14.12.1948
Efri deild: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (1697)
80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Það er alveg rétt, sem hv. frsm. sjútvn. segir, að þessar till., sem hér eru fram komnar, hafa verið ræddar við ríkisstj. af hálfu n., og eins og hann segir, þá getur ríkisstj. fallizt á brtt. á þskj. 205. Vil ég sérstaklega geta þess að því er snertir lögveðskröfur og sjóveðskröfur, sem kunna að myndast eftir gildistöku þessarar löggjafar, að þær hafa ávallt forgangsrétt fyrir hinum innleystu kröfum samkvæmt 2. gr., en það eru þær kröfur, sem hugsað er, að ríkissjóður leysi til sín með því fjármagni, sem um hefur verið talað, að yrði að ræða í þessu skyni. Þetta var alltaf hugsað þannig, þó að það sé sjálfsagt eins gott að segja það berum orðum. Þó segja þeir lögfræðiráðunautar, sem voru við samningana á þessu orðalagi, að það segi sig sjálft, og þess vegna var þetta ekki tekið beinum orðum fram. — Ég skal svo ekki fjölyrða um þessar brtt., en aðeins lýsa yfir, að þetta var alltaf tilgangurinn, eftir að brtt. komu inn í frv. í Nd.
Eins og kunnugt er, hefur málið tekið talsverðum stakkaskiptum frá því, sem ég lagði það upphaflega fyrir. Það verður svo jafnan, þegar farið er að leita eftir víðara verkahring en upphaflega var til stofnað, að till. manna ganga mjög í ýmsar áttir. Mín upphaflega hugmynd með þessu frv. var vitanlega smávaxin, en hún var einföld. Hún var sú að fara þá sömu leið í þessu efni og gert var 1945 og 1947 og veita þessa hjálp í sama formi. Aðeins hafði ég aðra fjárútvegunarleið í huga en þá, sem hér hefur verið farin. Það var sem sé tekið lán í bæði skiptin til þess að mæta kostnaðinum, en mér virtist ekki hægt að halda slíku áfram og því réttast að taka þetta sem rekstrarútgjöld. Nú var öllum ljóst, þegar fram í sótti, — það er langt síðan þetta frv. var smíðað, — að þetta var ekki sú hjálp, sem dygði til allra hluta. Það var mér ljóst. Þá var þó ekki búin að fara fram sú rannsókn á þessum atvinnuvegi, sem síðar hefur farið fram. En það, sem ég hafði í huga, var að losa af bátunum þau höft, sem venjulega eru talin þeim einna erfiðust, sem sé lögveðin og sjóveðin. Mér var ljóst um leið, að hér þurfti meiri aðgerða við, en kannske ekki alveg á sömu stund. Annað takmark, sem ég sá í mínum huga, var það að reyna að gera eitthvað til þess að kröfuhafarnir,í þessum tilfellum sjómenn, þyrftu ekki að bíða allt of lengi eftir þessari úrlausn. Maður veit, að í mörgum tilfellum er um réttláta kröfuhafa að ræða, og í öðrum tilfellum eru menn, sem maður getur vel skilið, að eigi erfitt með að fá ekki sitt sumarkaup. Þetta voru sem sagt tveir áfangar, sem ég upphaflega hafði fyrir augum. En inn í þetta, síðan málið kom fram, hefur blandazt meira af því almenna ástandi en manni virtist þá, að þyrfti að koma inn í þetta mál.
Þegar undirbúningur málsins fór fram, átti ég tal við bankana, og ekki aðeins ég, heldur aðrir menn, sem bæði fyrir ríkisstj. tilstilli og eins af áhuga vildu stuðla að því, að bankarnir snerust vel við í þessu efni. Áttum við því mjög ýtarlegt tal við þá, hvort þeir í fyrsta lagi vildu ekki taka út úr bátaflotanum þann hóp, sem þeir gætu á bankastarfsgrundvelli bjargað frá sjóveðum og lögveðum, án þess að stj. og þing þyrftu að því að koma. Þetta var það fyrsta, sem bankarnir voru beðnir um. í framhaldi af þessu voru þeir beðnir, þegar ríkisvaldið réðst í að leysa lögveðin og sjóveðin af einhverjum bátum, að hjálpa bátunum að öðru leyti með það þá fyrir augum, að þeir kæmu til rekstrar á næstu vertíð. Lengra eða hærra var ekki stefnt þá í bili.
