15.12.1948
Efri deild: 35. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1379 í B-deild Alþingistíðinda. (1747)

104. mál, ráðstafanir vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég get ekki látið þetta mál fara út úr d. án þess að benda á, hvað óskaplega flaustursleg og óviðeigandi afgreiðsla þess er í alla staði. Hér er um að ræða að framlengja álag, sem búið er að breyta, t.d. er hér verið að samþ. 50% ofanálag á innlendar tollvörur, en nýlega er búið að samþ. 35%. Ef nokkur vinnubrögð væru á þessu, þá væru þessar breyt. felldar inn í l., sem verið er nú að breyta á ýmsa vegu. En til þess hefur hvorki verið hugsun eða vilji. Það er þýðingarlaust að samþ. þetta frv., það verður dauður bókstafur, því að öllum þeim ákvæðum, sem í frv. eru, er verið að breyta annars staðar á þessu þingi.