12.05.1949
Sameinað þing: 72. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1139 í B-deild Alþingistíðinda. (1497)

42. mál, fjárlög 1949

Jón Pálmason:

Herra forseti. Ég sé nú ekki ástæðu til þess, eftir allt, sem á undan er gengið, að fara nú við þessa umr. að ræða nokkuð almennt um afgreiðslu fjárl., heildarsvipinn, sem á þeim er, en vil segja örfá orð út af þeim brtt., sem ég hef leyft mér að flytja á þskj. 715 ásamt hv. þm. V-Húnv. (SkG) og hv. þm. Skagf. (JS og StgrSt). Þessi till. er undir rómv. V á þessu þskj. og hljóðar um það að heimila ríkisstj. að verja 40 þús. kr. til kaupa á einum snjóbíl. Þannig er, að vegamálastjóri hefur lagt á það mjög mikla áherzlu, að keyptir yrðu mjög fullkomnir snjóbílar til afnota á fjallvegum, og á þessi till. við það, að þessi snjóbíll verði einkum notaður á Holtavörðuheiði, því að það hefur sýnt sig nú á þessum vetri, sem hefur verið harður vetur, að það er með öllu óhæf aðferð að hugsa sér að nota venjulega bíla til fólksflutninga á þessum fjallvegi. Þessi snjóbílategund, sem vegamálastjóri á kost á og hefur meira að segja sjálfur ferðazt í, tekur 12–14 manns og kostar um 40 þús. kr. hingað komin. Okkur flm. virðist, þar sem hér er um jafnumfangsmikið mál að ræða og vegamálastjóri hefur með höndum, að þá sé ekki næsta miklu kostað til að gera tilraun með þetta, því að nokkrir tugir þúsunda eru fljótir að fara, eins og verið hefur í vetur, beinlínis í snjómokstur og í öðru lagi í fargjöld fyrir ferðafólk. Ég vænti því, að þm. geti tekið þessari litlu till. með vinsemd. Að sjálfsögðu mundi ríkisstj. gefa vegamálastjóra heimild til að nota þessa heimildartill., svo framarlega sem hún teldi það fært af öðrum orsökum, og að sjálfsögðu sjá allir, að hér er ekki um næsta mikið fé að ræða.

Ég er hér meðflm. að annarri till., en miklu minni, ásamt hv. þm. V-Húnv., sem hann hefur mælt fyrir hér á þessum fundi, og skal ég þess vegna ekkert um hana ræða hér. Ég vil taka fram, að ég hefði haft mikla tilhneigingu til þess að óska eftir meiri fjárframlögum til nokkurra nauðsynjamála í mínu kjördæmi, en hef vegna þess, hvernig fjárhagsástandið er og frv. að öðru leyti orðið, ekki séð mér fært að fara á flot með þær. Þó eru það sérstaklega tvö mannvirki, sem mjög ríkar ástæður hefðu verið til að fara fram á fjárveitingar til og það af sérstökum ástæðum. Á ég þar við bryggjurnar á Blönduósi og til hafnargerðar á Skagaströnd. Um bryggjugerðina á Blönduósi er það að segja, að þar varð svo stórkostleg bilun á s.l. sumri, að bryggjan er nú með öllu ónothæf, án þess að það sé lagað, en það kostar mikið fé og miklu meira en hægt er að greiða með því litla tillagi, sem frv. ætlar til þessa mannvirkis. — Á Skagaströnd hagar svo til, að búið er að steypa þar 60 m langt og 10 m breitt steinker til framlengingar á hafnargarðinum þar, og því þarf að koma því niður á þessu nýbyrjaða sumri. En þótt þarna sé mikil fjárþörf, hef ég ekki farið á stað með þá till., því að í samningum ríkisstj. og fjvn. hef ég fengið lítils háttar loforð um einhverja upphæð úr hafnarbótasjóði til þessa mannvirkis, og verður þá að ráðast, hvort það verður á annan hátt hægt að greiða úr því, að takast megi að ljúka þessu verki, sem óhjákvæmilegt er að ljúka, til þess að allt fari ekki forgörðum, núna í sumar.

Að öðru leyti skal ég ekki orðlengja um þessa hluti. Það er annarra verkefni, en mín að fjalla um fjárlfrv. og fjárlagaafgreiðsluna í heild sinni.