endurtek það. Og það er eigi vegna ágreinings um utanríkismálin. Það var sagt, að forusta stj. nú hefði látið Sjálfstfl. leiða sig lengra en hún og stuðningsmenn hennar vildu samþykkja. En þeir voru búnir að lýsa því yfir áður, að Sjálfstfl. réði stefnunni í dýrtíðarmálunum, hinum verstu málum fyrir þjóðina. — Annars er eigi ástæða til að ræða meira um afstöðu hv. 1. landsk. varðandi afgreiðslu fjárl. Hún er eðlileg og mörkuð af stefnu Alþfl. yfirleitt. Mér þykir eigi óeðlilegt, þótt hann léti þetta koma fram í umr.

Þá fer ég nokkrum orðum um tillögur hv. minni hl. Þær eru ekki óeðlilegar, þegar litið er á, að menn þessir eru í andstöðu við stj., þótt þeir séu ábyrgir sem allir aðrir alþm. En mér er skylt að segja það, að þátttaka þeirra í afgreiðslu fjárl. í fjvn. var á þá leið, að þeir sýndu meiri ábyrgðartilfinningu en sumir stuðningsmenn stj. Og þess vegna á ég bágt með að skilja, hvernig flokkur þeirra kemur fram við afgreiðslu fjárlaganna nú við þessa umr. Að vísu þykist minni hl. n. tilbúinn að benda á tekjuöflunarleið, sem ekki hækki dýrtíðina, og væri fróðlegt að fá að vita, hver hún væri. Manni verður á að spyrja, hvort það sé ný eignakönnun, því að einu sinni átti hún að lækna öll mein. En hvað sem um það er, þá þarf mikla tekjuöflun til að mæta þessum 16–17 millj., sem gert er ráð fyrir til hækkunar. (Forseti: Má ég benda frsm. á, að nú er fundartími liðinn.) Ég get frestað að ljúka minni ræðu. — [Fundarhlé.]

Ég hefði óskað eftir, að hæstv. fjmrh. væri hér við, en ég verð þó að halda áfram. Það kom fram í umr. um daginn, að nokkurt stefnuleysi hefði ríkt í fjvn. í sambandi við afgr. fjárlfrv. Hefur n. verið álasað nokkuð fyrir þetta stefnuleysi, þó misjafnlega mikið. En ég get ekki viðurkennt, að þessi ásökun sé rétt. Fjvn. er skipuð fulltrúum allra flokka í þinginu eftir styrkleika þeirra. Og ég held þar ríki svona nokkurn veginn sama hugsun í afgreiðslu mála eins og í þinginu almennt. Og þó lít ég svo á, og því verður varla mótmælt, að fjvn. hafi haft viðleitni — að vísu veika viðleitni — til að marka stefnu til sparnaðar á rekstrarútgjöldum ríkisins. En þó að þessi viðleitni sé veik, virðist mér nú, eftir að hafa hlustað á ræðu þingmanna, að hún sé þó sterkari en margir af stuðningsmönnum stj. jafnvel vilja láta sér vel líka. Benda til þess þær till., sem bornar eru fram hér upp á um 12 millj. kr., eins og ég gat um í dag. En það ætti að verða þessara sömu manna, sem telja stefnu fjvn. of veika í sparnaðarátt, að marka hana sterkari, og mun það ekki verða tekið illa upp af n. Þótti mér rétt að láta þetta svar koma við þessari ásökun.

Hv. 5. þm. Reykv. hefur borið hér fram brtt. á þskj. 481 og með þeim markað alveg ákveðna stefnu í afgreiðslu fjárl., sem hann og markaði á fyrstu fundum n. Mér þykir rétt að skýra frá því hér, að hann lagði þá fram ákveðnar till. um rúmar 44 millj. kr. til sparnaðar á frv. Að vísu er ein af þeim till. upp á 33 milljónir kr., fólgin í því að fella niður algerlega framlag til dýrtíðarráðstafana, sem var í frv. upphaflega. En á þetta gat fjvn. fallizt á þeim tíma. Hann lét sér ekki heldur nægja þessar 33 milljónir, sem settar voru í fjárlfrv. í upphafi, heldur bætti við öðrum 43 milljónum rúmum á sama hátt, svo að hér er um 76 milljóna lækkun á framlagi til dýrtíðarmála að ræða. Hann hefur nú ekki viljað falla frá sinni skoðun í þessu máli og ber því fram á sérstöku þskj., sem hann hefur lýst, ýmsar róttækar brtt. til lækkunar, sem hvorki meiri hl. n. hefur viljað fallast á né — að ég hygg — meiri hl. Alþ. eins og það er skipað í dag. Sé ég ekki ástæðu til að fara frekar út í þetta atriði. Ég virði hans viðleitni í að vilja skila fjárl. greiðsluhallalausum. Hans skoðun er, að það eigi að fara þessa leið, og mér dettur ekki í hug að álasa honum fyrir það á nokkurn hátt. Við aðrir, sem ekki vildum fallast á þetta, viljum fara aðrar leiðir, þó að við vildum gjarna fylgja honum í að ná greiðslujöfnuði á sjálfu frv. Vænti ég, að meiri hl. Alþ. verði þeirri stefnu fylgjandi, áður en frv. hefur farið gegnum allar umr., því að ég tel höfuðnauðsyn, að nú sé spyrnt við fótum, þannig að ekki sé safnað meiri skuldum hjá ríkissjóði en gert hefur verið, og þess vegna sé nauðsyn að fá fjárlög greiðsluhallalaus.

Skal ég þá nokkuð fara inn á nál. samvinnun. í samgöngumálum. Hún hefur skilað því ásamt till. á þskj. 472. Þykir mér leitt, að hv. frsm. skuli ekki vera hér við, því að ég hefði gjarnan viljað ræða við hann. En viðstaddir menn úr n. geta flutt honum. Það er lagt til að hækka framlagið úr 300 þús. kr. upp í 878 þús. kr. Nú er það vitanlegt, að þær 300 þús. kr., sem teknar voru í frv., voru engan veginn nægar til þess að mæta þeim kostnaði, sem hlaut að verða á flóabátum á þessu ári. Hins vegar verð ég að segja það, að mér þykir, að ekki hafi verið hér mikið stökk til lækkunar frá því, sem var 1948. Sé ég ekki, að lækkað hafi verið um meira en 34 þúsundir, og þar af eru 30 þús. af einum bát, Konráð við Breiðafjörð. Og ef fjvn. hefði ekki tekizt betur en þetta, held ég, að ekki hefði orðið mikil breyt. til batnaðar á fjárlfrv. Ég segi þetta ekki sem neina ásökun, en bendi á þetta sem staðreynd.

En í sambandi við einstaka liði brtt. vildi ég benda á og gera fyrirspurn, þar sem ég sé, að hæstv. fjmrh. er kominn, hvort rætt hafi verið til hlítar möguleikar til að lækka Norðurlandsbátinn um meira en í till. felst. Hann er enn með 220 þús. kr. Það hefur verið lagt stórkostlegt fé í samgöngur milli Sauðárkróks og Akureyrar. Því var haldið fram, að nauðsyn væri að hraða þar vegaframkvæmdum, til þess að hægt sé að halda þar uppi samgöngum daglega árið um kring. En eftir því sem meira er lagt í þessa vegagerð og ferðir eru örari, er meira fé lagt til þessa báts. Nú er vitað, að búið er að leggja veg um Siglufjarðarskarð og í Ólafsfjörð. Og það var hugsað á þeim tíma, sem þessi bátur var ráðinn til þessara ferða, að starfssvið hans minnkaði hlutfallslega við það, að samgöngur bötnuðu á landi, auk þess sem mér er kunnugt, að strandferðaskipin tvö, Herðubreið og Skjaldbreið, áttu að taka a.m.k. eitthvað af þessu starfi. Mér þykir því, að hér hafi lítið unnizt á til sparnaðar á þessum lið. Sama er að segja um Húnaflóa- og Strandabátinn. Ég sé ekki, hver nauðsyn er að halda þessum ferðum þvert yfir flóann á sama hátt og áður, og mér þykir líklegt, að með því að Hólmavík hefur verið komið í samband við vegakerfi landsins í ýmsar áttir, mætti athuga, hvort ekki mætti komast hér ódýrar af. Þá vil ég ræða við hæstv. ráðh., hvort ekki megi fella niður Stokkseyrar- og Vestmannaeyjabátinn. Mér skilst flugferðir hafi aukizt mikið þar á milli, auk þess sem strandferðir þangað eru nú allt aðrar en á stríðstímanum. Skilst mér, að það ætti að geta orðið samkomulag um að fella þetta niður og spara þar um 60 þús. kr.

Um Mýrabátinn — smáupphæð — skil ég ekki, hvernig þeirri upphæð er haldið við, þar sem enginn bátur er til að flytja vörurnar, en þær eru nú fluttar eftir vegum, sem búið er að leggja til bændanna. Samt er þessari upphæð, 2.500 kr., skipt á milli bændanna, sem einu sinni höfðu bátinn. Má segja alveg sama um Suðurlandsskipið. Þetta er búið að standa lengi. Og mér finnst ákaflega óviðkunnanlegt að greiða 80 þús. kr. með þeim vöruflutningum, þegar margupplýst er, að vöruflutningar eru ódýrari á landi en sjó, og það miklu ódýrari að strandferðaskipin ganga hálftóm frá Reykjavík og út með ströndum, af því að það er ódýrara að flytja á bílum norður í Skagafjörð og jafnvel norður til Akureyrar. Ég vil benda hæstv. ráðh. á, að það væri mjög tímabært að athuga þessi mál nú í sumar, þó að þetta verði látið standa í ár. Það er rétt, sem komið hefur fram, að ekki er hægt að kippa þessu burt fyrirvaralaust. En ég tel, að í ár ætti að athuga gaumgæfilega alla skipaútgerð ríkisins, hvað megi færa í betra horf af þessum ferðum, miðað við að strandferðir eru komnar í betra horf en þegar bátarnir voru ráðnir til hinna ýmsu ferða, og miðað við það, að vegir eru allt aðrir og betri en þeir voru á þeim tíma.

Þá þykir mér rétt að gera hér nokkrar aths. við ýmislegt af því, sem kom fram í ræðu hæstv. fjmrh. um till. n. Hann saknaði þess, að fjvn. hafði ekki minnzt einu orði á starfsmannaskrána, sem svo mjög var kallað eftir. Ég skal nú gera nokkra grein fyrir þessu og sýna hæstv. ráðh., að þetta verk var ekki unnið til einskis. Að vísu er skráin þannig samin, að nær ógerlegt er að fá rétta hugmynd um greiðslur til einstakra manna. Sannleikurinn er, að það þarf að semja skrána upp, þannig að hægt sé að sjá í henni eins og skattskránni, hvað einstaklingur, sem er hjá ríkinu, hefur, svo að ekki þurfi að leita hingað og þangað. Þessir menn eru skráðir hjá hverri stofnun fyrir sig, en ekki eftir stafrófsröð. Ég skal taka nokkur dæmi til að sýna, að það hefur verið nauðsynlegt að gera þetta verk, — og mun betur en gert hefur verið.

