04.04.1949
Sameinað þing: 62. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í B-deild Alþingistíðinda. (1418)
42. mál, fjárlög 1949
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti: Þessi umr. hefur tekið, eins og vant er, alllangan tíma. Er nú orðið alláliðið, þannig að mér finnst ástæða til að sneiða hjá því sem mest að vekja umr. á ný, enda er það þýðingarlítið, þar sem þm. eru fæstir viðstaddir.
Hv. form. fjvn. hefur flutt hér mjög ýtarlegt erindi, eins og vænta mátti, um afstöðu n. gagnvart fjárlfrv. og eins gagnvart ýmsum aths., sem fram hafa komið, aðallega þeim, sem ég flutti hér fyrr varðandi till. n., nál. og varðandi málið í heild. Það má segja, að í ræðu hv. form. og frsm. fjvn, komi fram ýmis atriði, sem ég tel rétt að taka til íhugunar, einkum og sér í lagi ýmsar ábendingar, sem hv. frsm. kom með í ræðu sinni, þrátt fyrir það að mig greinir á við hann um ýmis atriði varðandi tölur þær, sem við höfum deilt um, og hirði ég ekki að rekja það hér nú. Það er að sjálfsögðu ekki aðalatriðið. Aðalatriðið er, að fundin verði leið til þess, að þingið geti, eins, og ég hef áður sagt, afgr. fjárlfrv. og gert það þannig, að það sé verjanlegt fyrir alþjóð.
Eins og vant er, hafa margir alþm. komið með brtt. og allflestir lagzt á þann veg, eins og, fyrri daginn, að brtt. þeirra miða til hækkunar. Það er ekki mitt hlutverk, a.m.k. ekki nú, að liggja mönnum á hálsi, þó að þeir haldi fram málstað síns héraðs eða beri fram sín áhugamál í þessu formi, eins og hefur löngum áður tíðkazt hér á þingi. Hitt er annað mál, að nú er viðhorfið miklu þyngra að því er snertir að veita mönnum fullnægingu óska sinna í þessu efni, og væri þegar af þeim sökum full ástæða til, að menn stilltu í hóf kröfum sínum um fjárframlög úr ríkissjóði, jafnvel þótt til þarflegra framkvæmda væri.
Einn hv. þm. er hér undantekning, áberandi mjög. Það er hv. 5 þm. Reykv., sem hefur flutt hér margar till., til lækkunar á ýmsum liðum, og þó að ýmsir hv. þm. séu mótfallnir slíkum till. og það sé lítill hljómgrunnur fyrir því, að þeirri leið sé fylgt, sem hann þar vísar á, þá dylst það tæplega neinum, sem vill líta á þá möguleika, sem fyrir hendi eru nú hjá Alþingi að afgr. fjárl., að sú leið, sem hv. 5. þm. Reykv. vill fara og sú heildarstefna, sem hann markar, er, eins og nú standa sakir, réttari en að hækka enn útgjöldin og stofna með því enn þyngri álagaskatta eða tolla, sem landslýðurinn verður að standa undir. Okkur þykir að vísu sárt, þegar við getum ekki komið fram áhugamálum okkar og framfaramálum, sem við teljum nauðsynleg, þó að það megi vera að sínum augum líti hver á silfrið, en út af fyrir sig er það ekki afgerandi atriði, hvort þetta eða hitt kemst í framkvæmd árinu fyrr. eða seinna, heldur er það aðalatriðið, að Al þingi haldi ekki áfram í þessum efnum að reisa sér hurðarás um öxl. Ég ber í þessu sambandi ekki sakir á neinn sérstakan þm. eða neinn sérstakan flokk og hef aldrei gert, en hitt er annað mál, að það er óneitanleg staðreynd, að það, hefur ríkt of mikil bjartsýni á Alþingi og vegna þessarar bjartsýni og vegna óska manna. um að gera allt þegar í stað — vegna þessa er þjóðarhag okkar komið svo sem raun ber vitni nú. Þetta á a.m.k. einna stærstan þátt í erfiðleikum þeim, sem við nú eigum við að stríða — þessi hraði, sem Alþingi hefur viljað hafa á öllum framkvæmdum til sjós og lands, og það hefur bakað okkur slíkan kostnað, að okkur er ofvaxið undir að standa. Ég mun ekki við þessa umr. fara út í einstök atriði. Til þess gefst tími við 3. umr., svo og til að ræða ýmis atriði, sem fram hafa komið í kvöld, en vil aðeins fara fram á það við þá, sem því vilja hlíta, að þeir dragi hækkunartill. sínar til 3. umr., ef þá væri hægara að sjá eitthvað fótum sínum forráð um aðalatriði málsins, sem sé, eð fjárlögin geti verið afgreidd greiðsluhallalaus. Með þessum orðum vil ég ljúka máli mínu í kvöld og vona, að með þeim verði þessari umr. lokið, og ég mun stuðla að því eftir megni, að 3. umr. geti farið svo fljótt fram sem unnt er, þegar séð verður, hvernig hægt er að binda endi á lokaþáttinn í afgreiðslu þessa máls.