10.12.1948
Neðri deild: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1342 í B-deild Alþingistíðinda. (1674)

80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Það eru nú harla fáir mættir, og er e.t.v. ætlunin að halda fund með mér einum og hæstv. forseta. Að minnsta kosti er lítið af hæstv. ríkisstj. sjáanlegt. E.t.v. á að afgreiða málið svo, að venjulegur grundvöllur málsmeðferðar fáist eigi, og e.t.v. á að komast hjá umr. um málið. Fyrst og fremst er það tekið fyrir á aukafundi og síðan séð um, að enginn sé mættur í fundarbyrjun.

Ég hef gert aths. við frv., eins og það er nú, og hef bent á galla þess. Ég sýndi með dæmum, að frv. þetta væri gallagripur og stefndi vandamálum útvegsins í voða. Ég beindi og fsp. til hæstv. sjútvmrh., en hann svaraði henni engu. Ég bað um upplýsingar í málinu, en fékk þær ekki heldur. En eitt kom fram, sem er svo merkilegt, að ég vil undirstrika það, því að það sýnir, hversu unnið hefur verið að málinu, en það er það, að eina afsökunin fyrir því að veita gjaldfrest á öllum skuldum útvegsins fram á mitt næsta sumar, er sú, að til standi, eins og margar raddir hafa heyrzt um, að gera víðtækar ráðstafanir með allsherjar niðurfærslum á skuldunum og rétt sé því að festa nú þegar og láta núverandi skuldir bíða uppgjörs. Þetta er nú heldur en eigi uppbyggilegt. Sett eru ákvæði um, að skuldirnar eigi ekki að falla í eindaga fyrr en á næsta sumri, en tilkynnt er um leið, að til standi að strika útgerðarskuldirnar út í ríkum mæli. Hins vegar bólar lítið á slíkum aðgerðum á öðrum sviðum, þegar minnzt er á, að draga þurfi svolítið úr kostnaðinum við ríkisbáknið. Þá koma háværar raddir fram, svo að allt ætlar um koll að keyra, og þykir sjálfsagt að eyða og spenna til ríkisrekstrarins. Hitt er litið á sem eðlilegan hlut að setja félagssamtök umsvifalaust á höfuðið. Einn hæstv. ráðh. er nú í hv. d. Vegna þess að ég veit, að þessi hæstv. ráðh. hefur þótt standa framarlega í sínum flokki í sjávarútvegsmálum og hefur skrifað um félagssamtök útgerðarinnar og viljað greiða götu þeirra, þá vil ég spyrja hann að því sem stuðningsmann aðgerðanna, hvort hann hafi, þegar yfirlýstrar stefnu hans er gætt, þá verið orðinn þátttakandi í setningu þessara l. til að steypa fyrrgreindum samtökum á höfuðið. Það þarf eigi að villast um afleiðingarnar af því, þegar félagssamtök útgerðarinnar hafa komið sér upp fyrirtækjum, t.d. bátaslipp, síðan koma skyndileg lagaákvæði um, að bátarnir þurfi ekki að borga um tiltekinn tíma, en fyrirtækin sjálf hins vegar skylduð til að standa í skilum um rekstrarkostnað, bæði vinnulaun og efni. Verður ómögulegt að bjarga þessu við, ef byrjað hefur verið á annað borð. Ég spyr hæstv. ráðh., hvort hann er af frjálsum vilja með þessu. Eða hvernig er það með olíusamlög útgerðarmanna? Er það ætlunin að koma þeim á höfuðið, þegar þau eru rétt að byrja? Það er vitað mál, að án aðstoðar bankanna geta þau eigi staðizt. Eða hvernig fer með þau félög, sem kaupa eiga veiðarfæri til útgerðarinnar? Óar hæstv. ráðh. ekki við þessum afleiðingum? Ég veit um marga útgerðarbæi, þar sem þessi verzlun og stofnanir í þágu útvegsins eru reknar með takmörkuðu fjármagni og fá eigi nauðsynlegar greiðslur. Er ætlunin að frysta hina réttmætu eign þeirra og segja, að fyrirhuguð sé ein allsherjar niðurfærsla? En hver verður svo afleiðingin fyrir bátaútveginn sjálfan? Hver þorir að skipta við útvegsmenn, þegar vitað er um niðurskurð á þessum skuldum skv. frv., eiga yfirleitt nokkur skipti við þá? Hvert eiga útgerðarmenn að fara? Ég býst við, að allir mundu kippa að sér höndum — með þeim afleiðingum fyrir rekstur bátaútgerðarinnar, sem allir vita. Því verður eigi á móti mælt, að þetta ákvæði, er mælir fyrir um gjaldfrest varðandi allar vörur til útgerðarinnar, stefnir henni, ef framkvæma á það að öllu leyti, út í algert öngþveiti. Ég býst við, að reynt verði að halda því fram, að bankarnir muni veita svo rífleg lán, að bátarnir geti greitt olíuskuldir sínar, viðgerðarkostnað o. fl. og þurfi því eigi að grípa til ákvæða frv. En vegna þess að ég hef engar upplýsingar fengið, álykta ég af reynslunni, að bankarnir muni halda í rekstrarlánin og segja sem svo: Þið hafið heimild til að fá gjaldfrest á upphæðunum, og við veitum ykkur ekki lán. Og reynslan er sú með bankana, þó að þeir veiti svo sem 50 –70 þús. kr. lán, að þá heimta þeir háar tryggingar. Þeir hafa látið veðsetja sér 60% af aflanum. Þessa veðsetningu taka bankarnir þvert ofan í allar reglur og ganga með því freklega á hlut þeirra, er á bátunum eru. Þetta lánsfé er því tryggt í afla skipshafnarinnar, en vegna hrunsins á veiðunum hefur þessi trygging eigi hrokkið til. Um 50 þús. kr. voru veittar til vetrarvertíðarinnar. og bankinn hefur fengið mikið inn af þeirri upphæð. Ef upphæðirnar minnkuðu enn, þá er ekki hægt að búast við, að útgerðarmenn geti borgað skuldir útgerðarinnar, og er hún þar með bundin. — Mér hefur ekkert svar borizt um, hvernig málið er hugsað, þegar sagt er, að ríkið leysi til sin sjóveðskröfurnar í skipum. Það er augljóst mál, að skipshöfnin mun eigi geta haft sjóveðsrétt fyrr, en á eftir 1. sjóveðsrétti, þegar ríkissjóður hefur þessar kröfur. Ákvæðin munu verka svo, að menn munu dauðhræddir við að ráða sig á þau skip, sem sjóveðskröfur hvíla á. (Menntmrh.: Ekki, ef ríkið leysir þær til sín.) Það er vitanlegt mál, að kröfur skipshafnarinnar hljóta að koma næst á eftir þeim rétti. Kemur þetta því í bága við forgangsrétt skipverja, ef kaup er eigi greitt. Ég held líka eftir ummælum hæstv. ráðh., að líklegt sé, að þessum lánum verði breytt í algeran styrk, því sé þetta ákvæði óþarft og jafnvel til spillis eins. Hæstv. ráðh. ætti því að fella þetta ákvæði brott, sem er gagnslaust, en kemur sér illa fyrir bátana.