Það er þá fyrst, að skrá þessi ber með sér, að skrifstofustjórar í stjórnarráðinu, hvor fyrir sig, og jafnvel endurskoðendur í stjórnarráðinu hafa fengið 2 þús. kr. í risnu fram yfir það, sem ákveðið er sem laun í launalögum. Við gátum alls ekki séð þetta í hinni venjulegu launaskrá. Það er falið undir öðrum kostnaði. Hins vegar er alveg ljóst, að ekki er til þessarar greiðslu ætlazt. Ég fyrir mína parta veit ekki, hvaðan ráðh. hefur fengið heimild til að greiða þetta fé, sem fellur ekki undir ákvæði launalaganna. Og ég satt að segja veit ekki heldur, hver ástæða er til að láta skrifstofustjórana hafa risnu. En ef hér er um hreina launauppbót að ræða til viðkomandi manna, ætti miklu fremur að fara aðrar og hreinni leiðir, ef launin eru svo lág, að þeir geta ekki lifað af þeim launauppbótalaust.

Þá sé ég hér einn embættismann á fullum launum — mér er illa við að taka upp nöfn manna — og hefur hann unnið dyggilega hjá ríkinu í mörg ár, en situr nú á fullum embættislaunum síðan hann fór frá starfi. Hann er það betur settur en starfsbræður hans, sem enn starfa, að hann greiðir ekki lífeyrissjóðsgjald af þessum launum sínum. En þar að auki sé ég, að hann er settur á 11655 kr. laun hjá ríkissjóði. Ég veit ekki, hvort ráðh. veit um þetta, en þetta sýnir nú þessi skrá.

Ef athugaðar eru hinar merkilegu stofnanir, fjárhagsráð, viðskiptanefnd og skömmtunarskrifstofan, þar sem starfa á annað hundrað manna, verður maður satt að segja nokkuð undrandi yfir því, sem á sér stað um launagreiðslur. Einn er framkvæmdastjóri hjá ríkisstofnun og hefur þar 33 þús. kr. rúmlega, en svo er hann hjá einni þessari stofnun og þefur þar 42 þús. kr. Nú spurði ég, hvernig hann færi að komast yfir allt þetta. Ég fékk að svar, að hann ynni hjá annarri stofnuninni frá 10 til 12 og 2 til 4, en hjá hinni stofnuninni á kvöldin og nóttunni. Þetta getur verið satt, og sjálfsagt er það. En ákaflega kemur okkur það illa fyrir sjónir, að þessi háttur skuli vera hafður á.

Hér er enn eitt atriði, að ýmsir læknar hafa fengið stórkostlegar launauppbætur, langt fram yfir það, sem er ákveðið í launalögum. Ég veit ekki heldur, hvaðan heilbrmrh. og fjmrh. hafa fengið heimild til að greiða þetta. En skrárnar sýna, að svo hefur verið gert.

Þá er hér enn ljóst af þessari bók, að óhemju fé er eytt í háskólann og aðra skóla landsins — sérstaklega þó háskólann í laun til prófdómara. Einn maður, sem er á hæstu launum í landinu af þeim embættismönnum, sem látið hafa af starfi, hefur þannig fengið nær 6 þús. kr., auk þess að vera á fullum launum og greiða ekki lífeyrissjóðsgjald.

Þá sýnir þessi bók, að ýmis gjöld í sambandi við eftirlit skóla, námsflokka, menningarsjóð og menntamálaráð og ýmsar fleiri góðar stofnanir eru meiri en fjvn. hafði gert sér hugmynd um. Ég hygg því, að þessi dæmi nægi til að sýna, að ekki hefur verið unnið fyrir gýg að fá heildaryfirlit yfir þetta.

Hér er síldarútvegsnefnd, sem hæstv. ráðh. er kunnugt um. Ég veit ekki, hvað þetta er mikið starf, en launin eru ekkert smáræði; en mér skilst, að það ekki sé um ákaflega mikið starf að ræða fyrir , þá 5 menn, sem hér eru skráðir.

Þá er greitt sölunefnd setuliðseigna, annað árið 44 þús. kr., en hitt árið 46 þús. Fjvn. þótti þarna einkennilegar upphæðir til manna, án þess að nefnd séu nöfnin hér.

Þá eru aukastörf í viðskmrn. Ég varð ákaflega undrandi að sjá, að greiddar voru einum manni tæpar 17 þús. kr. fyrir vinnu við útflutning gjafapakka. Ég hélt, að það verk hefði haft meiri samúð hjá mönnum yfirleitt en svo, að greiða hefði þurft svo stórkostlegar upphæðir fyrir meðhöndlun þessara gjafa, þegar þjóðin hafði lagt á sig miklar fórnir til að leggja þessar gjafir fram. Hér er líka einn með 8 þús. kr. Og svo er heill hópur af mönnum í sambandi við þetta.

Fjórða dæmið, sem er kannske það allra einkennilegasta, eru rúmar 36 þús. kr. til úthlutunar Renault bílanna, þ.e.a.s. hagamúsanna svonefndu, hvar af einn maður — náttúrlega ágætur flokksmaður hæstv. viðskmrh. — hefur fengið rúm 16 þús. kr. fyrir þetta verk. Ég vildi spyrja hæstv. ráðh., hvaða heimild liggur til þess að taka úr ríkissjóði 36 þús. kr. til svona starfa og hvaða nauðsyn er á því. Þessir vagnar voru fluttir inn í leyfisleysi. Raunverulega hefði átt að taka þá af viðkomandi aðila og láta hann engar tekjur hafa af innflutningnum, en sæta það háum sektum, að ef greiða hefði þurft nokkurn kostnað, hefði kostnaðurinn orðið af honum greiddur. En auk þess er alveg ljóst, að ef þessir vagnar hefðu verið fluttir inn með fullu leyfi, þá var það viðskiptan., sem átti að úthluta, en ekki sérstök n. Hvers vegna var sú nefnd ekki látin gera það? Hvers vegna að greiða rúmar 30 þús. kr. til þessarar úthlutunar? Ég vil spyrja hæstv. fjmrh.: Veit hann nokkuð um þetta? (Fjmrh: hristir höfuðið.) Mér datt það í hug, en þá veit hann nú, að ekki var til einskis, að skráin var samin. Nú er ég viss um, að menn hefðu keppzt um að fá leyfi fyrir þessum vögnum, jafnvel þó að þeir hefðu borgað fyrir 30 þús. kr.

Þá er 5. atriðið. Hér er nefnd, sem að vísu hefur ekki mikla upphæð, en dálitla, og heitir atvinnuleyfanefnd. Ég spyr: Hvað gerir hún? Leyfir hún mönnum að stofna sér til atvinnu eða máske að fara upp á vinnumiðlunarskrifstofu til þess að leita sér atvinnu? Þar eru líka ágætir og vel þekktir flokksmenn einstakra flokka. En n. hefur kostað rúmlega 21 þús. kr.

Hér er eitt dæmi enn. Það er n., sem nefnist öryggismálan. Ég veit ekki betur, en haft sé eftirlit með vélum, verksmiðjum, bílum og skipum. Hvaða öryggis á hún þá að gæta? Formaðurinn er með 9 þús. kr. laun. Nefnd, sem hefur kostað 60 þús. kr., en ekkert gagn verið að.

Þetta er nægilegt úr þessari bók til að sýna, að það er ýmislegt, sem kemur fram, þegar að er gáð.

Þá kemur 3. Mósebók. Í atvinnudeildinni er heill hópur í n. Ég veit ekki til hvers, en það er svo langur listi, að ég nenni ekki að fara yfir hann. En í sambandi við atvinnudeildina er einn maður, sem hefur full laun, 32 þús., og í annarri stofnun hefur hann nærri 19 þús. kr. laun. Nú spurði ég forstjórann þar, hvernig á þessu stæði, og tjáði hann mér, að sig varðaði ekkert um aðalstarf hans, en væri ánægður með vinnu hans hjá sér og sannfærði mig um, að svo væri, en hvað þá um hinn húsbóndann, ef hann vinnur alltaf dyggilega fyrir þennan? Hvað þá um atvinnudeildina? — Ég vil þá koma að því atriði vegna ádeilu, sem komið hefur fram, og hér hef ég bréf, sem hefur borizt frá einum starfsmanni við atvinnudeildina, og vil ég leyfa mér að lesa 4. lið þess með leyfi hæstv. forseta: „Aðalástæðurnar fyrir því, að Atvinnudeild háskólans virðist óeðlilega kostnaðarsöm, eru:

a) Ábyrgðarleysið. Í framkvæmd virðast allir sérfræðingar hafa rétt til að gera innkaup í nafni stofnunarinnar og gera ýmsar kostnaðarsamar framkvæmdir.

b) Starfsmönnum oft falið af háttvirtri ríkisstj. að vinna störf, sem ekki koma stofnuninni við, án þess að stofnunin fái endurgreidd laun þeirra og húsaleigu (þ.e. stofnunin tapar vinnukrafti (tekjum), en hefur sömu útgjöld).

c) Ekki nægilegt eftirlit með vinnuafköstum.“

Ég hygg, þar sem bréfið er undirritað af gjaldkera stofnunarinnar, að það sé nægilegt til að sýna, að ég hef ekki farið með neitt fleipur í sambandi við gagnrýni á þessa stofnun og að nauðsynlegt er að taka hana til athugunar, svo að verkin gangi ekki eins og hér hefur verið lýst.

Þá er hér enn ein athugasemd, og veit ég, að hæstv. ráðh. er kunnugt um, að hann hefur mann í þjónustu sinni, sem kominn er í um 60 þús. kr. laun. Hann vinnur fyrir 31 þús. og hefur auk þess 25 þús. fyrir önnur störf. Ég vænti þess, að hæstv. ráðh. athugi, hvort ekki megi samræma þessi störf, því að þau eru mjög skyld. Ég vil ekki nefna hér nein nöfn.

Hér er enn ein n., sem nefnist veiðimálan. Ég var ásakaður í Ed. fyrir að skera niður fé til þeirrar starfsemi. Ég sé ekki þörf á að greiða 500 kr. til hvers nefndarmanns.

Þá vil ég nefna eitt enn, það verður síðasta dæmið: Ég varð undrandi yfir að sjá, að skipaðir hafa verið nm. til aðstoðar við öskufallssvæðið, og fær hver nm. 5 þús. kr. í laun. Ég hélt sannast að segja, að menn þeir, sem urðu fyrir tjóni af öskufallinu, hefðu notið meiri samúðar en það, að farið væri að reikna slíka aðstoð til þeirra.

Listi þessi, sem ég hef nú lesið úr, er ekki á minni ábyrgð, en það er á minni ábyrgð, hvort ég hef lesið rétt. Ég vil benda hæstv. ráðh. á, að það gæti orðið ný tekjulind að flokka niður á þessum lista og gefa hann síðan út. Hann yrði áreiðanlega metsölubók á Íslandi, mundi meira að segja seljast betur en skattskráin, og held ég nú, að ég hafi svarað því, sem minnzt var á starfsskrána.

