11.12.1948
Efri deild: 30. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í B-deild Alþingistíðinda. (1690)
80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna
Hannibal Valdimarsson:
Ég stóð ekki upp til þess að ræða málið. en vildi spyrja hæstv. forseta, hvort það sé ekki nokkuð fágæt málsmeðferð á Alþ. að taka fyrir mál til 2. umr., án þess að nokkurt nál. liggi fyrir, að maður ekki tali um, þegar um jafnstórt og þýðingarmikið mál og þetta er að ræða. Það kann að vera, að fyrir þessu finnist einhver fordæmi, en mér finnst slík málsmeðferð ákaflega einkennileg og óeðlileg og skil ekki, hvað vinnst með því að taka málið til 2. umr. nefndarálitslaust, þar sem það lítur þá út fyrir, að slík umr. verði alveg þýðingarlaus, hafi n. ekki lokið störfum.