16.12.1948
Efri deild: 37. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í B-deild Alþingistíðinda. (144)
90. mál, gjaldaviðauki 1949
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Um þetta frv. er líkt að segja og hið næsta á undan, sem verið var að samþykkja, að hér eru engar breytingar gerðar, heldur um framlengingu eina á l. að ræða, þ.e. hækkun á stimpilgjaldi um 100% og hækkun á aukatekjur ríkissjóðs skv. l.–VI. kafla þeirra l. N. varð sammála um að leggja til, að þetta frv. yrði samþ. óbreytt. Það náðist eigi til tveggja nm. í málinu, en þrír nm. urðu sammála um, að gjöldin gyldust, eins og þetta hefur verið áður.