Hæstv. ráðh. sagði, að mér hefði orðið tíðrætt um þær 20 millj., sem fjárlögin hefðu hækkað frá því 1948, og einmitt af því, að hann dvaldi nokkuð við þetta, þykir mér rétt að taka þetta nokkuð til athugunar, svo að hann sjái, að skoðanir okkar eru ekki ólíkar. Hann reiknaði eftir öðrum leiðum og taldi, að munaði 15 millj., en hann tók öll gjöld, en ég tók öll rekstrarútgjöld. Ekki er rétt að taka öll gjöld, því að hann ræður ekki við þau, en hann ræður við rekstrargjöld, mannahald og annað slíkt, og það gagnrýndi ég. Og ég hef farið í gegnum skýrslu þá, sem n. gaf hæstv. ráðh. í vetur, og fundið, að tölur hennar eru alveg réttar. Þó er ekki hægt að flokka það allt undir útþenslu, t.d. vexti. Þó eru þeir að nokkru leyti afleiðing af útþenslunni, þar sem ríkið hefur þanið út starfsemi sína og tekið ýmislegt frá einstaklingum, þar sem það hafði verið betur rekið. — Hæstv. ráðh. sagði, að hann hefði gert grein fyrir hækkuninni á 8. og 9. gr. Ég vil benda hæstv. ráðh. á, að við vissum um ástæðurnar til hækkunar, en það að vita um orsakirnar er ekki það sama og viðurkenna þær. Og við töldum ekki rétt að halda slíku áfram. — Hæstv. ráðh. sagði, að hækkunin á 10. gr. væri ekki rúmar 300 þús., heldur tæpar. Þessi mismunur kemur af því, að hann reiknar með heildarkostnaðinum, en við með auknum kostnaði við mannahald og beinan rekstur. En ég vil benda hæstv. ráðh. á það, að sé of lágt áætlað, verður að fá hækkun á því, en fjvn. álítur að ekki sé of lágt áætlað, því að hér er um ákveðnar upphæðir að ræða, sem Alþ. samþ. og ekki má fara fram úr, nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi. (Fjmrh.: Er öll n. sammála um það?) Að mestu leyti. En eins og ég gat um áður, voru að vísu raddir uppi um það, að ekki væri hægt að ákveða fjárlög, þar sem tekjur brygðust stundum. En það er nauðsynlegt að fara ekki fram úr l., nema brýna nauðsyn beri til, og það er ekki hægt nema safna skuldum. Hver ráðh. verður því að segja áður en fjárl. eru samþ., hvort hann treystir sér til að reka sitt ráðuneyti fyrir þá upphæð, sem því er ákveðin, geti hann það ekki, verður hann annaðhvort að fá framlagið hækkað eða segja af sér. Það er ekki hægt að fá festu í fjárl., nema svo sé, og sé eytt meira en fjárl. heimila, missist algerlega allt vald á þeim. Ég viðurkenni því ekki, að gjöld séu hærri en áætlað er í fjárl., og tel það hreint framkvæmdaratriði hæstv. ríkisstj. Þetta er kjarni málsins, og þessu verður að breyta, og ef halda á áfram að hafa það þannig, að ríkissjóður geti greitt tugi millj. fram yfir það, sem ákveðið er í fjárl., án þess að afla tekna á móti, þá er ástæðulaust að vera að semja fjárl., sem ekkert er farið eftir. Í sambandi við 10. gr. hygg ég, að hafi fallið niður 50 þús. kr. tekjur af innflutningsgjaldi, og skal ég athuga það fyrir 3. umr. — Í sambandi við 3. gr. sagði hæstv. ráðh., að rangt væri að taka hana til samanburðar. Ég get ekki látið mér detta í hug, að ekki sé hægt að taka óhófseyðsluna í útvarpinu til samanburðar. Er ekki eðlilegt, að fjvn. geri athugasemdir við þetta. Þetta er um hækkun á rekstri ríkisstofnunar, en þetta er ekki aðeins í ríkisskrifstofum, heldur ríkisstofnunum almennt, og ég veit, að hæstv. ráðh. verður okkur þakklátur, ef við getum fært þetta nokkuð niður. — Ég hefði nú viljað svara hv. þm. N-Ísf. nokkrum orðum um útvarpið og menningu blaðamanna, og vildi ég óska, að hæstv. forseti vildi láta athuga, hvort hann er í húsinu, þar sem ég get ekki látið honum ósvarað. — Þá sagði hæstv. ráðh., að hækkunin á 11. gr. stafaði að mestu af verðlagsmálum. Þetta er rétt. Verðlagsmálin og eftirlit með þeim kosta geysimikið og eru auk þess að kyrkja allt framtak í þjóðinni. Er óskiljanlegt, hvernig hæstv. ríkisstj. lætur þessa stofnun þenjast út nú með fallandi tekjum. Hún þenst svo út, að hún kostar nú nær 4 millj. og þar starfar á annað hundrað manns. Og ef allur sá listi yrði birtur, þá mundi gremjan margfaldast, þegar sæist, hvaða laun þar eru greidd. Þau eru ekki svo vinsæl mörg þau verk, sem þaðan koma, og væri hægt að koma því öllu miklu betur og ódýrar fyrir en nú er. Þá ræddi n. um málið við hæstv. viðskmrh., og sagðist hann vera að athuga frv. með breyt. fyrir augum. Fjvn. lagði til í tilefni af því, að skorinn yrði niður kostnaður um 2 millj., og spurði hæstv. ráðh., hvaða ráðstafanir yrði að gera til þess, að það gæti staðizt og að því meira sem færi í þetta, því minna færi í dýrtíðarsjóð, þar sem afgangurinn af leyfisveitingum rennur í þann sjóð. Það er nauðsynlegt, að hæstv. ríkisstj. athugi, hvort ekki sé hægt að draga úr þeim kostnaði, sem þjóðin vill ekki viðurkenna, að hún eigi að greiða. Þá sagði hæstv. ráðh. í sambandi við húsaleigun., að þar væri of lágt áætlað. Ég get upplýst það, að þegar fjárl. voru afgreidd 1948, var þetta ákveðið 100 þús. kr., en með sérstöku samkomulagi við hæstv. viðskmrh. var þetta hækkað í 150 þús., en bak við það var loforð frá hæstv. ráðh., að þetta yrði ekki hækkað, og ráðh. ræður, hve mikið er greitt. Ég held, að þegar hv. þm. Ísaf. var ráðh., þá hafi þessi laun hækkað. En við sáum enga ástæðu til að halda þessari óvinsælu n. uppi með þessum kostnaði, sízt eftir að hæstv. ráðh. hafði staðið tvívegis á móti, að þessu væri breytt hér á þingi, og er ég því á móti, að þetta framlag sé hærra en þingið ákveður.

Út af 12. gr. sagði hæstv. ráðh., að hækkunin, 323.000 kr., stafaði mest vegna Landsspítalans, Klepps og fæðingardeildarinnar, og er þetta allt upplýst, og sá n. enga ástæðu til að gagnrýna það. Ég vil benda hæstv. ráðh. á það, að þegar ákveðið var að breyta dýrtíðarlögunum í árslok 1947, sem olli meiri kostnaði á hvern sjúkling á þessum sjúkrahúsum, þá hefði verið sjálfsagt að hækka daggjöldin af hverjum sjúklingi, og þurfti ekki að leita til Alþ. með það. Þetta átti ráðh. að gera, og ef það hefði ekki verið gert, þá bar að leita til Alþ. um heimild í fjárl. 1948. Það er sannarlega á valdi hæstv. ríkisstj., að kostnaður verði ekki meiri en ákveðið er í fjárl. Sparnaðarn. benti á, að nauðsynlegt væri að hækka daggjöldin á sjúkrahúsum, þau væru miklu lægri en annars staðar, og þá mundu þau bera sig. Hið sama er að segja um fæðingardeildina. Hvaða vit er að hafa kostnaðinn minni en ríkið greiðir fyrir hvert fætt barn? En ríkið greiðir 600 kr., og nú er látið greiða minna á sjúkrahúsi, og er sjálfsagt að fara í þá upphæð, sem ríkið greiðir. — Þá sagði hæstv. ráðh., að 13. gr. ætti að hækka og nýr liður bættist við, sem áður var í 3. gr., sérleyfisbifreiðar, en þar koma tekjur á móti. Nú segir hæstv. fjmrh., að rangt sé að taka þetta sem útþenslu, en þetta er einmitt útþensla af allra versta tagi, og það mun ég ræða nánar við hæstv. viðskmrh. við 3. umr. Ferðalög eru nú rekin miklu verr en áður, meðan einstaklingar sáu hér um þau mál, og ríkið hefur tapað um einni milljón króna á því. Hér er nýr liður til Ferðaskrifstofunnar, og er það ekki útþensla, þótt eitthvað geti komið síðar á móti þessum gjöldum? En enn þá þarf a.m.k. mörg hundruð þús. kr. til að þetta standist. Ég er á móti þessari útþenslu, enda hafði n. lagt til að taka Ferðaskrifstofuna alveg út af fjárlögum.

Framlag til flugmála hefur hækkað um 600 þúsund, og það er útþensla. N. gerir tillögur til sparnaðar í því efni, m.a. um sparnað í mannahaldi.

Í sambandi við strandferðir sagði ráðherrann, að framlag ríkisins til þeirra hefði lækkað um 450 þús. kr. En þar blandar hann saman tveimur óskyldum liðum, og er hér þvert á móti um beina útþenslu að ræða, því að 587 þús. kr. eru vanreiknaðar til flóabátanna, og þarf að taka þá fjárhæð upp. Þegar það er tekið með, er þetta ekki langt frá því, sem ég hef sagt. Þegar mþn. athugaði strandferðamálin á sínum tíma, lá fyrir henni áætlun frá Skipaútgerð ríkisins. Samkvæmt þeirri áætlun var lagt til að byggja eitt strandferðaskip og tvö smærri skip, og reiknaði forstjórinn með ágóða en ekki tapi af rekstri þessara skipa. Hann fullyrti, að allt tap ríkisskipa væri Súðinni að kenna, og sagðist skyldi sýna, að hægt væri að reka nýju skipin með hagnaði. Nú eru nýju skipin komin, en annað þeirra var látið sigla milli landa í sumar með nokkra útlendinga og tapaði stórkostlegu fé, en Skipaútgerðin hefur aldrei fengið leyfi mþn. til að byggja skip til slíkra nota. Á fjárlögum er áætlað 500 þús. kr. tap á hvort skip og miklu hærra tap á smærri skipunum. Nú væri gaman að bera þessar staðreyndir saman við alþingistíðindin, það, sem áður hefur verið sagt hér um þessi skip, á meðan þau voru ekki farin að sigla. Ég held, að full ástæða væri til fyrir ráðh. að athuga, hverjar ástæður liggja til þess, að ekkert hefur staðizt, sem lofað var um afkomu þessara skipa. Það þarf að finna út, hvar meinið liggur, og laga það, því að ég er viss um, að hægt er að finna þetta mein. Ráðgert var að láta vöruflutningabátana hverfa úr sögunni með komu nýju skipanna. En hvað hefur skeð? Bátunum hefur verið haldið úti áfram til að tapa á þeim hundruðum þúsunda, á meðan bezta strandferðaskipið tapaði öðrum hundruðum þúsunda króna í millilandaferðum. Og svo er það rekstur Súðarinnar. Ég vil spyrja hæstv. ráðh., hvort rekstur þessa skips geti ekki haft í för með sér stórkostlegt tap á þessu ári. Súðin er nú í siglingum til útlanda, og er ákaflega hæpið, að ágóði verði á þeim rekstri. Og hver á þá að greiða tapið, ef það verður? Það þarf að athuga, hvort ekki er rétt að höggva Súðina niður eins og Lagarfoss, til þess að forðast með því stórtap, eða þá að sökkva henni í sjó.

