10.12.1948
Neðri deild: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1344 í B-deild Alþingistíðinda. (1676)

80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég ætlaði nú ekki að tala við þessa umr. málsins, en úr því að hv. 2. þm. S–M. hefur gert mér þann greiða að varpa fram spurningum til mín, þá vil ég gera honum það til geðs að segja hér nokkur orð.

Það má segja um þá flokksbræður hv. þm., þingmenn Sósfl., að þeir hafa tileinkað sér eiginleika kamelljónsins og umhverfast allir í málflutningi sínum. Ekki reka þeir giftusamlega mál sitt hér, og er sumt svo fáránlegt, að slíkt hefur ekki heyrzt í langan tíma hér í þessum sölum. —- Ég ætla aðeins að svara því, er hv. þm. beindi til mín.

Þingmenn sósíalista eru óánægðir með það tvennt, að gjaldfrestur skuli veittur til útgerðarinnar og að einhverjir lánardrottnar útgerðarinnar slaki til. Út af þessu ætla þeir alveg að ærast, og 2. þm. S-M. telur það skyldu sína að hamast hér yfir því, að gjaldfrestur skuli vera veittur og lánardrottnar slaki til á skuldum, sem annars mundu tapaðar. — Með þessu er hins vegar gerð tilraun til að leysa málið, en ef farið yrði að vilja sósíalista, þá blasir ekkert við nema öngþveiti. En með því að fara þá leið, sem hér er valin, þá er ríkisstj. fengið nokkurt vald og getur hagrætt málinu svo, að útgerðin hafi þess sem mest not. Þetta hlýtur hver heilvita maður að koma auga á. En nú hefur það orðið hlutskipti 2. þm. S-M. að deila á menn fyrir að ganga í skrokk á útgerðarmönnum. — Hann talar um, að Landsbankinn eigi að borga töp útgerðarinnar, en svo er hann með írafár yfir því, ef aðrir aðilar kynnu að taka þátt í töpum hennar, og ætlar þá alveg að ærast.

Út af því, að samvinnufyrirtæki væru lánardrottnar, vil ég spyrja: Er hann alveg viss um, að úrslitin yrðu betri, ef öðruvísi væri að farið? Er hann alveg viss um, að þessir lánardrottnar væru fúsir að leggja 6 millj. fram. Og ætli útkoman yrði ekki verri, ef þannig væri farið að, heldur en eftir tillögum ríkisstj.? Ég held, að 2. þm. S-M. ætti að endurskoða afstöðu sína til þessa máls, áður en hann tekur endanlega ákvörðun.