09.12.1948
Neðri deild: 30. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1324 í B-deild Alþingistíðinda. (1657)
80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna
Áki Jakobsson:
Herra forseti. Það fór eins og mig hafði grunað, að þessar till., sem bornar eru hér fram af sjútvn. að beiðni ráðh., eru ekki liður í neinu ákveðnu plani, en hreint fálm út í myrkrið. Nú eru allar aðvaranir mínar í þá átt, að hættulegt sé að fara inn á þessa braut. Með því væri verið að kaupa stundarfrest, en ekki að taka með festu á vandamálinu, og virðist þetta vera gert til þess að reyna að komast undan að taka á vandanum. — Út af þeim athugasemdum, sem hv. 2. þm. Reykv. gerði í ræðu sinni hér, sagði hæstv. ráðh., að það kynni að vera, að menn kynnu góð ráð síðar meir, og það kæmi dagur eftir þennan dag. Ég held nú, að ráðh. væri nær að svara því, til hverra ráða útvegsmenn eiga að grípa eftir 2. júlí 1949 til þess að halda útgerðinni áfram. 2. júlí 1949 munu víxlarnir falla, og ég sé ekki hver ráð verða fyrir útvegsmenn, ef þeir eiga að borga þá upp, auk verzlunarskuldanna. Flest skipin hafa ekki getað staðið í skilum með samningsbundnar afborganir, og 2. júlí eiga svo allar kröfurnar að verða gjaldkræfar. Hvað gerir ríkisstj. þá? Ber hún kannske fram frv. til brbl., að fresturinn verði framlengdur fram yfir sumarvertíðina? En jafnvel þótt vel aflaðist á síldveiðunum næsta sumar og nú í vetur, þá yrðu útvegsmenn þrátt fyrir það illa á sig komnir. Það er hægt að semja um skuldir, en er allir „kreditorarnir“ koma á sama tíma, þá liggur ekki annað fyrir en gjaldþrot. Ég býst við, að hæstv. ráðh. láti sér ekki detta í hug, að vetrarvertíðin bæti ástandið svo um muni, og ef þetta eru ráðstafanir, þá er gallinn við þær, að þetta er lögbundinn greiðslufrestur, og kemur hann ekki til af öðru, en að hæstv. ríkisstj. vill kaupa sér einhvern frest í úrræðaleysi sínu, en ég hafði þó hugsað mér, að hún væri ekki svo aum, að hún gæti ekki eitthvað lagt af mörkum til málanna. — Hæstv. fjmrh. hefur með ræðu sinni sagt það, að ríkisstj. finni enga leið, sem sé fær út úr vandræðunum, nema þessa, og þá upp á von og óvon. Þannig kemur ríkisstj. fram gagnvart útvegsmönnum. Þannig er þetta, að ríkisstj. kemur hér fram fyrir okkur þm. svo ráðalaus, að við sjáum, að hún hefur gefizt upp.
Ég neita ekki, að þetta sé erfitt mál — því fer alls fjarri, og það er síður en svo, að það megi laga þetta með einu pennastriki. En ef ekki er hægt að leysa þennan vanda, þá er það auðsætt mál, að ekki er hægt að lifa á Íslandi. En öll þjóðin veit, að það er hægt. Í landinu er stór hópur manna, sem ekki vill, að breytingar verði gerðar til þess að úr rætist fyrir útveginum. Þessi hópur manna hefur það að atvinnu að eyða þeim gjaldeyri, sem útgerðin aflar, og hefur það verkefni að flytja inn vörur frá útlöndum. Vegna þessara manna vill ríkisstj. engar breytingar gera í bjargræðisáttina. Hæstv. ráðh. spurði, hvort gengið væri rétt að verki, ef fara ætti að svipta verzlunarstéttina þeim rétti, sem hún hefur. Ég veit, að það eru hópar manna, sem enga breytingu vilja gera á verzlunarmálunum, og eina till., sem þessir menn hafa fram að færa, er gengislækkun. Það væri úrlausn í bili, en eftir nokkra mánuði værum við komnir út í sama öngþveitið á nýjan leik. Þá hefur það nokkuð dregizt inn í umr., að nauðsynlegt væri að halda réttu gengi. En hvernig hefur gjaldeyrinum verið ráðstafað? Sjávarútvegsmenn afla hans, en honum er svo eytt af þeirri stétt manna, sem hefur innflutningsverzlunina með höndum, og ættu þeir að geta tekið einhvern hlut í því að standa straum af útgerðarkostnaðinum. Þó að gengið yrði fellt um helming, þá mundi fljótt fara í sama farveginn aftur, — framleiðslan mundi tapa, en hinir, sem eyða gjaldeyrinum, áhættulaust safna auði. Það er bókstaflega verið að reyna að hvolfa bátnum, er svo er um hnútana búið, að mestur gróði virðist vera af því að vinna ómerkilegustu störfin í þjóðfélaginu. Slíkt ástand mun haldast svo lengi sem slíkri sníkjustétt er haldið