Hæstv. forseti hefur tilkynnt, að hæstv. viðskmrh. væri veikur, og ætla ég því að verða við tilmælum um að ræða ekki að þessu sinni sérleyfisferðirnar og lánið úr orlofssjóði. Ég geymi það til 3. umr., ræði þá við hæstv. viðskmrh., því að ég vil ekki liggja undir ásökunum, sem ranglega eru á mig bornar.

Ég kem þá að hæstv. fjmrh. og byrja á flugmálunum. Hæstv. ráðh. sagði, að þrátt fyrir hækkun til vega hefði n. lagt til, að framlag til flugmála lækkaði. Allar till. n. miða til lækkunar. En varðandi rekstur vildi n. ekki eiga frumkvæðið að því að skera niður viðhald flugvalla og ekki draga úr öryggisþjónustunni í sambandi við miðunarstöðvar og þess háttar. En þó hefur verið skorið niður á 20. gr. Þeir vildu fá sem mest eins og aðrir, en ég held þeir teldu ekki goðgá, þótt dregin væri 1/2 milljón króna frá þessu. Það standa hins vegar fyrir dyrum stórkostlegar framkvæmdir, t.d. á Akureyri. Þetta stafar ekki af andúð alþm. í n. Aðrir þm. geta og hækkað þetta framlag, ef þeim sýnist, og fái n. nýjar upplýsingar, getur verið, að hún verði ekki á móti slíkri hækkun. Hæstv. fjmrh. sagði, að á 14. gr. væru vanreiknaðar 3 millj. kr., dýrtíðaruppbót á laun kennara. Það er rétt. En því setti hæstv. menntmrh. þetta ekki inn í fyrra. Og svo er annað. Hefur stj. athugað, hvort ekki sé til umræðu að breyta því fyrirkomulagi, að ríkið greiði dýrtíðaruppbót á laun kennara, en sveitarsjóðir aðeins laun þeirra. Hitt er svo einkennilegt, að hæstv. menntmrh. skyldi gleyma að taka þessar 3 milljónir með í reikninginn.

Hæstv. fjmrh. sagðist vísa gagnrýni viðvíkjandi 15. gr., atvinnudeildinni, veðurstofunni, húsameistaraskrifstofunni o.fl., til hæstv. atvmrh. Hafa ekki komið fram óskir frá hæstv. atvmrh. um að hækka þetta framlag til atvinnudeildarinnar stórkostlega? N. sér sér ekki fært að taka það til greina, en ber fram þá ósk, að hv. þm. fylki sér um að lækka framlag til þessarar stofnunar.

Í sambandi við 16. gr. ber það á milli okkar nm. og ráðh., að við nm. tökum eingöngu reksturinn, en ekki lögboðna styrki, því að þá koma allt aðrar tölur út, t.d. í sambandi við Búnaðarfélag Íslands. Það hafði hækkað um 115 þús. Þegar n. ræddi þetta við búnaðarmálastjóra, var hann raunverulega eini forstjórinn hjá ríkisstofnununum, sem reyndi að koma með tillögur til lækkunar á útgjöldum ríkisins vegna sinnar stofnunar, og það með góðum árangri. Ef n. hefði alls staðar mætt þeim skilningi, hefði annað orðið ofan á.

Þá sagði hæstv. fjmrh., að hann teldi, að n. hefði átt að gera tillögur til gerbreytingar á 18. gr. Hann hlýtur að viðurkenna, að ekki er hægt að gera þá kröfu til þingnefndar, að hún gerbylti eða breyti greininni. Það verður að gera þá kröfu, að ráðh. láti gera slíkt á milli þinga, ef hann telur þess þörf. Fjvn. hefur ekki um áratugi gert grundvallarbreytingu á greininni, en litið svo á, að þeir, sem komnir eru inn á hana, verði þar áfram. Mun vera ákvörðun hæstv. ríkisstj., að sá styrkur, sem er eftirlaun á 18. gr., skuli dragast frá tryggingarupphæðinni, ef hún er hærri, en ef eftirlaunin eru hærri, þá fellur styrkurinn niður. Þetta tel ég mjög óheppilegt. Ef maður, sem er kominn yfir aldurstakmarkið, hefur 900 kr. í eftirlaun og 900 kr. frá tryggingunum, þá er annaðhvort alveg tekið af honum. Ég vænti þess eindregið, að hæstv. ráðh. taki þetta til athugunar fyrir 3. umr. Meðal annars eru nokkrar gamlar og bláfátækar prestsekkjur, sem hvað eftir annað hafa kvartað um það við okkur, að þetta skuli vera dregið frá styrkupphæðinni. Sem sagt vona ég, að þetta verði tekið til athugunar, því að þetta getur engu munað fyrir tryggingastofnunina. Ég benti á ósamræmið í 18. gr. í framsöguræðu minni, og ég tel nauðsynlegt að taka þá gr. til rækilegrar athugunar. Hins vegar tel ég óheppilegt, að fjvn. geri það. Það var fyrir nokkrum árum, að einn embættismaður átti að takast inn á þessa grein, og lagði n. þá til, að hann fengi 60% laun, en þá tók einn ráðh. sig til og safnaði um sig liði hér á Alþingi og kom því í gegn, að maður þessi var tekinn inn á greinina með fullum launum. Síðan hefur hann setið þarna á fullum launum, en auk þess hefur hann fengið greiðslur úr ríkissjóði fyrir ýmis önnur störf, og þá geta menn séð, hversu erfitt það væri fyrir fjvn., ef hún ætti að meta hvern og einn þeirra, sem heyra undir þessa grein, en raunverulega ætti enginn að vera þar á fullum launum. Þá er hér einn maður á fullum launum, sem ráðh. vill ekki taka út af greininni, en það er Jóhann skipherra. Ráðherra hélt því fram, að þetta væri af því, að hann hefði verið rægður frá starfi. Ef svo er, þá ber að láta þá menn, sem rægðu hann, sæta ábyrgð fyrir það, en þrátt fyrir það á hann ekki heima á 18. gr. Hins vegar ef maðurinn er veikur, þá á hann kröfu á lífeyrissjóð, að upphæð 9 þús. kr., en ekki kröfu á fullum launum, 12 þús. kr. grunnlaunum úr ríkissjóði, og skil ég ekki hvers vegna ríkissjóður ætti að vera að taka þennan kostnað á sig. Sé hann aftur á móti fullfrískur og fær um að sinna starfi, skal athuga, hvort rógur hefur hrakið hann úr starfi, og setja hann þá í það aftur.

Ráðh. segir, að hækkun útgjalda hafi alls ekki farið yfir 15 millj. kr., í stað 20 millj. kr. Ég skal ekki ræða nánar um það, en vænti þó þess, að ráðh. sjái, að nokkuð er til í því, sem ég hef haldið fram. Ráðh. segir, að áætlunin fyrir 1948 hafi verið of lág. Ég hef þegar svarað því, en vil geta þess, að ég vil leggja sérstaklega áherzlu á, að fjárl. verði látin standast, því að annars er ekkert gagn í fjárlögum. Með þessu á ég þó alls ekki sérstaklega við þennan hæstv. ráðh. Þetta hefur því miður gengið svona í mörg ár á undan honum. Þá sagði ráðh. hér eitt, sem ég get ekki látið ómótmælt. Hann lítur svo á, að þar sem aðeins 6 millj. kr. séu teknar til sparnaðar í stað þeirra 20 millj., sem n. gat um, þá viðurkenni n. þetta þar með. Þetta er alger misskilningur. N. viðurkennir ekki þá hækkun, sem átti sér stað, en vildi heldur reyna að lækka þetta smátt og smátt, þar sem það lá líka í augum uppi, að ómögulegt yrði að lækka um alla upphæðina nú í einu, en ber að stefna að síauknum sparnaði. Þetta er því síður en svo nokkur blessun yfir þá útþenslu, sem þarna hefur átt sér stað. — Um það var mikið rætt í n., hvort lækka skyldi framlög til verklegra framkvæmda jafnmikið og sett hafði verið í frv. Það er ekki hægt að ásaka ráðh. fyrir þá upphæð, sem er í frv., því að hann vissi, að þingið mundi alltaf hækka þessa upphæð, hver svo sem hún væri. Umræðurnar innan n. gengu út á það, hvort halda ætti fast við að fella niður næstum allar verklegar framkvæmdir, eins og hv. 5. þm. Reykv. vildi, eða ráðast á útþensluna á rekstrarútgjöldum. Meiri hl. taldi ekki fært að skera niður verklegar framkvæmdir. Ef hægt hefði verið að lækka útþensluna um 20 millj. kr., þá hefði verið stætt með framlag til verklegra framkvæmda, en nú er ekki öruggt með 6 millj. kr. lækkun. Þó taldi meiri hl. n. ekki vera hægt að skera niður verklegar framkvæmdir, því að hafnir, vegir, brýr o.þ.u.l. eru blátt áfram skilyrði fyrir því að nokkrar tekjur komi í ríkissjóð. Ég skal benda fjmrh. á, að seinast í dag voru hjá mér menn, sem vita ekki, hvernig þeir eiga að leysa vandamálin í sambandi við hafnarmálin, af því að ekki hefur verið hægt að ljúka þeim með fjárveitingu síðasta árs, og auk þess hafa þessi mannvirki verið þannig undirbúin af hálfu hins opinbera, að þau hafa ekki þolað þau átök, sem þau áttu að standast. Nú þegar hefur verið lagt í þessar framkvæmdir 800 þús. kr., og þar af hefur ríkissjóður lagt fram 400 þús. kr., en nú er allt í voða, ef ekki fást 300 þús. kr. til að ganga frá verkinu. Ríkissjóður sér, sér aðeins fært að leggja fram 60 þús. kr., en ef fé fæst ekki til að tryggja áframhald verksins, getur farið svo, að það, sem þegar hefur verið unnið, fari til ónýtis og ríkissjóður megi gera svo vel að leggja fram á ný 400 þús. kr. Það hefði kannske mátt draga enn meir úr skólabyggingum og opinberum byggingum, þar sem þar er ekki um að ræða framkvæmdir, sem veita tekjur í ríkissjóð, en þó gat svo háttað, að hálfgerðar byggingar lægju undir skemmdum, ef ekki hefði fengizt fé til að halda áfram með verkið. Þetta var sjónarmið meiri hl. n., en þar með er ekki sagt að n. hafi ekki getað skjátlazt. Hæstv. ráðh. sagðist vilja taka það fram, að ef þær till., sem n. gerir, fari í bága við lög, þá taki hann þær ekki alvarlega. Ég vil einmitt taka það fram, að í slíku tilfelli ber ráðh. annaðhvort að fá breytingu á lögunum eða bráðabirgðalög. Ég tel t.d., að hæstv. landbrh. hafi á s.l. ári átt að fá samþykkt bráðabirgðalög til að fella niður 80 þús. kr. framlag til ríkissjóðs.

