16.12.1948
Neðri deild: 38. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1379 í B-deild Alþingistíðinda. (1751)

104. mál, ráðstafanir vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Því er svo háttað með þetta mál og eins það, sem áður var afgreitt til 2. umr., (frv. til l. um bráðarbirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1949) að ekki er hægt að vera á móti þeim, en það, að þessi mál skuli þing eftir þing vera samþykkt svona á síðustu stundu, sýnir, hver óstjórn er orðin á fjármálum ríkisins. Frv. til fjárlaga er kastað fram fyrst í október, en síðan er ekkert gert, og ríkisstj. veit ekki, hvað hún ætlar að gera, og þingið bíður og nú er liðið að jólum. — Hér er um að ræða framlengingu á eldri heimild, og er frv. reyndar ákaflega óglöggt, en þó, eins og ég sagði áðan, er ómögulegt að vera á móti því, en ég get ekki látið hjá líða í sambandi við afgreiðslu þessa máls að láta í ljós óánægju mína um meðferð fjármálanna í heild.