07.12.1948
Efri deild: 26. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (152)
92. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Þetta frv. ásamt nokkrum öðrum, sem hér hefur verið útbýtt, er tekjuaukafrv. fyrir ríkissjóð. — Nú langar mig til að fá það upplýst frá ráðh., hvort hann telur, að hér sé um næga tekjuöflun að ræða fyrir ríkissjóð. Það má líta á þær vörur þannig, sem hér falla undir, að þær séu meðal þeirra vara, sem mönnum er í sjálfsvald sett, hvort þeir kaupa eða ekki, og eru að því leyti skyldastar t.d. víni og tóbaki. Og ég vildi heyra það hjá ráðh., hvort hann telur, að þessar tollahækkanir — í þessu og öðrum frv. — séu nægilega háar fyrir ríkissjóð. — Ég leyfi mér að draga það í efa. Og ef sá efi hefur við rök að styðjast, teldi ég einsætt, að tolla af þessum vörum mætti gjarna innheimta með hærra álagi, en hér er gert ráð fyrir.