15.12.1948
Efri deild: 33. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1375 í B-deild Alþingistíðinda. (1716)

103. mál, bráðabirgðarfjárgreiðslur úr ríkissjóði 1949

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Ég get verið mjög stuttorður um þetta frv. Þar sem sýnilegt er, að fjárlög geta ekki orðið afgr. fyrir nýár, og bráðum komið að þinghléi, ef það verður, þá er nauðsynlegt, ef halda skal áfram löglegum fjárgreiðslum úr ríkissjóði, að fá til þess bráðabirgðaheimild frá Alþ. Ég vil því óska eftir því, að frv. verði að lokinni umr. vísað til fjhn. — Ég bið afsökunar. Frv. er flutt af fjhn. og þarf því ekki að fara til n. aftur.