16.12.1948
Efri deild: 39. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1391 í B-deild Alþingistíðinda. (1792)
102. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Menn hafa nú misskilið mig að því leyti, að ég ætlaði a.m.k. ekki að segja, að Danir hafi ekki viðurkennt sambandsslitin, því að þau hafa þeir viðurkennt, sem glögglega kemur fram í því, að þeir hafa útnefnt tvo sendiherra til hins íslenzka lýðveldisforseta, hvern á fætur öðrum, og auk þess tekið á móti fulltrúa íslenzka lýðveldisins í opinberri heimsókn til lands síns og ekki á nokkurn hátt seilzt til afskipta af málefnum Íslands, sem þeir áttu að fara með samkvæmt sambandslögunum, eins og utanríkismálum, og eins látið sér vel líka, að Danir hefðu ekki jafnrétti við Íslendinga hér á landi lengur samkvæmt sambandslögunum,. nema eftir þeim reglum, sem Íslendingar voru að mestu búnir að setja áður, en kynnu að öðru leyti að hafa komið sér saman um í sambandi við þessa samninga. Þeir hafa því bæði í orði og verki viðurkennt sambandsslitin, á því er ekki vafi. Af einhverjum ástæðum, mér óskiljanlegum, hafa þeir hins vegar enn þá formlega sambandslögin í gildi hjá sér sem dönsk lög, eða það ætla ég, að sé rétt, og mér skýzt þá illa, ef þetta er ekki svo. Þessi lög eru einungis sem lög í þeirra landi. Og það verkar þá einkanlega varðandi réttindi Íslendinga þar, og nær eingöngu eins og sakir standa. Og viðkomandi því, sem vikið var að, hvort það geti verið hættulegt, þá held ég, að það geti ekki verið það, vegna þess, sem ég hef greint, og einnig hins, að menn eru búnir að koma sér saman um, hvað eigi að koma í staðinn, þó að ekki hafi endanlega verið formlega gengið frá því, af því að við höfum ekki sérstaklega gengið eftir því, að þessum samningum lyki. Það hefði sjálfsagt verið hægt fyrir rúmu ári að ganga endanlega frá þessu. En við vildum doka við, sumpart af því, að við vildum athuga það, og sumpart vegna þess, að það sýndist dálítið hæpið, ef það er vilji þingsins að gera einhverjar réttárkröfur viðvíkjandi Grænlandi, án þess að gera einhvern fyrirvara um það. Nú hefur það aldrei verið ákveðið ætlunin að gera þessar kröfur, og hefur aldrei komið fram fyrr en í þeirri þáltill., sem hv. þm. Borgf. hefur verið með. En ef það kynni að vera einhver hugsanlegur möguleiki til þess, að þessar kröfur yrðu af okkur teknar upp, mundum við veikja mjög okkar aðstöðu í því efni, ef við gengjum endanlega frá sambandsslitunum, án þess að hreyfa þessu Grænlandsmáli. Þess vegna hef ég talið óráðlegt af okkar hálfu að vera að ýta á eftir þessum samningum á þessu stigi. Og ég held, að við getum ekki glatað neinum rétti, þó að um þetta verði dokað við, sem ég nefndi, vegna þess að Danir hafa í einu og öllu viðurkennt sambandsslitin, nema varðandi þetta, sem þeir nánast gera sér til gamans, að láta sambandslögin enn þá vera í gildi sem dönsk lög, sem að ég hygg eru leifar af þeirri gremju, sem var hjá þeim á vissu tímabili, þegar þessum málum var ráðið til lykta hér hjá okkur, án þess að við þá væri talað. Varðandi heiti Danakonungs, þá man ég ekki betur en Friðrik IX. hafi sleppt Íslandi úr konungsheiti sínu. Kristján X. mun hafa haldið því í heiti sínu, meðan hann lifði, en hans sonur og eftirmaður sleppti Íslandi úr konungsheiti sínu. Annars skiptir þetta sáralitlu máli. Konungur Dana hefur enn þá mörg lönd í heiti sínu, sem ekki hafa tilheyrt hans yfirráðum öldum saman. Þetta er líkt eins og menn hafa gaman af að ganga með orður, að konungurinn hefur gaman af að skreyta sig með landanöfnum, sem tilheyra aðeins fortíðinni gagnvart hans yfirráðum. Hvort tveggja þetta er meinlaust gaman og ekki til þess beinlínis að setja út á, en tiltölulega þýðingarlítið. Þetta er nú konunglegur siður og eitt af því, sem maður á erfitt með að skilja til hlítar.