uppi með þeim hætti, sem verið hefur. Það er engin lausn að breyta genginu. Hennar er að leita annars staðar. ríkisstj. hefur nokkuð rætt um þetta, og ef af því yrði, væri það ekki til annars en að lækka lífskjör almennings. Ríkisstj. lét það í veðri vaka, að hún mundi vinna að því að lækka dýrtíðina í landinu, en það hefur nú heldur lítið verið að því unnið s.l. tvö ár. En hvaða ráð var það nú, sem hún taldi ráðlegast að framkvæma í því augnamiði? Jú, — lækka kaup launþeganna í landinu með því að stýfa kaupgjaldsvísitöluna niður í 300 stig. En hvað hefur þetta komið útveginum að miklu gagni? Engu — alls engu. Þessi launaskerðing hefur ekki komið útveginum að neinu haldi. Hann hefur ekkert munað um það. Nú, ef við tökum aðrar atvinnugreinar. Hvað hefur að segja varðandi festingu vísitölunnar? Jú, húsabyggingar hafa aldrei verið dýrari, en einmitt nú, og hús hafa aldrei verið í hærra verði, en einmitt s.l. ár. Nei, það er sama, hvernig hæstv. fjmrh. snýr sér og hæstv. ríkisstj., vandinn liggur í því, hvernig gjaldeyrismeðferðin er. Ég segi: Útvegurinn á að fá aðgang að þeim taumlausa gróða, sem innflutningsbraskararnir taka af innflutningsverzluninni. Ég veit, að heildsalarnir í Reykjavík munu snúast harðvítuglega gegn slíkum ráðstöfunum, því að þeir vilja halda gróða sínum óskertum, og munu reyna að beina málinu inn á aðrar brautir, sem ekki geta náð tilgangi sínum, að létta undir útgerðinni. Ég veit, að heildsalar og kaupmenn viðurkenna þessa staðreynd, að allar aðrar ráðstafanir munu renna út í sandinn og verða til einskis. Dýrtíðin mun halda áfram að vaxa, meðan þetta ástand helzt, að heildsölum og alls konar bröskurum líðst að leika með innfluttu vöruna með sama hætti og hingað til. Menn leika það að setja upp heildsölu, flytja inn vefnaðarvöru og taka þar stórsölugróða sinn, setja upp smásölu og bæta á smásöluálagningu, setja upp saumastofu og selja henni úr smásölunni og leggja svo að lokum framleiðsluprovisíon ofan á allt saman. Svona er gangur þessara mála, og er ekki að undra, þótt innflutta varan hækki í verði, þegar svona er farið að.
Hæstv. fjmrh. segir, að útgerðinni verði tryggður mikill gjaldeyrir, og spurði um leið, hvað ég hefði gert til að tryggja útgerðinni gjaldeyri, þegar ég fór með sjávarútvegsmálin. Já, það var út af hrognunum, að það varð að tryggja þeim mönnum verð, er vildu kaupa hrogn og salta þau. Ef ég hefði ekki stutt það, að hrognin kæmust í verð, hefði ekki annað legið fyrir, en að þeim hefði verið hent í sjóinn. Það hefði komið útgerðinni að litlu haldi. Ríkisstj. valdi þá, þá leið að tryggja útvegsmönnum ákveðið verð fyrir afurðir þeirra, en ég vil leyfa mér að benda hæstv. ráðh. á það, að þetta skref er hvergi nærri nægilegt, og er í rauninni engin lausn. Lausnin felst í því, að gróði innflutningsverzlunarinnar verði hagnýttur í þágu útgerðarinnar. Hér er lagt til, að útgerðinni verði gefinn 6 mánaða skuldaskilafrestur, en hvaða lausn er það á vandamálum útvegsins? Vitaskuld kæra innflytjendur sig ekkert um það, að hinn mikli gróði þeirra sé skertur. — Það er rétt hjá hæstv. fjmrh., að þessu verzlunarfyrirkomulagi hafi ekki verið komið á fyrir hans tilverknað. Þessu fyrirkomulagi var komið á haustið 1932 og 1934. En þá, sem stóðu að því að koma þessu verzlunarfyrirkomulagi á, hefur varla grunað, að þróunin mundi verða í þá átt, að þetta fyrirkomulag er að kalla öngþveiti yfir þjóðina. Hver sú ríkisstj., sem þarf að glíma við fjárhagsörðugleika þjóðarinnar, verður að gera sér það ljóst. En innflytjendur — stétt heildsalanna — hafa svo mikil ítök um afkomu fólksins, að þeir eru að sliga aðalatvinnuveg landsmanna. Svo eru þessir sömu menn að tala um frjálsa verzlun, um leið og þeir hrifsa gjaldeyrinn af útveginum, án þess að hann fái nokkuð í staðinn. Já, það er heldur hjákátlegt að heyra þessa karla vera að tala um frjálsa verzlun. En mér er óhætt að fullyrða, að það er margt óskyldara þjófnaði en þetta, sem talið er til þjófnaðar. Heildsalarnir vilja ekki sleppa þessum forréttindum. En ég