Ég veit, að það klingir iðulega við hjá ýmsum, sérstaklega hjá mjög áhugasömum bátaútvegsmönnum, og það kom síðast fram í ræðu hv. frsm., að það eina, sem hjálpi í þessu efni, sé að skapa þessari starfsemi það, sem menn kalla heilbrigðan atvinnurekstur. Ég ætla, að það sé vísast að tala varlega um svona hluti, því að ég hef orðið var við, að orð, sem ég hef sagt í sambandi við heilbrigðan atvinnurekstur, hefur verið afflutt af einu stjórnarblaðinu á opinberum vettvangi. Ég tek undir, að æskilegast væri, ef hægt væri að koma atvinnuvegunum á heilbrigðan rekstrargrundvöll. Það getur verið, að ég sé þeim mun úrræðaminni eða lítilsigldari en aðrir, sem halda fram, að þetta megi gera, en ég fæ ekki séð, eins og allar aðstæður eru, dýrtíð, verðbólga og alls konar kröfur, að hægt sé með einni löggjöf eða jafnvel einu þingi að kippa því í lag. Það hefur þess vegna verið reynt að finna leiðir til að mæta þeim erfiðleikum, sem við blasa hverju sinni, og vísast er það rétt, sem hv. frsm. segir, að sumar þeirra hafa ýmsa vankanta. Hv. frsm. segir t.d., að bátarnir muni ekki fara af stað fyrir minna en 88 aura verð, enda þyrftu þeir þess. Hann reiknaði út, að það væru margar milljónir, sem þyrfti af hálfu þess opinbera til að standa undir slíku. Hefur hann þá fyrir augum óbreytt ástand í landinu að öðru leyti. Og það er einmitt þetta óbreytta ástand í landinu, sem er annar þröskuldurinn og hann svo stór, að ekki er hægt hann að yfirstíga. Hinn dragbíturinn er sá slóði af skuldum, sem þessi bátafloti dregur eftir sér vegna margra ára taps.
Nú er það svo, að þegar menn eiga annars vegar undir högg að sækja með að reyna að gera ráðstafanir til framdráttar einum eða öðrum atvinnuvegi og hins vegar verður að taka tillit til þeirrar löggjafar og starfsreglna, sem þær lánsstofnanir hafa, sem bæði almenningur og ríkisvaldið verður að snúa sér til í þessu efni, þá er ekki hægt að reka hnefann í borðið frá einni hlið og segja: Þetta viljum við hafa. Við viljum fá það, sem hér er stefnt að: aðstoð bankanna til að hjálpa bátaútvegsmönnum áfram með rekstrarlánum. Svo viljum við líka hafa þetta, að jafnvel þó að kröfur bankanna séu settar á langinn og í hættu, þá megi annarra manna kröfur hafa forgang. Það er þetta, sem ég treysti mér ekki til að ganga inn á, en það finnst mér felast í brtt. á þskj. 206.
Svo vil ég aðeins benda á, að það frv., sem ég flutti, var ákaflega einfalt, en er nú orðið mikið breytt, og einmitt breyt., sem menn settu inn í það, valda nú öllum deilunum. Og þá þykir mér illt, ef breyt. og deilurnar út af breyt. eiga að verða til þess, að þetta frv., sem ég hafði hugsað mér, að ætti aðallega að verða til að leysa höftin af bátunum og um leið hjálpa sjómönnum, sem eiga sínar kröfur, á nú að stöðvast, sem mér skildist á hv. frsm., að væri hans vilji, en ég vil ekki að óreyndu trúa, að d. vilji fallast á. Ég vil þvert á móti vona, að frv. nái næstu daga lögfestingu, helzt ekki síðar en á morgun, til að flýta fyrir því, að unnt verði fyrir bátaútveginn að gera skil til sinna manna. Það má della um þetta atriði, sem hv. þm. Barð., frsm., ræddi sérstaklega í sambandi við brtt. á þskj. 206, það má deila um það, og það sakar ekki. En það sakar þó, ef deilur verða um það, sem tefja þetta frv.
Hv. þm. fór réttmætum viðurkenningarorðum um starf bankanna í landinu og það, þó að mönnum þætti ekki alltaf blása sem byrlegast hjá þeim, þá yrði maður að viðurkenna, að bankarnir hefðu alltaf sínar reglur og l. að fara eftir. Ég er honum sammála í því. Hann sagði líka, að bankarnir hefðu látið bátaflotann fá það rekstrarfé, sem þeir hefðu þurft. Ég býst við, að þetta sé að mestu leyti rétt, því að allt meginféð til rekstrarins hafa bátarnir fengið hjá bönkunum, og ef það væri ekki, þá væri það ákaflega undarlegur áhugi, sem fyrst á hverri vertíð, ekki aðeins á haustin, heldur endranær hefur sýnt sig hjá bátaútvegsmönnum, sem hafa knúið fjarskalega fast á með það, að ríkisstj. stuðli að því, að bankarnir færu að veita rekstrarlán og þau heldur rífleg. Þetta sýnir líka út af fyrir sig, hvernig þessar peningastofnanir standa undir rekstrarlánunum, og til þess eru þær líka, enda er það ekki nema sjálfsagt, það er þeirra hlutverk, enda geri ég ráð fyrir, að langmestur hluti af skuldum bátanna sé hjá peningastofnunum.
