10.12.1948
Neðri deild: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (1677)

80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Áki Jakobsson:

Það var svo að skilja á orðum hæstv. menntmrh., að þessi gjaldfrestur væri fyrsta skref til þess að reyna að bjarga útgerðinni, og mér skildist á orðum hans, að hann óskaði, að einmitt þeir menn, sem kröfu eiga á hendur henni, væru tilvaldir til þess að rétta hana við. — Ég verð að segja, að þetta er á allan máta mjög óheppilegt, því að þá lenda kvaðirnar á aðilum, sem eru alls ekki færir um þær, og óhyggilegt, að þeir geri það einir, en þeir, sem langsamlega mestar skyldur hafa að bera gagnvart útgerðarmönnunum, þeir sleppa alveg.

Þá er það sýnilegt af ræðu ráðh., að tillagan um innlausn sjóveða er fálm út í loftið. Það er sýnilegt, að þeir menn, sem að henni standa, eru ekki búnir að hugsa dæmið, og því til sönnunar eru orð menntmrh., þar sem hann sagði, að með þessu væri gerð tilraun til þess að leysa málið. Ég held að ríkisstj. ætti að gera tilraun til þess að skilja málið, en af ræðu ráðh. má vel sjá það, að hann skilur ekki málið.

Ég hef nú þrisvar sinnum spurt hæstv. fjmrh., hvers vegna stjórnin er að innleysa sjóveð? Ég hef ekkert svar fengið við þeirri spurningu og er þess fullviss, að hann veit það ekki sjálfur. Þeir hafa heyrt talað um sjóveð og finnst það sjálfsagt, að stjórnin hafi þá líka sjóveð. En þetta er hrópandi rangsleitni við útveginn, að stjórnin taki lögveð, og hrein misnotkun sjóveðsréttar að fara þessa braut. Hér er um alvarlegt mál að ræða. Það er verið að setja útveginn í klípu, sem erfitt verður að komast úr, er þeir eru að gera tilraun til þess að ráða við málið. En ég get fullvissað ríkisstj. um, að hér fer allt á annan veg, en hún ætlast fyrir um, og það er verið að gera málið erfiðara og margfalt erfiðara. Hæstv. menntmrh. ætti að vita að ýmis samvinnufélög útgerðarmanna standa uppi algerlega fjármagnslaus, þegar inneignir þeirra eru allt í einu frystar inni í hálft ár. Það getur sett þau alveg á höfuðið. Þessi greiðslufrestur er bjarnargreiði við útgerðina, og það ber vott um það hyldýpis öngþveiti, sem útgerðin er komin í, ef hún verður að taka við þessum gjaldfresti. — En sem sagt, þessi setning menntmrh., að með þessu sé gerð tilraun til þess að ráða við málið, lýsir vel allri stefnu stjórnarinnar og hvernig henni hefur farizt í flestum málum. Hún lagði hundrað milljón króna skatt á íbúana, lækkaði kaupið, ætlaði að lækka dýrtíðina í landinu, lækkar kaupvísitöluna og lögfestir í 300 stigum. Hún er búin að sökkva þessum 100 milljónum í hafið, en er alveg jafnlangt frá takmarkinu. Hún er að gera tilraun til að ráða við málið. Það á fólkið að sætta sig við.

Hæstv. fjmrh. hefur sneitt fram hjá þeim fyrirspurnum, sem ég hef borið fram bæði í gær og í dag um, hvers vegna halda beri í sjóveð. Ég hef heyrt, að þetta væri ráð til þess að fá Landsbankann til þess að taka að sér lánin. Fjmrh: sækir fast á að vita, hverjir eiga fé. Honum er sagt, að tryggingastofnunin geti ráðið við þetta. Hún vísar á Landsbankann og Landsbankinn aftur á Hverfisgötuna. — Því var hvíslað í eyra mér af stuðningsmanni stjórnarinnar, að sjóveðið væri töfrabragð á Landsbankann. Það getur verið rétt, en það er þá svo djúpt hugsað, að venjulegir menn geta ekki áttað sig á því. Þetta eru skrýtin vinnubrögð. Ég er ekki að álasa fjmrh., en mér finnst það furðulegt, að ríkisstj. skuli ekki koma saman og athuga lánshorfur bankanna og þörf útvegsins með tilliti til ástæðna bankanna. Ef sú leið ekki tekst, þá er að koma til þingsins, og þá ætti að vera möguleiki á að fá bankana til að veita lán. Það er vitanlega til mestu háðungar að vera með þessi hlaup fram og til baka, og eru ekki nein dæmi um slíkt fálm. (Fjmrh.: Hv. þm. gaf sjálfur út ávísanir á ríkissjóð, þegar hann var ráðherra). Ég gaf ekki út ávísanir nema þær, sem greiddar voru, 4 millj. kr. lánið útvegaði Pétur heitinn Magnússon. Hann var sjálfur á móti því, þegar það var til umræðu, en hann útvegaði það lán samt. — Þá talar fjmrh. um ósamræmi hjá mér, þar sem ég vilji nú fella niður ákvæðið um sannprófun, en ég vil benda á, að ég samdi ekki það ákvæði í l., og þingið fór sínar götur. (Fjmrh.: Var það ekki á ábyrgð ráðherra?) Ég viðurkenni það, að ég samþykkti það til þess að hraða því í gegnum þingið, — en það hafði verið þar í meðförum frá því í október og fram undir jól, — þar sem ég vildi ekki eiga frekari frest á hættu. En ekki yrði afstaða mín önnur, þó að þessi setning væri látin standa. — Ég beindi einnig þeirri spurningu til fjmrh., hvort hann sæi sér ekki fært að verða við þeirri eðlilegu kröfu um, að fulltrúi sósíalista taki sæti í þessari nefnd, og finnst mér ekki ósanngjarnt, að svo sé.

Hæstv. fjmrh. hefur látið í það skína, að hann sé að undirbúa almenn lög og hann hafi ákveðnar tillögur til ráðstöfunar útveginum, en ég vildi sérstaklega spyrja hann, hvort hann hyggist að setja ákveðið fast verð fyrir síldina og ákveðið fiskverð og ákveða fiskábyrgð fyrir næsta ár. — Annars er erfitt að standa í orðakasti við ráðh„ hann virðist vera okkur sammála, en er þó ekki. Þessi till. er engin lausn, varla skref og tæpast tilraun. Ég hef ekki komið auga á nema eina hugsun hjá ráðh., það er tvöfalt gengi, en það er engin lausn á gengi sjávarútvegsins, þó að gjaldfrestur fáist fram yfir síldarvertíð. Ef farið verður á þessa braut, þá verður haldið áfram að framlengja gjaldfrestinn að verulegu leyti. Ég vil þá loks spyrja hæstv. ráðh., hvort taka eigi tvöfalt gengi og hvort tillögur verði bornar í þá átt.