hefði haldið, að það væri meiri nauðsyn, að skipunum verði gert fært að starfa. — Ef nú á að fara að veita lán út á sjóveð, sem ganga eiga fyrir öllum öðrum kröfum, fyrir parti af lánunum, þá er það aðeins til þess að koma slæmum truflunum á veiðarnar, og hætta er á, að ekki verði hægt að friða kreditorana, þegar fyrst er lánað út á sjóveð, einu trygginguna, sem útvegsmenn geta boðið, og svo eiga samningsbundin veð að koma á eftir. Þetta getur valdið því, að illmögulegt verður fyrir skipin að starfa. Það væri hentara að reyna að koma málum þannig fyrir, að bátarnir geti verið sem lengst úti. Ég veit um báta, sem fóru tvo túra með fisk sinn til Englands, og hafa forráðamenn þeirra sagt mér, að þeir hafi fengið mjög viðunandi útkomu af þeim ferðum. Ýmsir aðrir bátar hefðu getað farið svipað að, en þeir áttu þess ekki kost, sökum þess að rekstrarfé var ófáanlegt. Hæstv. ráðh. sagði, að núverandi stjórn hefði gert meira fyrir útveginn, en undanfarandi stjórnir, en hvað hefur hún gert til þess að lækka útlánsvexti bankanna til útvegsins, sem eru að sliga útgerðina? Ég sé nú ekki, að stjórnin hafi mikið gert til þess að létta þessu fargi af útveginum, en ég vil aftur á móti benda á, fyrrv. ríkisstj. til verðugs lofs, að henni tókst þrátt fyrir harða mótspyrnu landsbankavaldsins að þröngva niður vaxtafætinum, þegar l. um stofnlánadeildina voru samþ. hér á Alþingi, eða niður í 21/2%. Samkv. dýrtíðarfrv. í fyrra var gert ráð fyrir, að vextir lækkuðu úr 5,5–6% niður í 4%. Slíkar voru þær ráðstafanir. En ef framlenging á sér stað, fara vextirnir aftur í 6,5%. Bankarnir innleiddu þetta fyrirkomulag. Hins vegar vil ég benda hæstv. fjmrh. á það, að engin ríkisstj. hefur rýrt eins mikið tekjur almennings og núverandi ríkisstj. Fögur loforð án efnda og framkvæmda munu heldur aldrei koma útgerðinni á traustan og heilbrigðan grundvöll. Hæstv. ríkisstj. hefur tekið Marshall-lán til þess að reyna að koma sér út úr öngþveitinu, en hefur jafnframt reynt að skella skuldinni yfir á herðar verkalýðnum og fjargviðrazt mikið um, að kaup launþeganna sé of hátt. Nei, hæstv. stjórn á ekki að komast undan með slíkum útúrsnúningum. Það liggur skylda á herðum hæstv. ríkisstj. að leysa þessi mál, og mér virðist það vera tvennt hjá ráðherra, sem fyrir vakir með þessu frv., gjaldfrestur fyrir það fyrsta og lækkun vaxta, og fæ ég ekki annað séð, en að því sé sáralítil bót. Nei, því að það er nú orðið þannig búið um hnútana hjá útgerðinni í landinu, að hún getur ekki hreyft sig orðið. Útvegsmenn fá aðeins að senda skipin út á veiðar og láta þau leggja upp afla sinn, meðan hraðfrystihúsin segja ekki stopp. Jafnskjótt og bankarnir stöðva greiðslur sínar, er allt stopp. Fiskábyrgðarlögin eru með þessu gerð óvirk. Þegar útvegsmenn hafa lagt afla sinn á land, þá ráða þeir engu meira, en afurðasalan verður brask. Það má segja, að gott verð fáist fyrir fiskinn í Þýzkalandi núna, en hann er seldur langt undir meðalverði. Síldarlýsi er selt fyrir tveimur pundum minna verð tonnið til þess að fá markað fyrir ísfiskinn. Með þessu er verið að skerða hlut smábátaútvegsins, en það skyldi allra sízt taka það af honum. Útvegsmenn voru ekki of sterkir, þó að ríkisstj. fari ekki að gera þá að betlurum og beiningamönnum, en það gerir hún svo sannarlega, ef hún ætlar að fara að vera með þessar loddarakúnstir um lánið. Ég vil benda hæstv. ráðh. á að hraða ekki þessu máli um of eftir þessa umræðu og leggja það ekki fram fyrr en eftir helgi, en nota helgina til að ráðgast við útvegsmenn og athuga hvaða ráð tryggi þá bezt. Hann ætti að nota helgina til þess að athuga, hvort ekki væri önnur leið betri. Það þarf að setja fast ákveðið verð fyrir síldina, og það á ríkisstj. að gera en ekki verksmiðjurnar. Það er óforsvaranlegt, að útvegsmenn standi uppi varnarlausir gagnvart verksmiðjunum. Um þetta á ríkisstj. að taka ákvörðun. Þess vegna bendi ég hæstv. ráðh. á að taka meira tillit til útvegsmanna og athuga, hvort ekki sé önnur leið betri, en bíða fram á mánudag með að lögfesta þetta.