Þá minntist ráðh. á eftirlitíð, og var að heyra, að honum hefði skilizt, að ég vildi aðeins hafa eftirlit með rafmagnsveitum. En ég legg áherzlu á, að með hverju því bæjar- eða sveitarfélagi, sem kemst í þrot og ekki getur staðið undir skuldabyrði sinni, verði haft strangt eftirlit. Og það eftirlit á ekki aðeins að ná til þessa eina fyrirtækis, sem skuldirnar stafa af, heldur á að vera strangt eftirlit með öllum hreppsmálunum. Annars sýnir listi sá, er hæstv. ráðh. las hér upp, að ekki þýðir að taka þessi mál neinum vettlingatökum, þar sem skuldir þessar nema nú um 13 millj. kr. (Fjmrh.: Er lagaheimild fyrir þessu?) Er ekki lagaheimild fyrir því, að menn geti gengið að skuldunaut sínum, sem ekki getur borgað. Það hefði ég haldið. Annars hef ég talað um þetta við skrifstofustjórann í félmrn., og taldi hann þetta sjálfsagt. Þá hef ég einnig talað við nokkra oddvita þeirra hreppa, sem skulda, og þeir hafa sagt, að sér þætti þetta miklu betra, enda veit ég satt að segja ekki, hvernig fer, ef ný lán bætast ár frá ári ofan á þessar 13 millj. kr. og ekkert eftirlit er haft með rekstrinum. Þá fer svo að lokum, að ábyrgð ríkissjóðs verður ekki meira virði en gulu seðlarnir, sem hæstv. viðskmrh. gaf einu sinni út í Hafnarfirði. Sumt af þessu fé hefur verið veitt til ríkisfyrirtækja, en er hægt að ætlast til, að þegnarnir greiði stórfé til t.d. síldarverksmiðja ríkisins, sem hafa lagt fleiri millj. kr. í vafasamar ráðstafanir? Nei, slíkt verður að koma fram í hækkandi afurðaverði hjá fyrirtækinu sjálfu, og svona fyrirtæki verða blátt áfram að standa undir sér og jafna ágóðanum frá góðu árunum yfir á lakari árin.

Þá benti ráðh. á yfirgang Landssímans, og ég verð að segja það, að ég varð alveg undrandi, þegar ég heyrði, hvernig forráðamenn hans hafa hagað sér, og sá þá betur en nokkru sinni fyrr, að hér duga sannarlega engin vettlingatök. Ég skil bara ekki, hvernig þessir menn leyfa sér að fara þannig með fé ríkisins án þess að tala við ráðh. Ég hef að vísu heyrt, að Landssíminn þættist vera sérstakt rn., en hæstv. ráðh. ber að hafa eftirlit með þessu og vald til að stöðva þetta. Það virðist ekki geta verið leyfilegt, að ráðh., sem ekki er fjmrh., taki út stórfé, eða eins og hefur verið gert hjá útvarpinu, 500 þús. kr., án undirskriftar . ráðh., og það er ekki hægt að una við, að slíkt sé látið viðgangast. Það er því tímabært, að ráðh. setji um þetta strangar reglur, sem ekki verður gengið fram hjá. Ráðh. minntist á, að árið 1946 hefðu útgjöldin farið 46 millj. kr. fram úr áætlun, svo að þetta væri ekki nýtt fyrirbrigði. Það er alveg satt, en þá voru tekjurnar líka langt um meiri fram yfir áætlun en nú er, og nú verður hver eyrir, sem fer fram úr gjaldaáætlun, að takast sem lán hjá Landsbankanum með þungum vöxtum.

Ég er alveg sammála hæstv. ráðh. um það, að nauðsynlegt sé að afgreiða hallalaus fjárlög. Þingið hefur nýlega afgr. hér stórmál, sem öll þjóðin fylgdist með. Ég trúi ekki öðru en að þeir menn, sem tóku á sig ábyrgðina af því máli, vilji standa saman um að afgreiða hallalaus fjárlög, þótt það kosti ef til vill einhverjar fórnir, og ég vænti þess, að það verði engir erfiðleikar fyrir ráðh. að fá fjárlögin samþ. hallalaus. En til þess að svo geti orðið, verða þm. annaðhvort að draga til baka till. sínar og samþ. brtt. fjvn. eða þeir verða að útvega ríkinu nýjar tekjur, því að ef allar hækkunartill. þm. verða teknar til greina og lækkunartill. n. verða felldar, þá vantar ríkissjóð um 60 millj. kr. til þess að standa undir því.

Ráðh. spurði, hverjir það væru, sem ekki vildu, að tekjurnar af viðtækjaverzlun ríkisins rynnu í ríkissjóð. Allir vinstri flokkarnir vilja, að það verði ekki gert. Annars tel ég, að ráðh. ætti að bera þetta undir þingið, til þess að hann þurfi ekki að vera í vafa um, hverjir vilja láta þetta fé renna í vafasaman rekstur útvarpsins. Það er einnig annað, sem sannar þetta, og það er, að ríkissjóður styrkir ríkisútvarpið með auglýsingum, sem skipta hundruðum þús. kr., en þessu var ekki gert ráð fyrir, þegar l. voru sett. Það eru engin rök fyrir því, að útvarpið eigi að halda öllu þessu fé og eyða því. Þessir peningar hafa oft farið í mjög vafasöm útgjöld, en ég mun ekki fara hér út í þá sálma.

Eins og ég hef getið við hæstv. forseta,. þá mun ég geyma þann kafla ræðu minnar, sem snýr að hæstv. samgmrh., þar til við 3. umr.

Ég mun þá byrja á að svara einstökum þm., sem hafa að meira eða minna leyti gagnrýnt störf fjvn. og borið fram ýmsar brtt. til hækkunar. Það er þá hér fyrstur á blaði hv. þm. Dal. Hann ber fram eina brtt., sem prentuð er á þskj. 481. Það er út af fyrirgreiðslu. Hann er nú ekki við, en vill ekki einhver skila til hans, að fjvn, hafi ekki viljað fallast á þessa till. Það réð ef til vill mestu, að vart er hægt að halda, að bændur hefðu ekki dug í sér til þess að bjarga þessu á eigin spýtur, en hér er ekki um að ræða nema 3 þús. kr. framlag. Einnig ber þessi hv. þm. fram till. um að veita 25 þús. kr. til Staðarfellsskóla, á þskj. 481. Fjvn. leit svo á, að eðlilegast væri, að Alþingi héldi þeim úthlutunum áfram, sem verið hefur, og upphæðum til þessa málefnis hefur ekki verið skipt. N. vildi því ekki fara að taka hér upp neina nýja siði, að veita 25 þús. kr. til útihúsa að Staðarfelli. Hún lætur því þetta afskiptalaust og treystir sér ekki til að mæla með því. Hv. þm. sagði, að n. hefði á sama tíma og hún hafi fellt slíka till. sem þessa samþ. að veita 50 þús. kr. til tveggja fjósa á Hvanneyri og Hólum. Það er nú nokkuð annað að byggja peningshús á ríkisjörð, þar sem ríkið rekur búnaðarskóla, eða byggja peningshús fyrir bændur. Það eru ætlaðar 200 þús. kr. á 11. gr. til bygginga á prestsjörðum. Ég tek það ekki sem nein rök, að hægt væri að réttlæta þessa fjárveitingu með því, að á Staðarfelli sé skóli. Það skapar einmitt bóndanum tækifæri til frekari tekna að selja mjólkina beint úr fjósinu í skólann. Það er meir en aðrir bændur hafa aðstöðu til, a.m.k. flestir hverjir. Annars minntist hv. þm. einnig á það í ræðu sinni, að hann hefði verið óánægður með fyrrverandi fjárveitingar til brúarbygginga í hans héraði. Hann sagði einnig, að það væri aftur á móti veitt fé til fjögurra nýrra brúa í kjördæmi fjvn., eins og hann komst að orði. Hann sagði einnig, að hér væri í frammi höfð vélamennska og hrossakaupmennska og nm. reyndu að draga fé til sinna kjördæma, hver sem betur gæti. Hv. þm. hefur nú lengi átt sæti sjálfur í fjvn., og ætti hann því að vera störfum hennar og þeim reglum, sem hún starfar eftir, kunnugri en margur annar af hv. alþm. Vitaskuld má að sjálfsögðu ýmislegt að störfum n. finna eins og öðrum mannanna verkum, en ef störf n. eru athuguð með nokkurri sanngirni, þá er ekki hægt að finna neitt það, sem benti til þess, að hrossakaup né nein vélamennska, eins og hv. þm. komst svo vel að orði, hefði átt sér stað. Hér var um að ræða till. frá vegamálastjórninni, en í fyrra var nú byggð ein brú í kjördæmi hv. þm. Dal., án þess að nokkur fjárveiting væri fyrir hendi. Þá minntist hv. þm. á framlög til lendingarbóta. Taldi hann það vélamennsku í sambandi við þetta, að ein höfn hefði verið sett á hæstu fjárveitingu, 300 þús. kr. Þar á nú ríkissjóður vangoldnar 900 þús. kr. Ef þessi staður fengi nú hlutfallslega jafnmikið fé á borð við Patreksfjörð, þá er meira vangreitt vegna lendingarbóta á Patreksfirði en annars staðar á landinu. Þessi ummæli þm. særa mig ekki, en ég mótmæli ummælum hans og tel þau ekki vera drengileg. Það kann að vera, að n. hafi eitthvað yfirsézt í sambandi við þessi mál, en það hefur stafað af öðru en sérhagsmunum, eins og þm. vill halda fram.

Ég sé ekki ástæðu til að svara hv. þm. S-Þ. út af grafhellunum hans, og það unga fólk, sem hefði ekki heyrt getið um Hannes Hafstein og Jón Arason, sem hv. þm. minntist á, mun vart þekkja Jón Arason neitt betur, þó hella verði lögð á minnisvarða hans austur í Skálholti.

Út af ummælum hv. þm. Ak., að réttmætt væri, að ríkissjóður legði fram 2/3 hluta til byggingar nýrrar brúar í Eyjafirði sem ríkissjóður hefur áður kostað á móti Akureyrarbæ, þá breytir það engu, þó að bærinn bjóðist til að greiða 1/3 kostnaðar á móti ríkinu. Það er ekki skylda fjárveitingavaldsins að breyta brú á vatnsfalli eða leggja aðra nýja nokkrum metrum ofar eða neðar. Ekki er þetta hvað sízt alls fjarri á meðan fjöldi vatnsfalla er algerlega óbrúaður. Ég fyrir mitt leyti vil ekki taka svona boði. Akureyrarbær ætti að kosta þetta verk sjálfur.