Innsetning breyt. frá 1. júlí til 1. okt. er ekki ýkja þýðingarmikil, því að þessum l. eins og öðrum l. verður breytt, ef það kæmi í ljós, að þessi greiðslufrestur stæði því verulega fyrir þrifum, að bátarnir gætu búið sig út á síld, því að þá geri ég ráð fyrir, að hvaða stj. sem situr teldi sér skylt að aka þessu til eftir því, sem nauðsyn bæri til á hverjum tíma, og gefa þá út bráðabirgðal., ef brýn nauðsyn krefði. Þessi tiltölulega stutti greiðslufrestur er settur inn í frv. með það fyrir augum, að það sé tekið til þess strax að ná samningum fyrir bátana við hina ýmsu lánardrottna. Ef takmarkið er sett allt of langt fram á næsta ár, þá eru minni líkur fyrir því, að menn álíti þörf til að vinna ötullega að þessu máli. Annað eða verra held ég, að mönnum hafi ekki gengið til með þessari dagsetningu inn í frv. Hitt er algert aukaatriði, hvort fresturinn er settur nú til 1. okt. eða l. verður breytt, ef nauðsyn krefur síðar meir á árinu. Að sjálfsögðu má hafa það svipað um annað atriði, sem hv. þm. taldi, að mundi verða svo stór trafali á að koma bátunum út, en það er þessi flokkun kröfuhafanna í tvennt, eins og þar er gert ráð fyrir, en það sýnir sig bráðlega, hvort þetta atriði verður örlagaþrungið fyrir bátaflotann, en ég trúi ekki, að svo sé. Ég hef átt tal um það atriði við menn, sem eru þessum málum kunnugir, t.d. sem standa framarlega í stjórn Landssambandsins, og þeir segja, að það sé ekki orðið um að ræða báta, svo að nokkru nemi, sem geti lifað á lánstrausti Péturs og Páls til síns rekstrar. En vitaskuld getur verið um það að ræða, að bátar standi með einhverjar ógreiddar skuldir ýmist frá gömlum tímum eða þurfi að stofna til einhverra skulda nú, sem ekki eru í bönkum. Eini bankastjórinn, sem ég hef talað við um þetta mál, sagði við mig út af þessu atriði, að sér sé vel ljóst, að með tilliti til greiðslufrestsins yrðu tryggingalánin að vera rifari, en endranær. Þetta var í beinu sambandi við þær mótbárur, sem komið hafa fram í Nd. og eru svipaðs eðlis og þær, sem hafa valdið því, að tveir hv. þm. þessarar d. hafa borið fram brtt. á þskj. 206. Að þessu athuguðu finnst mér, að það geti ekki orðið neinn stór skaði, þó að ekki sé farið að rugla þessu gjaldfrestsatriði nú, með því líka, að enn mun vera almennt skilið svo, að ekki sé gengið í þessu efni á rétt neins frá lögfræðilegu sjónarmiði, heldur vil ég staðhæfa, að það sé aðeins skilið svo, að gjaldfresturinn sé aðeins „moratorium“, eins og það er nefnt. Hitt held ég sé ekki reglan og ekki samkvæmt réttri hugsun, að veittur sé greiðslufrestur þar sem einhverjir aðilar eru teknir út úr. Ég held það sé of mikið sagt hjá hv. frsm., þegar hann segir, að mönnum sé bannað að greiða nokkra skuld. En sé maður orðinn svo skuldugur, að hann eigi ekki fyrir skuldum, þá má fara varlega í að greiða einstakar skuldir, þegar búið er tekið til skipta, því að þá má segja, að einum eða öðrum aðila hafi verið veitt forréttindi. Ég vil því ekki taka undir það, að með þessu frv. sé bannað að greiða upp í lausaskuldir. En með því að greiðslufresturinn snertir allar skuldir, þá er stefnt nær því, sem menn hafa látið sér detta í hug, að útgerðin geti fengið nokkuð alhliða eftirgjafir á skuldum í sambandi við fyrirhugaða eftirgjöf ríkissjóðs á kreppulánunum frá 1945 og 1947 og þessu væntanlega láni, eða samtals um 15 millj. kr.
Ég ætla svo ekki að fara lengra út í þetta. Ég hef reynt að skýra afstöðu ríkisstj. og vil leggja sérstaka áherzlu á, að mér finnst ærinn tími til kominn, að Alþ. afgreiði þetta frv. með þeirri hjálp, sem í því er fólgin, því að hægara er að stiga skrefin smátt og smátt, en taka allt málið til einnar höfuðúrlausnar.