14.12.1948
Efri deild: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1372 í B-deild Alþingistíðinda. (1704)

80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Frsm. (Gísli Jónsson):

Vegna ummæla hv. þm. N-Þ., þar sem hann talaði um, að misskilningur væri, að bannað sé að greiða skuldirnar, — og þetta kom einnig fram í ræðu hæstv. fjmrh., — þá vil ég bara spyrja: Mega þá útgerðarmenn nota það fé, sem kostur er á að fá, ríflega til rekstrar fiskibátanna? Mega þeir þá nota það fé, er þeir fá frá bönkunum, til að greiða lausaskuldir sínar? Þrír hv. þm. hafa sagt, að það sé eigi lagt bann við því að greiða skuldirnar, þó að frv. verði samþ. svona. Mega þá útgerðarmenn taka rekstrarlán hjá bönkunum og byrja með því að nota hluta þess til að greiða þessar skuldir? Ef svo er, því er þá yfirleitt verið að hafa þennan gjaldfrest í frv.? Ef hægt er að nota t.d. viðbótina við lánin, má þá nota þessa viðbót til greiðslu á lausaskuldum? Þá get ég tekið brtt. aftur. En til hvers er þá verið að setja þetta í l.?