12.11.1948
Efri deild: 12. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1284 í B-deild Alþingistíðinda. (1592)

63. mál, lántaka handa ríkissjóði

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, hefur verið afgr. frá hv. Nd. og er um heimild fyrir ríkisstj. til lántöku handa ríkissjóði. Í grg. er skýrt frá því, hvað því veldur, að farið er fram á þessa heimild nú, og þarf ég ekki að fjölyrða um það eða endurtaka það, sem þar stendur. Happdrættislánið, sem reynt var með á þessu hausti, reyndist góð leið, svo langt sem hún náði, til þess að fá lánsfé handa ríkissjóði, en þess er honum næsta mikil þörf. Á þessa leið til lánsfjáröflunar var aðallega bent af þjóðbankanum og þá færð þau rök að því, hve vel þetta hefði gefizt í nágrannalöndum okkar.

Nú er það svo, að þetta annað happdrættislán, sem ríkisstj. hefur ákveðið að biðja um heimild til að taka, þyrfti að vera komið svo fljótt í gang, hvað framkvæmd lántökunnar snertir, að happdrættismiðarnir gætu verið til sölu í desember. En það tekur ákaflega langan tíma að prenta happdrættismiðana. Það er ekki hægt að koma fram prentun þeirra á skemmri tíma, en hálfum mánuði, og undirbúningur er talsverður undir það, áður en hægt er að koma af stað prentun miðanna. Ríkisstj. er því mjög hugleikið að biðja hæstv. forseta og hv. þdm. að stuðla til þess, ef hv. þd. vill samþ. þetta frv., að afgreiðslu þess verði hraðað svo, að frv. verði afgreitt héðan í dag.

Mál þetta var flutt af hv. fjhn. í Nd., og þess vegna var því þar ekki vísað til n. Og ég tel, að ef þingvilji er fyrir því, að málið nái fram að ganga, þá sé í raun og veru ekki ástæða til að vísa því til n. hér í hv. d., og væri greiðast, ef það gæti farið til 2. umr. nefndarlaust að lokinni þessari umr. En vitaskuld er það á valdi hv. þdm.