Þessi hv. þm. talaði einnig um framlag til söngkóra, en það erindi hafði nú legið hjá fjvn. Hann sagði, að því hefði verið lofað, að þessi fjárhæð yrði greidd, því hefði verið lofað í fjmrn. Fjmrn. hefur nú enga heimild til þess að lofa neinum framlögum af fjárlögum, en þeir menn, sem kunna að hafa lofað slíku, ættu að sjá sóma sinn í að greiða þessa upphæð sjálfir. Slíkt framferði sem þetta ber ekki vott um mikla ábyrgðartilfinningu. Ef þetta er gert á ábyrgð ráðh., þá er hér sama upp á teningnum. Hann hefur enga heimild til að ábyrgjast fjárútlát nema með samþykki alþm. og fjvn. Ég tel því ekki, að fjvn. né þingið sé bundið slíkum loforðum.

Í sambandi við framlag til leikfélags í Hafnarfirði og framlag til hafnarinnar á sama stað, sem hv. 11. landsk. talaði fyrir, mun ég ekki ræða það fyrr en við 3. umr., þannig að hæstv. samgmrh. sé viðstaddur.

Út af ummælum hv. 2. þm. Skagf. út af vegunum skal ég fara fáum orðum. Er hv. þm. talaði um vegina í sínu kjördæmi, þá færði hann alveg sömu rök fyrir máli sínu og yfirleitt er gert fyrir hverjum óunnum vegi í héruðum landsins. Fjvn. telur slík rök ekkert nýmæli og sá því ekki ástæðu að hækka framlagið til þessa vegar í Skagafirði fremur en annarra vega á landinu. Allir vegir, sem lagðir eru, koma fyrst og fremst að notum við að flytja vörur til og frá markaðsstöðunum, og þótt Skagfirðingar hafi lagt hart að sér við vegalagningarnar, svo sem margir aðrir landshlutar, þá breytir það litlu. Ég vil t.d. benda á, að Suður-Þingeyingar hafa lagt afar mikið fé og kraft í vegalagningar í sínu héraði. Ég bendi aðeins á þetta, en hins vegar get ég líka bent á það, að t.d. Barðstrendingar urðu lengst af fyrir svo mikilli andúð vegamálastjórnarinnar, að þeim var meinað að leggja fé í vegalagningar. Þess vegna er ástandið þar í þeim málum sem nú er og síður en svo gott.

Hv. 1. þm. Árn. ræddi um skóla Árnýjar og um sjóvarnargarð á Stokkseyri. Í þessu sambandi vildi ég spyrja hv. þm., hvernig væri með lóðaafgjöld á þessum slóðum. Ríkið á þarna jarðirnar, og það hefur sums staðar verið leyft, að lóðargjöldin, eða hluti þeirra, væru notuð til að verja landbroti. Þetta hefur t.d. verið leyft í Vestmannaeyjum. Væri því athugandi, hvort ekki mætti setja þetta inn á heimildagreinina, en fjvn. vildi ekki fallast á þessa fjárveitingu að svo stöddu.

Hv. þm. N-Þ. hefur borið fram brtt. og fer fram á 150 þús. kr. til sandgræðslu. Fjvn. hefur margrætt við sandgræðslustjóra um þessi mál, og meðal annars hafði hún rætt það erindi, sem felst í þessari brtt., löngu áður en till. kom fram. Það verður að vera hans að ráða því, hvernig því fé er varið, sem veitt er til sandgræðslu. Ef nauðsyn er á því að stöðva sandfok annars staðar en hingað til hefur verið talin vera brýnust þörfin, þá er vart hægt að taka upp aðra staði, nema Alþingi vilji fallast á að hækka framlagið almennt til þessara framkvæmda.

Út af athugasemd hv. þm. N-M. varðandi viðtækjaverzlunina, þá mun það verða rætt nánar í sambandi við frv., sem mun koma fram í sambandi við það mál.

Varðandi mat á hlunnindum skv. 12 gr., að ég hafi sneitt eitthvað að ríkisskattanefnd, þá er það upplýst, m.a. af landlækni, að hann telur, að mat á hlunnindum starfsfólks við ríkisspítalana sé 500–600 þús. kr. of lágt metið. Mér finnst rétt, að þetta upplýsist, og mér þótti því rétt að benda á þetta. Það er alger fjarstæða að meta þessi hlunnindi ekki hærra. Nú gengur þetta mat frá undirskattanefnd til yfirskattanefndar, og ef ekki er hægt að fá þá menn, sem sæti eiga í ríkisskattanefnd, til að meta þessi hlunnindi með réttu verði, þá verður að gera ráðstafanir til þess, að farið verði til þeirra manna, sem hafa einurð til og kunna að meta þetta rétt. Hv. þm. hélt því fram, að n. hefði samræmt þetta, en svo er ekki. Ríkissjóður tapar á þessu svo nemur hundruðum þúsunda á ári hverju.

Hér á þskj. 481 er hv. 6. þm. Reykv. með till. sínar. Á tölul. 16 leggur hann til, að framlag til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis verði hækkað um 2 millj. kr. Það verður ekki um það deilt, að það mætti nota allt þetta fé í þeim tilgangi og þótt meira væri, en engar leiðir hefur þessi hv. þm. bent á til að afla tekna á móti þeim útgjöldum. Það kemur vitanlega í ljós við atkvgr., hvort hv. þm. sjá sér fært að auka við þetta. Hv. þm. segir, að árangur fjvn. með afgreiðslu frv. sé lélegur. Ég tek nú þessa ásökun með varúð og fyrirvara, því að þessi þm. er nú sem stendur í stjórnarandstöðu, og er ekki nema von, að hann reyni að finna að. Hins vegar verð ég að segja það, að samstarfið við hans flokk í fjvn. hefur verið með ágætum. Hann hafði t.d. allt aðra skoðun á málunum en hv. 1. landsk. þm., sem var á allt annarri bylgjulengd.

Þá sagði hv. þm., að það vantaði 8 millj. kr. framlag til skóla. Í þessu sambandi vil ég benda á það, sem hv. 5. þm. Reykv. sagði, að þetta eru í rauninni ekki skuldir. Hér er aðeins heimild til þess að verja til þessara framkvæmda ákveðinni upphæð á fjárlögum. Sveitarfélögum er alls ekki heimilt að hefjast handa um byggingar skólahúsa, hvenær sem þeim dettur í hug og heimta síðan, að ríkissjóður greiði 2/3 kostnaðar við byggingarframkvæmdirnar. Ef slíkur háttur yrði upp tekinn, mundi fjárveitingavaldið verða tekið af Alþingi í þeim efnum. Það væri svo sem gott, ef hægt væri að greiða þennan kostnað jafnóðum, en það er því miður ekki hægt. Það hefði ekki verið tekin upp þessi stefna nema af því, að skólalöggjöfinni var breytt.

Hæstv. fjmrh. sagði, að allt það, sem ég sagði um véla- og verkfærasjóð ríkisins, væri rangt með farið, og skal ég ekki frekar ræða það á þessu stigi málsins.

Hv. 1. þm. Eyf. er hér með nokkrar till. Hann lýsti því svo, að hann hefði komið með þær svona meira til að sýna þær en hitt, til að vera í samræmi við aðra þm., sem kæmu hér fram með brtt. Hann benti einnig á, að sýnilegt væri, að ekki hefði verið hægt að fá þm. til að gera samkomulag um að takmarka brtt. sínar til aukinna fjárveitinga, sem þó hefði verið þörf og ekki óeðlilegt. Á þskj. 494 er erindi frá hv. þm. Ísaf. Það erindi var hjá fjvn., og ræddi n. það mál mjög ýtarlega, og var landlæknir með n. í þeirri athugun. N. sá sér ekki fært að taka til greina þær óskir, eftir að hafa athugað málið. Það er líka mikið vandamál, sem þarf nánari athugunar við, hvort taka eigi upp þá stefnu að veita fé til viðhalds sjúkrahúsa í landinu. En að fjvn. gat ekki fallizt á þetta, er ekki vegna þess, að hún beri nokkurn kala eða hafi nokkra andúð á Ísafirði. Þessi stefna markast aðeins af getuleysi ríkissjóðs, en það mundi marka alveg nýja stefnu, ef ætti að fara að láta fé til viðhalds sjúkrahúsanna.

Þá ræddi hv. þm. um hafnarframlagið til Ísafjarðar. Hann vildi fá skýrar fram, eftir hverjum reglum fjvn. starfaði í þeim efnum. Við fengum nákvæman lista frá vitamálastjórninni, þar sem gefið var upp, hve mikið væri vangreitt úr ríkissjóði til hinna ýmsu hafna, svo og áætlun um, hvað gera þyrfti á árinu 1949, og þar eru einnig gerðar till. um, hvernig skipta skuli þeim 4 millj. kr., sem ætlaðar eru til framkvæmdanna. Eftir þessari skýrslu mun Ísafjörður eiga hjá ríkinu um 300 þús. kr. Ég veit ekki, hvort þessi upphæð er rétt, því að áður hafa komið reikningar frá ýmsum höfnum, og þar eru aðrar niðurstöðutölur heldur en þær, sem komu frá vitamálastjórninni. Ég gat um það áður, að það væri ein höfn, sem átti hjá ríkinu 900 þús. krónur og ætlaði að vinna fyrir 1.200 þús. krónur. Það var almennur skilningur um það í fjvn., að það bæri að setja slíka höfn í hæsta flokk, einkum þegar búið er að kosta á 4. milljón í þessa höfn. Þá var önnur höfn, Akraneshöfn, sem er talin eiga hjá ríkissjóði 5 millj. kr., en ætlar að vinna fyrir 1.200 þús. á þessu ári. Síðan þótti einnig rétt að setja einu landshöfnina í þennan flokk, en flokkurinn var settur 300 þús. kr. Næsti flokkur var síðan ákveðinn niður í 200 þús. skv. till. n. Það urðu þær hafnir, sem áttu einna mest inni og ætluðu að vinna svo og svo mikið inn á þessu ári. Síðan voru aðrir flokkar settir með 150 þús. og 100 þús. Mér skilst, að Ísafjörður hafi verið settur með 180 þús. kr., eða alveg eins og vitamálastjóri lagði til, að gert yrði. Okkur var það ljóst, að það hefði þurft meira fé en raunverulega er lagt til, en ef átti að greiða allt það, sem ríkissjóður átti að greiða, þá mundi það fé engan veginn nægja, sem til skipta kom. Reyndi því fjvn. að skipta eftir beztu getu og fór því þessa leið. En ef þessi skipting er eitthvað óréttmæt, — það kann vel að vera, að hún sé það, en þá er það ekki af því, að n. hafi ekki sýnt ýtrasta réttlæti, heldur má þá gera ráð fyrir því, að þær upplýsingar, sem fjvn. fékk og fór eftir, hafi ekki verið réttar. Í þessu sambandi vil ég nefna Akureyri. Upphaflega var sagt, að höfnin þar ætti geymslufé 130 þús. kr. og ætlaði að vinna inn 2 millj. kr. Fyrir 3 dögum kom svo skeyti um, að búið væri að vinna inn 1.750 þús. Í dag koma svo enn aðrar upplýsingar. Það er því sýnilegt, að þetta verður að vera mál milli stofnunarinnar og bæjarstjórnarinnar, úr því að ekki eru gefnar réttar upplýsingar. Og ég er satt að segja undrandi yfir því, hvers vegna bæjarstjórnin sendir ekki gögnin nógu snemma. Hún sendir ekki gögnin fyrr en komið er fram í apríl. (StgrA: Hún hefur treyst því, að vitamálastjórnin gerði það.) Ég vænti því, að hv. þm. Ísaf. geti fallizt á það, að þessi úthlutun af nefndarinnar hálfu er ekki nein hrossakaup.

