18.10.1948
Neðri deild: 5. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1294 í B-deild Alþingistíðinda. (1622)

5. mál, niðursoðin mjólk

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Ég þarf ekki að hafa um þetta frv. mörg fleiri orð. En ég óskaði eftir því, að n., sem fær þetta mál til meðferðar, athugaði alveg sérstaklega, hvort ekki væri nokkuð fast að orði kveðið í ákvæðum frv. og hvort ekki væri rétt að hafa aðra skipun á til þess að ná þeim tilgangi, sem flm. ætlast til. Mér hefur verið flutt þetta mál á þann hátt, að það muni hafa verið skortur á mjólkurdufti því, sem iðngreinar nota hér að staðaldri. Það eru súkkulaði- og kexverksmiðjur og ýmsar aðrar svipaðar verksmiðjur, sem þurfa á þessari vöru að halda. Mér er sagt, að þær þurfi að nota nýmjólkurduft, en ekki undanrennuduft, og það, sem leyfður hefur verið innflutningur á, hefur einmitt verið nýmjólkurduft, sem ekki hefur verið hægt að fá keypt hér. Það er svo fjarri því, að ég hafi verið að vinna á móti þeirri stefnu að styðja innlendan iðnað, eins og fram kom í ræðu hv. 2. þm. Reykv., að það var einmitt verið að tryggja það, að til væri hráefni handa viðkomandi verksmiðjum til að vinna úr. Það var ekki um heildsalainnflutning að ræða eða að einhverjir hafi verið að verzla með þessi hráefni. Fyrir mér var það eina atriðið og aðalatriðið, að hér var um að ræða innflutning á vöru, sem ekki var til í landinu, til þess að hægt væri að halda áfram verksmiðjurekstri, sem annars hefði stöðvazt. Mér er líka kunnugt um það, að það kom fyrir í fyrra sumar rekstrarstöðvun hjá mjólkurbúi Borgfirðinga — þetta getur alltaf komið fyrir —, en þá varð mikil neyð ríkjandi meðal sjómanna, af því að niðursoðin mjólk fékkst ekki og ekki mátti flytja hana inn. Ég veit ekki, hvað hv. þm. segja um þetta, en mér finnst löggjöf þessi, sem bannar innflutning, hvernig sem á stendur, á vöru, sem ekki fæst í landinu um lengri tíma, ekki fullkomlega einhlít. Ég tel því, að hér sé ekki með samþ. þessa frv. tryggð nema önnur hlið málsins, þ.e.a.s. sú, sem snýr að framleiðslu mjólkurduftsins. Það er ágætt að tryggja hana, og er ég sízt á móti því. Hvorki ég, viðskiptan. né fjárhagsráð hafa neinn áhuga fyrir því að flytja inn mjólkurduft, þegar það er til í landinu. En almenningur krefst þess, bæði til neyzlu handa sjálfum sér og til þess að tryggja það, að framleiðslan geti haldið áfram í verksmiðjunum, að það sé hægt að gera einhverjar ráðstafanir, ef innlenda varan er á einhverjum tíma ekki fáanleg. Það er þetta, sem ég óska, að n. taki til athugunar, þegar hún fær málið til meðferðar. Út af fyrir sig álít ég frv. óþarft, þar sem ekki er leyfður innflutningur á þessari vöru, þegar hún er til innanlands, hins vegar gerir ekkert til, þó að lögin séu til, ef þau koma ekki í veg fyrir, að hægt sé að fyrirbyggja neyðarástand, sem orsakast af því, að vöruna vantar.

Hv. 2. þm. Reykv. fór út í almennar hugleiðingar um innflutningsmál og íslenzkan iðnað. Ég ætla ekki að deila við hann um það. Ég er að sumu leyti sammála honum og sumu leyti ekki. Hann minntist á innflutning á málningu, og er sýnilegt, að hann hefur ekki fengið alveg réttar upplýsingar, en ég geri ráð fyrir, að um þessi mál verði frekar rætt einhvern tíma síðar, og þá er ég tilbúinn til þess að ræða þau nánar við hann. Það hefur verið veittur innflutningur þeirri einu verksmiðju, sem hér er starfrækt, fyrir 11/2 millj. Það hæsta, sem hún óskaði að fá, eru tæpar 2 millj. Árið er nú ekki liðið enn þá og möguleiki á því að bæta við þetta, svo að ekki verði um mjög tilfinnanlegan skort að ræða, enda hafa þeir gefið mér upp, að 300–400 þús. muni nægja. Það, sem flutt er inn af tilbúinni vöru, er ekki tilbúin málning, heldur fernisolía, krít og kítti, sem fellur undir málningarvöruflokkinn, en verður að flytja erlendis frá og er ekki hægt að vinna hér, og hefur verið veitt samtökum málara í landinu til innflutnings. Þeir hafa fengið að flytja inn talsvert undir þessum málningarvöruflokki. Áður höfðu málningarverksmiðjurnar fengið þennan innflutning til þess að selja, en það, sem skeð hefur, er það, að innflutningur þessarar vöru, sem kom til landsins fullunnin, hefur verið færður frá verksmiðjunum og yfir á samtök málara. Fleira mætti sjálfsagt um þetta segja, en út í hina hærri pólitík og tilhneigingu Ameríkana til eins eða neins í þessu sambandi skal ekki farið í þetta sinn. Það verður sjálfsagt hægt að gera það síðar.

Ég vænti þess, að þessi orð mín verði ekki misskilin á þann hátt, að ég vilji setja fótinn fyrir framleiðslustarfsemi þessa í landinu. Ég vil stuðla að því, að hún verði styrkt og studd eftir því, sem frekast er kostur á, en ég vil ekki binda þetta í svo fastar skorður, að ekki sé hægt, í því tilfelli, að ekkert annað sé fyrir hendi, að fá vöruna annars staðar að til að bæta úr neyðarástandi, sem enginn æskir eftir, að ríki í landinu. Ég vona, að n., sem fær málíð til fyrirgreiðslu, taki upp þessa hlið málsins, því að hún er vissulega þess verð, að hún sé athuguð líka.