14.12.1948
Efri deild: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1373 í B-deild Alþingistíðinda. (1705)

80. mál, aðstoð til síldarútvegsmanna

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Ég vil segja hv. 6. landsk. það, að ég var að verða of seinn að mæta á mikilvægum fundi, og hvarf ég því úr salnum. En þar sem ég var þá búinn að reyna að svara hv. frsm., þá sá ég eigi lengur fært að þrjózkast við því að gegna fundarkallinu, þó að ég á hinn bóginn gjarnan hafi viljað heyra rök hv. þm. fyrir máli sínu. Nú, ég býst við, að hann hafi sömu rök fram að færa og hv. frsm. Hv. 6. landsk. lýsti því yfir og boðaði brtt., sem hefur nú fengið samþykki d., að upp megi bera, en hún er varðandi breyt. á skipun n. Ég er búinn að taka afstöðu til þessa máls í Nd., og rök hv. þm. hafa eigi sannfært mig um réttmæti breyt. Hv. þm. Barð. sagði, að ég hefði sagt, að hann vildi tefja málið. En ég sagði alls ekki, að hann vildi tefja fyrir. Hitt er annað mál, að hann kvað nauðsyn til bera að fresta málinu. (GJ: Ég skaut því nú svona til hæstv. ráðh.) Hv. þm. sagði, að ég hefði gefið tvenns konar yfirlýsingar um tilgang málsins. Þetta er ekki rétt, því að ég lýsti aðeins því, hver minn tilgangur væri með málinu, en síðan hafa spunnizt inn í það ýmsar breytingar, sem gera það miklu víðtækara en í upphafi var ætlað. — Ég sé ekki ástæðu til að ræða frekar um greiðsluskylduna eða greiðslubann, sem hér hefur verið þráttað um, ég sagði mína skoðun á því áðan og stend enn við, að það sé reginmunur á því, hvort gefinn er greiðslufrestur með lagaboði, og hinu, að ekki sé heimilt að greiða. Þm. Barð. beindi til mín fyrirspurn þess efnis, hvort heimilt væri að greiða skuldir með rekstrarlánum. Ég er nú ekki lögfróður, en venjulega munu rekstrarlánin vera nokkurs konar samningslán, og sýnist mér því, að það væri samkomulagsatriði við viðkomandi bankastjóra. — Ég ætla svo ekki að lengja umr. frekar. Hv. d. hefur málið nú prentað, og er það á valdi þm., hvort þeir senda málið til Nd. eða samþ. það óbreytt. Ég tel, að brtt. sjútvn. séu vel í mál takandi, en hins vegar get ég ekki fallizt á að greiða brtt. þm. Barð. og. 6. landsk. atkvæði mitt.