12.05.1949
Sameinað þing: 72. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (1494)
42. mál, fjárlög 1949
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Ég ætla, að það séu þrjár brtt., sem ég er fyrsti eða eini flm. að, og þarf ég ekki að fara um þær mörgum orðum. Tvær þeirra eru á þskj. 730. Sú fyrri er flutt af hv. þingmönnum Reykv. og hv. 2. þm. Árn. og er á þá leið, að í staðinn fyrir hálfrar millj. kr. fjárveitingu til sjúkrahúsa í Reykjavík, sem samkv. till. hv. fjvn. var samþ. við 2. umr., komi ein millj. kr. til heilbrigðisstofnana í Reykjavík. Ég rakti þessi mál. hér nokkuð við 2. umr. og þarf engu við það að bæta. Þörfin er svo mikil hér fyrir sjúkrahús og aðrar heilbrigðisstofnanir, að hér þarf stórra átaka við. Ástæðan til þess, að heitinu er breytt í „heilbrigðisstofnun“ úr „sjúkrahús“, er, að meðal þess fyrsta, sem verður ráðizt í í Reykjavík af þessu tagi, er heilbrigðisstofnun, sem er hæpið, að geti talizt til sjúkrahúsa, og þess vegna var valið þetta heiti. En það er einnig öflugur undirbúningur hafinn að sjúkrahúsi.
Önnur brtt. á þessu þskj. er við 22. gr. Ég flutti hana við 2. umr. og tók hana aftur til 3.. umr., og er hún um, að ríkisstj. verði heimilað að ábyrgjast fyrir hönd ríkissjóðs fyrir h.f. Skipanaust vegna dráttarbrauta og skipasmiðastöðvar 3 millj. kr. Það er brýn þörf á að auka hér aðstöðu til skipavíðgerða í bænum vegna útgerðarinnar, og er ætlunin, að það komi að haldi ekki aðeins bátum og skipum úr Reykjavík, heldur hvaðanæva af landinu. Þetta félag var stofnað fyrir fáum árum og naut mikillar og ágætrar fyrirgreiðslu nýbyggingarráðs, en hefur nú orðið að stöðva framkvæmdir, vegna skorts á fjármagni. Og er þessi ríkisábyrgð nauðsynleg, til þess að þetta fyrirtæki geti haldið áfram starfsemi sinni. Þetta mál hefur verið til athugunar hjá tveimur hæstv. ráðh., og hafa þeir kynnt sér það rækilega. Ég þarf engu við að bæta það, sem ég sagði við 2. umr. um þetta mál.
Þriðja brtt. er á þskj. 685, og flyt ég hana ásamt hv. þm. N-Ísf., hv. þm. V-Ísf. og hv. þm. Str. Hún er á þá leið að hækka nokkuð aftur laun skálda, rithöfunda og listamanna: grunnstyrk úr 150 þús. kr. í 173 þús. kr., og verðlagsuppbót úr 300 þús. kr. í 346 þús. kr. Þessi fjárhæð hefur verið lækkuð nokkuð við 2. umr., og er farið fram á, að hún fari upp undir þá sömu upphæð aftur. Við teljum ekki fært að lækka þessar styrkveitingar til þessara listamanna nú. Og ég hef m.a. rætt um þetta við menn úr úthlutunarnefnd, sem telja það miklum vandkvæðum bundið að úthluta styrknum, ef þessi lækkun á sér stað. Enn fremur er vitanlegt, að ýmsir listamenn hafa öll stríðsárin átt auðveldara með sölu á sínum verkum en síðar og eiga nú örðugra um vik í því efni, vegna þess að markaðurinn á þessum sviðum dregst saman eins og á svo mörgum öðrum sviðum. Það munaði sáralitlu, að hækkun þessi gengi fram við 2. umr., ekki nema einu atkv. Og þegar þetta kemur aftur fyrir þingið, vonast ég til þess, að meiri hl. hæstv. Alþ. fallist á þessa till.