Í sambandi við höfnina á Hofsósi og brtt. hv. þm. Skagf. vil ég taka það fram, að það er ekki það lakasta, að fjvn. skuli ekki hafa getað lagt fram nægilegt fé, heldur er það lakasta það tjón, sem þar hefur orðið, því að hún er ein af þeim höfnum, þar sem tjón hefur orðið fyrir orsakir, sem stofnunin hefur valdið og nemur hundruðum þúsunda. Á Hofsósi, Sauðárkróki, Ólafsfirði, Bakkafirði og landshöfninni hefur orðið tjón fyrir mistök stofnunarinnar, sem skipta millj. Það er aldeilis voðalegt. Og hér verður að gera kröfur til þess að fyrirbyggja, að slíkt komi fyrir. Annars mun ég tala um þetta nánar við samgmrh., þegar hann er hér viðstaddur, sem væntanlega verður við 3. umr.

Hv. þm. N-Ísf. er hér ekki viðstaddur, og hafði ég þó búizt við því, að hann yrði hér, þegar ég svaraði honum í sambandi við það, sem hann sagði, er hann lagði fram till. sínar. Hann ber hér fram brtt. við brúargerðir og lendingarbætur, og ég sé ekki ástæðu til þess að ræða við hv. þm. um það. En mig langar til þess að ræða hérna nokkuð ummæli, sem hann viðhafði um fjvn. í sambandi við önnur mál, er hún hefði afgreitt. Hann sagði, að n. hefði ekki gert sér ljóst það ástand, sem væri í samgöngumálum í sýslunni, og að þar væri um algera sérstöðu að ræða. Ég tók það fram áður, að n. væri þetta fullkomlega ljóst, og leyfi mér því hér með að mótmæla þessum ásökunum. N. hefur gert sér þessa sérstöðu ljósa, og hún hefur reynt eftir mætti að bjarga þeim meginleiðum þarna í sýslunni, milli Bolungavíkur og Ísafjarðar annars vegar og Súgandafjarðar og Ísafjarðar hins vegar. N. hefur lagt megináherzluna á þessa vegi, en hins vegar ekki getað fallizt á að láta stórar fjárfúlgur falla til vegagerða um viðáttumikil og strjálbýl héruð, en þar á móti er skilningur n. um nauðsyn á að styrkja flóabátinn því betur, sem þarna heldur uppi ferðum á þessum sömu slóðum. Hann sagði, að hér hefðu ráðið úrelt hrossakaupa- og píringssjónarmið. Ég leyfi mér einnig að mótmæla þessu, en mun ekki ræða það frekar hér, heldur geyma það, þar til ég tala við hæstv. vegamrh., því að hann hefur sjálfur haft önnur sjónarmið um framkvæmdir í vegamálum en fjvn.

Þá talaði hv. þm. um styrki til skálda og listamanna. Hann sagði, að grundvöllur sá, sem n. hefði byggt á, væri „hreinasta vitleysa“, eins og hann orðaði það. Ég leyfi mér að mótmæla þessu. Það hafa verið tekin til athugunar öll sjónarmið og öll rök með og móti, og ég get því ekki látið því ómótmælt, sem hv. þm. sagði. En í þessu sambandi hefði ég gjarna viljað fá um það upplýsingar frá hæstv. ráðh., hvort byggingarstyrkir, sem gert er ráð fyrir til listamanna, hafi verið greiddir. Ég sé það, að hér eru 15 þús. kr. ætlaðar til tveggja listamanna til þess að byggja fyrir — 15 þús. til hvors um sig. Veit hæstv. ráðh., hvort þetta muni vera greitt? Mér skilst, að þessar 15 þús. kr. sé sáralítil upphæð til þess að styrkja með, ef það er ætlunin hjá þessum mönnum að byggja hús, sem kostar 300 þús. kr.

Hv. þm. belgdi sig allan út, vegna styrks menningarsjóðs blaðamanna, sem ætlaður er til þess að styrkja blaðamenn til utanfara. Hann sagði, að fjvn. hefði í þrjú skipti reynt að fella þennan styrk niður. Hann sagði í þessu sambandi, að blaðamennirnir ættu alla stjórnmálaflokkana á Alþ. og þess vegna hefði styrknum alltaf verið bjargað, en ekki vegna verðleika blaðamannanna. En nú vil ég spyrja, hvort það sé eðlilegt, að Alþ. styrki þessa blaðamenn til utanfara, og ef svo er, er þá ekki miklu réttara að setja þá á 14. gr. eins og aðra nemendur, sem sækja um styrk til að menntast erlendis. Það er veitt árlega ákveðin upphæð til manna til þess að nema mál eða annað erlendis, sem þeir hafa ekki kost á að nema hér til fullnustu. Annars sé ég ekki ástæðu til þess að vera að styrkja þessa menn með þessu framlagi, því að þeir geta þá sótt um styrk eins og hverjir aðrir nemendur, ef þeir þurfa að fá styrk til þess að læra, en þeir virðast nú reyndar læra heldur lítið í þessum ferðum, ef marka má nokkuð af því orðbragði, sem mjög er ofarlega hjá þeim öllum, nema þetta eigi þá að vera eins konar þóknun fyrir góða tjónkun Alþingis. Hann sagði, að þetta væri „lúsablesaháttur.“ Þetta orðbragð er sjálfsagt árangurinn af þeirri menntun, sem þessir menn eru að sækja sér og fá styrk til að sækja sér. En ég verð að segja það, að þegar slíkt orðbragð er ofarlega hjá þessum mönnum, þá er það merki um það, að mikið skortir á, að þeir gæti almenns velsæmis, og af þeirri ástæðu á ekki að vera að kosta þá til útlanda. Ég veit ekki, hvort þeir læra þetta orðbragð í útlöndum, en ef svo er, þá er ekki ástæða til þess að senda þá. Ef þeir hins vegar gera það nú ekki, þá veit ég ekki nema það sé rétt að byrja á því að senda þá aftur í barnaskólana til frekari menntunar.

Þá kom hv. þm. að útvarpinu, en þið hafið heyrt, hvað fjvn. hefur átt við að stríða um lækkun á rekstri þess. Hér kemur einn postulinn, einn vikadrengurinn við útvarpið, hann er í útvarpsráði, og honum finnst það hreinasta goðgá, að það sé klipið af þeim 1.100 þús. kr., sem stofnunin hefur aukið óhófseyðslu sína. En ég verð að segja það, að ef það má ekki stinga á þessu óhófskýli eyðslunnar, þá er ég hræddur um, að það gangi verr með annað, því að sannleikurinn er sá, að fjvn. hefur kallað til sín útvarpsstjóra og útvarpsráð til þess að fá hjá þeim ýmsar upplýsingar varðandi rekstur þess, en þar er ekkert samkomulag á milli, og hver höndin er þar upp á móti annarri, svo að það er ekki að furða, þó að það sé ekki rekið vel fjárhagslega séð, auk þess sem útvarpsstjóri sagði, að ágengdin að koma að mönnum, ekki einasta þeim mönnum, sem koma fram á dagskrá útvarpsins og landslýður allur fær að heyra til, heldur væri gerð alveg sérstök ásókn til þess að koma mönnum að hinum og þessum störfum, sem ekki er bein þörf fyrir. Hvort hv. þm. er einn þeirra manna, sem les „langur og gangur“ annan hvern mánudag, það veit ég reyndar ekki. Hv. þm. sagði, að þetta væri stofnun, sem stæði undir sér sjálf að öllu leyti. Ja, sér er nú hver! Ég veit ekki betur, en að hún sé kostuð af þjóðinni sjálfri, og er þá rétt að samþykkja hverja óhófseyðsluna sem er hjá þessari stofnun? Hvaðan hefur þessi stofnun tekjur sínar? Er það ekki skattur, sem lagður er á þjóðina, skattur, sem lagður er á alla útvarpsnotendur í landinu? Og jafnvel þó að útvarpið stæði sjálft undir sér, þá er það ekki nægileg ástæða til þess að leyfa ekki neina gagnrýni á rekstri þess. Hvaðan skyldi t.d. heimild vera komin til þess að kaupa eina fiðlu fyrir 75 þús. kr. og svo, jafnskjótt og hún er komin, þá er hún lánuð tengdasyni útvarpsstjóra og engin trygging fyrir því, að hún sjái nokkurn tíma dagsins ljós nema hjá honum? Hvaðan skyldi hafa verið heimild útvarpsins til þess að lána einum allra ríkasta manninum hér í Reykjavík 500 þús. kr. til 10 ára með mjög lágum vöxtum, eins og gert hefur verið? Nei, mér finnst sannarlega full ástæða til að gagnrýna svona stofnun og alger óþarfi af hv. þm. að vera með belging út af því, þó að reynt sé að koma í veg fyrir slíka óhófssóun. Svo sagði hv. þm., að öll verk fjvn. væru vitleysa. Sú var tíðin, að hv. þm. sagði, að ég væri eina þingfíflið, en nú er eftir hans orðum að dæma komið svo, að það eru komin 8 fífl til viðbótar, eða þeir menn, sem eiga sæti í fjvn. Ég vil leyfa mér að mótmæla þessum dómi fyrir hönd þeirra 8 manna, sem starfa með mér í fjvn. Dómurinn um mitt vit má liggja á milli hluta.

