16.12.1948
Efri deild: 39. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1393 í B-deild Alþingistíðinda. (1793)
102. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þessar upplýsingar. Ég ætlaðist ekki til þess, að máli því, sem hann síðast ræddi, væri blandað í þetta mál, sem fyrir liggur, þó að ég gerði þessa fyrirspurn. Skal ég ekki ræða það frekar. Það gefst e.t.v. tækifæri á öðrum vettvangi til þess að gera út um það í sambandi við gögn, sem fram hafa komið um þessi mál yfirleitt, og skal ég ekki frekar blanda því í þessar umr.