14.05.1949
Sameinað þing: 73. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (1537)

42. mál, fjárlög 1949

Páll Zóphóníasson:

Ég lít þannig á, að ríkisstj. hafi mátt búast við því með þeirri fjármálastefnu, sem hún hefur fylgt, að kröfur sem þessi kæmi fram. Ég tel, að það beri að svara henni með því að breyta alveg um fjármálastefnu og skapa heilbrigðari grundvöll fyrir atvinnulífið, svo að mönnum notist betur að launum sínum. Spái ég þá, að þessi krafa falli niður. Þess vegna segi ég nei.