Hv. þm. Snæf. minntist hérna á till. í sambandi við vega- og bryggjugerð, og mun ég ekki ræða um það hér, en í sambandi við till. um fæðingadeildina vil ég taka það fram, að þetta stafar af misgáningi og mun verða leiðrétt fyrir 3. umr. málsins, svo að það var í sjálfu sér óþarfi af hv. þm. að vera að koma með sérstaka brtt. um það. Hann ræddi hins vegar um önnur atriði, sem ég vil stuttlega minnast á. Það var í fyrsta lagi heilbrigðisstofnunin nýja. Eins og hv. þm. réttilega tók fram, þá var það borið fram í n. að leggja 1.300 þús. kr. af mörkum til þessa máls. En það varð að samkomulagi innan n. að leggja til, að veittar yrðu 500 þús. kr. Ég tel þetta vel af stað farið eins og á stendur í þessu máli, því að hér hefur verið mörkuð stefnan, sem halda ber áfram eftir því sem efni og geta leyfir. Þetta er mál, er varðar allt landið og landsmenn alla, því að hér í Reykjavík er oft staddur helmingur þjóðarinnar, og getur oft verið, að margir af þeim mönnum þurfi að leita sér vistar á sjúkrahúsi um lengri eða skemmri tíma, en eins og stendur er mjög mikill skortur á plássi í sjúkrahúsunum. Mér þótti því mjög vænt um, þegar samkomulag varð um þetta mál í nefndinni.

Ég er hins vegar ekki sammála hv. þm. um styrkinn til Reykjavíkurhafnar, vegna þess að það á að vera skilyrði fyrir styrkveitingu, að höfnin sé ekki nógu sterk til þess að geta staðið undir sér sjálf fjárhagslega. Reynslan hefur hins vegar sýnt það, að Reykjavíkurhöfn er fær um að byggja upp bryggjur af eigin rammleik, svo að eftir öllum líkum að dæma virðist hún vera nógu sterk. En áður en nokkur styrkur er ákveðinn til Reykjavíkurhafnarinnar, þá er rétt að athuga, hvort ekki muni vera hægt að hækka hafnargjaldið. Þetta á einnig við um fleiri hafnir, eins og t.d. Akureyri og Hafnarfjörð. (StgrA: Það hefur verið sótt um hækkun fyrir Akureyri, en verið neitað.) Það er alveg meiningarlaust. Það er fjarstæða að vera að sækja og láta neita sér um það, ef hækkunin er ekki fram úr hófi, því að hvaða vit er í því að vera að halda niðri hafnargjaldi, sem er ekki nema sáralítið brot af farmgjaldi og uppskipunargjaldi? Hvaða vit er í því, ef það getur með því lækkað framlag ríkissjóðs? Ég vil í þessu sambandi benda hæstv. ráðh. á, að rétt er að láta fara fram gagngera athugun á tekjumöguleikum ýmissa hafna, t.d. á Siglufirði o.fl. Af þessum ástæðum, sem ég hef dregið hér fram, er ég á móti því, að Reykjavíkurhöfn fái þetta framlag.

Hv. þm. sagði máli sínu til stuðnings, að hér væru togarar alls staðar af landinu, sem leituðu hafnar í Reykjavíkurhöfn. En er það ekki einmitt betra fyrir Reykjavíkurhöfn? Ég veit ekki betur en að Reykjavík hafi hag af því að fá þá hingað, og ég veit ekki betur, en að útsvör hafi verið lögð á þá ár eftir ár hér í Reykjavík, svo að það hefur orðið að leita til hæstaréttar um það efni. Það er því ekki að furða, að bærinn vilji fá aukinn styrk vegna slíkra gesta, sem veita fé á allar hliðar!

Till. hv. þm. um framlög til skóla er mjög athyglisverð, og það verður að koma til athugunar, hvort ekki beri að samþ. hana. Það er erfitt að láta þetta allt hvíla á einum ráðh., en ég verð að segja það, að ég tel ekki neina lausn á málinu, þó að þetta verði flokkað í till. fjvn. Ég tel, að slíkt verði að lögfesta, sérstaklega þegar það hefur sýnt sig, eins og það gerði seinast í fyrra, að ekki er tekið fullt tillit til þessarar flokkunar fjvn., eins og raunin varð á um lesstofurnar, og var þar þó ekki nema um 60 þús. kr. upphæð að ræða, en það hefur ekki verið tekið tillit til þess af rn. Ég tel, að það skipti því meira máli, þegar ráðh. hefur ekki farið eftir till. n. Annars var ekki samkomulag um þetta atriði, í nefndinni.

Í sambandi við till. um dráttarbraut, þá vil ég mótmæla því, að hún skuli vera komin hér fram, en mun geyma mér að ræða um hana þar til við 3. umr., vegna þess að hæstv. samgmrh. þarf að vera viðstaddur, því að honum ber að svara, því að eins og menn muna, þá var þessi till. afgr. með rökstuddri dagskrá í fyrra, og þau ummæli voru þá höfð eða loforð um, að hún skyldi ekki lögð fyrir aftur.

Þá ætla ég að víkja nokkrum orðum að hv. 6. landsk. Hann heldur því fram, að það mundi hafa verið miklu ódýrara, ef umrætt hús hefði verið byggt miklu fyrr. En hv. þm. er vel kunnugt um, að það lýtur sömu reglum og önnur framlög frá ríkissjóði til þessara mála. Það er háð því, hve mikið fé er látið á hverju ári, en ekki því, hvað hvert hérað getur látið frá sér. Þegar þetta hérað fór út í það að byggja þessa miklu byggingu, bar því að sjálfsögðu skylda til þess að rannsaka það mál og skipuleggja það, hvort þeir gætu sjálfir haldið áfram byggingunni eins hratt og þeir óskuðu eftir, eða þeir áttu að tryggja strax í upphafi framlag frá ríkissjóði, til þess að baka sér ekki það tjón, sem hv. þm. ræðir um. Fjvn. hefur ekki séð sér fært að leggja til, að það verði látið annað eða meira en það fé, sem hún gerir till. um, að tekið verði upp í fjárlfrv., þó að svo sé, að hlutur ríkisins verði vangreiddur um 1,2 millj. kr. Það verður að fara eftir sömu reglum og um önnur vangreidd gjöld. M.a. eru rúmlega 8 millj. kr. vangreiddar til skóla, og ég sé ekki, hvers vegna sjúkrahús á Akureyri ætti að ganga fyrir, frekar en skólahús. Ef ljúka ætti öllum þessum greiðslum til skóla, hafna og spítala, mundi það ekki nema minni upphæð en 30 millj. kr.

Um Öxnadalsheiði get ég sagt hv. þm. það, að vegamálastjóri leggur til, að veittar séu 400 þús. kr. sem lágmark, þó að ekki séu veittar nema 3 millj. kr. í vegi, en hins vegar leggur hann til, að ef veittar verði 7 millj. kr., þá komi 600 þús. kr. sem lágmark. Nú var það skoðun meiri hl. n., að það væru aðrar þarfir annars staðar á landinu, sem frekar þyrfti að leysa. Það er hægt að fara yfir Öxnadalsheiði, en það eru margir aðrir staðir til, þar sem ekki eru vegir, svo að hægt sé að komast yfir landið, og fólkið fer burtu, þar sem svo hagar til, því að atvinnuvegirnir byggjast á því, að hægt sé að leggja vegi. Rökin, sem hv. þm. kom með, voru þau, að niður gæti fallið allur rekstrarhalli á norðurleiðinni, ef lokið væri við þennan veg. Hvers vegna er þá rekstrarhalli á Hafnarfjarðarveginum, eina virkilega góða veginum á landinu? Þetta eru veik rök hjá hv. þm. Það eru aðrar ástæður, sem orsaka hallann á norðurleiðinni, heldur en þó að veitt sé 200 þús. kr. meira eða minna í veg á Öxnadalsheiði. (StgrA: Hallinn er á vetrarferðunum.) Ekki frekar en á Holtavörðuheiði.

Ég lýsti því nokkuð áðan, hvers vegna ekki hefur verið látið meira fé til hafnargerðar á Akureyri. Ég harma það, að þær upplýsingar, sem nú hafa komið fram, skuli ekki hafa legið fyrir fyrr, en ég sé enga aðra leið en að forráðamenn hafnarinnar ræði það við hæstv. samgmrh., hvort hann geti ekki látið eitthvert fé úr hafnarbótasjóði, en hann er sérstaklega ætlaður til að bæta upp þær skyldur, sem ríkissjóður getur ekki innt af hendi, og þá sérstaklega til þeirra, sem eiga ógreitt framlag frá ríkissjóði. En sé þingvilji fyrir því, að þetta fé verði veitt, þá er að mæta honum og hækka þá upphæð, sem tekin er í frv. Ég er ekki alveg sammála hv. þm. um dráttarbrautina. Sannleikurinn er sá, að það er ekki alveg víst, að sá leikur, sem leikinn er á Akureyri í sambandi við dráttarbrautina, sé réttur gagnvart ríkissjóði. Dráttarbrautin er byggð að nafninu til fyrir bæinn, en fyrirtækið er lánað með samningi til lengri tíma til einkaatvinnurekstrar, sem ætlaði sér að byggja dráttarbraut, en þegar búið var að samþ. að taka dráttarbrautina inn í hafnarlöggjöfina, þá er hafnarsjóður látinn byggja hana, en hún er svo framseld með leigusamningi til einstaks aðila. Slík aðferð getur kannske staðizt dóm, en það var ekki hugsað svona, þegar þetta var sett í hafnarlöggjöfina.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða mikið um till. frá hv. 3. landsk. þm. Það er mest endurtekning á því, sem hv. þm. N-Ísf. hefur tekið fram. En ég vil þó upplýsa það í sambandi við till. um framlag til Kvenréttindafélags Íslands, að það var fellt niður nú, vegna þess að liðurinn var tekinn í fjárl. í fyrra í ákveðnum tilgangi, til þinghalds innanlands, en var ekki hugsað sem fastur liður á fjárl. Hins vegar hafa þær nú hugsað sér að nota þetta fé til ferðalaga, ef þær fá þennan styrk, en ég skal ekkert um það segja, hversu aðkallandi það er. Ég fylgdi því fast eftir í fyrra, að þær fengju styrkinn til þinghaldsins. Nú hafa þær búizt við að fá að halda þessu áfram, en n. sá ekki ástæðu til að leggja til, að svo yrði.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að ræða meira hinar einstöku till. Það hefur ekkert komið fram, sem geri það að verkum, að ástæða sé til þess, að n. taki sérstaklega til athugunar hin einstöku mál. En ég skal lýsa því yfir, að áður en atkvgr. fer fram, skal ég sem form fjvn. halda fund með n. til þess að benda þar á hinar einstöku till. og þær upplýsingar, sem fyrir liggja. Kemur þá sérstaklega til athugunar Akureyri í sambandi við hafnarmálin, án þess að ég geti lofað því að nokkru verði þar breytt, og einnig kemur til athugunar Hofsós, Blönduós og Bakkafjörður. Ég get að sjálfsögðu heldur engu lofað um það, að þessu verði breytt. Það hefur verið takmarkað af ríkisstj. m.a., hvað hámarkið skuli vera. En ég skal að sjálfsögðu ræða málið og reyna að fá hæstv. samgmrh. til að ræða málið fyrir 3. umr. Ég hygg, að bezt sé, að þessar till. verði teknar aftur til 3. umr., en það má ekki skoðast sem fylgi mitt eða n. við till. Aðrar till. eru ekki, að ég held, sem ég óska sérstaklega, að rætt verði um, en skal þó hafa þennan hátt á um meðferð málsins, sem ég gat um, áður en frv. kemur til endanlegrar afgreiðslu hér.