En varðandi fyrirspurn, sem fram kom um það, hvort ekki mætti ljúka þeim samningum, sem eftir er að ganga frá við Dani út af sambandsslitunum, án þess að gera um leið út um það atriði, sem leiðir af sambandsslitunum og taka þarf afstöðu til, sem er réttur Færeyinga hér, þá er auðvitað hægt að veita Færeyingum á eftir þennan rétt, þó að fyrst gert sé út um hitt, það er rétt. En það er gefinn hlutur, að Danir mundu í sambandi við þessa samninga sækja nokkuð fast eftir viðurkenningu á þessum réttindum Færeyinga um nokkurt árabil og ekki aðeins fyrir eitt ár. Og ég hafði talið, að einmitt í sambandi við það að líta á óskir þeirra yrði óhjákvæmilegt að gera tilraun um að fá einhver réttindi fyrir Íslendinga við Grænland. Ég hef ekki mikla trú á því, að það takist. En óverjanlegt er annað en að gera þá tilraun af Íslendinga hálfu. Og ég á erfitt með að átta mig á, hvernig hægt mundi vera að gera það svo að, að gagni gæti orðið, meðan við erum með þá hugmynd um að gera kannske enn frekari kröfur til Grænlands. Ég hygg þess vegna, að það mundi vera erfitt að koma því fram að gera formlega út um það atriði, um réttindi Færeyinga við Ísland, án þess að þetta meira eða minna blandaðist þar inn í. Þess vegna álít ég réttara, að réttarkröfur okkar til Grænlands lægju ljósar fyrir, en þær gera í dag, áður en þessum samningum er lokið. Ef Danir vilja pressa okkur til þess að ljúka þessum samningum, eigum við erfitt með annað að gera, en að ganga að því að ljúka samningunum. En mér virðist ekki vera beinlínis ástæða fyrir okkur til að hraða því að ljúka þessum samningum, af þeim ástæðum, sem ég hef greint.
Hv. þm. Barð. spurði mig svo um bætur fyrir miska gerðan Íslendingum í Danmörku í stríðslokin. Það efni er nú þessu máli, sem hér liggur fyrir, óskylt, og er auðvitað ekki hægt að taka það upp í sambandi við þessa formlegu. samninga út af sambandsslitunum. Hitt verð ég að segja sem mína skoðun og hef sagt áður við einstaka aðila, sem til mín hafa leitað, um sum af þessum málum a.m.k., að bezt teldi ég að erfa sem minnst að hægt er í þeim málum. Og í því eina tilfelli, þar sem leitað var nú til mín um bótakröfur á hendur danska ríkinu fyrir fangelsun, sem íslenzkur maður þoldi í Danmörku á stríðstímanum, þá taldi ég málið allt svo hæpið, að ég taldi ekki geta komið til mála, að ríkisstjórn Íslands skipti sér af því á þá lund að taka upp málið gagnvart danska ríkinu. Ég átti þátt í því, að sá maður var losaður úr fangelsi. En mér duldist ekki, að maðurinn hafði verið dæmdur með formlegum dómi í Danmörku. Ég skal ekkert segja meira um það mál hér, en ég hafði ekki trú á því, að það yrði þessum manni til vinnings eða Íslandi til sæmdar að hreyfa málinu frekar. En maðurinn mátti kalla sig góðan að sleppa úr því fangelsi, sem hann var í, og bezt teldi ég að erfa sem minnst í þeim efnum. — Hitt er svo annað mál, þar sem um það var að ræða, að íslenzkir menn voru þar vegnir. Gagnvart öðru tilfellinu er það svo, að aðstandendur mannsins eru í Danmörku, að því er ég bezt veit, og hafa ekki um þetta mér vitanlega leitað aðstoðar íslenzkra stjórnarvalda. Enda mun nú sannleikurinn vera sá, að þó að sú fjölskylda hafi að ýmsu leyti verið illa leikin, þá var þó linaður dómur, að menn töldu, á einum fjölskyldumeðlimnum vegna þeirra hörmunga, sem yfir fjölskylduna höfðu dunið. Og sannleikurinn er sá, að erfitt hefur verið að tala um þau mál af skynsemi í Danmörku og erfitt að komast að rótum þeirra. — Varðandi hitt tilfellið, sem hv. þm. Barð. er því miður allt of kunnugt um og alla okkur tekur sárt, er á það að líta, að það hefur verið fyrir þennan vegna mann, sem féll fyrir morðingjahendi, verið greiddur styrkur úr ríkissjóði fram á þennan dag. En nú er einhver tregða um þessa yfirfærslu. En ég sé ekki ástæðu til að afturkalla þann lífeyri, sem ekkjan hefur haft. Og ég hef talið, að á meðan sá lífeyrir er tekinn af aðila, þá væri ekki grundvöllur fyrir frekari aðgerðir í þessu efni. Þetta er mjög viðkvæmt mál, ekki sízt þegar manni blandast ekki hugur um, að að vissu leyti á sér stað ofnæmi í þessum málum. Danir lita ekki á þessi mál með því hlutleysi og dómgreind, sem sú mjög menntaða og ágæta þjóð að öðru leyti gerir í flestum málum, og það er vegna þess, að þetta er of samtvinnað hennar hörmungasögu, og hún á þess vegna erfitt með að gera sér fulla grein fyrir því hlutlaust, hvað gerzt hefur í þessum efnum. Ég segi þetta ekki Dönum á neinn hátt til óvirðingar, heldur sem skýringu á þeim fyrirbrigðum, sem þar hafa gerzt, m.a. í sambandi við þessi mál, sem hv. þm. Barð. drap á. Og varðandi góða framtíðarsambúð við Dani, sem ég vil vinna að — þó að ég hafi jafneindregið verið með skilnaði við þá á sínum tíma — þá hef ég talið, að varlega bæri að fara gagnvart Dönum í þessum þeim mjög svo viðkvæmu málum, meðan þeirra sár eru að gróa, svo að ekki yrði fjandskapur úr — en við mundum þó e.t.v. engu fá framgengt — og þá ýfðust sár Dana svo, að þeim yrði erfiðara að komast í rétt hugarfar gagnvart Íslendingum og komast yfir þær meinsemdir, sem stríðslokin höfðu í för með sér fyrir þjóðlíf þeirra sjálfra.