Þá er það eitt atriði enn, sem hefur ekki verið minnzt á, en dellur hafa staðið um, þær er stöðva kunna allan síldveiðireksturinn í vetur, en það er það, hvert verð eigi að vera á veiðinni. Álít ég, til þess að tryggt megi telja, að bátarnir geti haldið áfram, að þá beri nauðsyn til að auglýsa fast lágmarksverð á síld, og þarf að bæta við í frv. ákvæði um fast verð á síldinni. Og um þetta þarf ekki að halda áfram togstreitu. Sumarverðið á síld var s.l. vertíð bundið með l., og það hefur ævinlega verið gert áður í reyndinni af ráðh. Annað aflaverð er einnig bundið með l. Þar eð enn hagar svo til í vetur, þá er rétt að bæta þessu ákvæði við til að losa um bátaútgerðina. En nú getur hver einkaverksmiðja ákveðið verðið sjálf, og eigendur bátanna eru óánægðir með það oftsinnis. Er því eigi ástæða til annars en ákveða fast verð. Ég flyt því skrifl. till., að bætt verði við nýrri grein um þetta ákvæði, svo hljóðandi:

Á eftir 10. gr. komi ný gr. (11. gr.), svo hljóðandi: Ríkisstjórnin skal nú þegar auglýsa fast lágmarksverð á vetrarsíld, sem nemi 40 kr. fyrir hvert síldarmál (135 kg), miðað við afhendingu síldarinnar á Faxaflóahöfnum.

Ég veit, að verðlagsráð bátanna fór fram á 42 kr. á málið. En verksmiðjurnar vilja lægra verð, og ein þeirra hefur auglýst 35 kr. á málið, en það verð vilja útgerðarmenn með engu móti sætta sig við. Tel ég því eðlilegt, að verðið sé 40 kr., svo að allt lendi eigi í öngþveiti. Og þar eð eigi hefur náðst samkomulag um meginatriði rekstrarins, þá vil ég leggja fram þessa till. og mun afhenda hana hæstv. forseta. — Ég vil loks óska þess, að hæstv. ráðh. gefi upplýsingar um þessi atriði, er ég hef nefnt: um sjóveðskröfurnar og gjaldfrestinn, hvernig búast megi við þessu í framkvæmd varðandi bátaútvegsmenn, sem hljóta að verða hart úti.