16.12.1948
Efri deild: 39. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1394 í B-deild Alþingistíðinda. (1794)
102. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég hygg, að flestum hv. þm. muni vera það næsta óljóst, hvað hefur gerzt frá því á árinu 1944 og fram til þessa í samningamálum milli Íslands og Danmerkur út af sambandsslitunum. Ég minnist þess ekki, að nokkur opinber skýrsla hafi komið fram um málið. Ég held, að rétt sé, að Alþ. hafi ekki átt þess kost að fá yfirlit yfir þessi samningamál. Ég hef hins vegar eitthvert hugboð um það, að samninganefnd muni vera starfandi af Íslands hálfu, en svo fróður er ég ekki, að ég viti, hverjir Íslendingar skipa þessa samninganefnd, og því síður veit ég, hvort þeir hafa starfað á fleiri eða færri samningafundum. Ég veit eiginlega ekki heldur, hvort Danir hafa gengið til slíkra samninga og tilnefnt menn af sinni hálfu til þeirrar samningagerðar, svo að fyllileg viðurkenning sé af þeirra hendi um það, að hér sé fyrir hendi milliríkjasamningagrundvöllur. Aftur á móti er mér kunnugt, að Danir hafa sérstaka nefnd í handritamálinu, og virðast þeir vilja taka það mál til úrlausnar af sinni hendi án sambands við önnur þau mál, sem snerta sambandsslit milli Íslands og Danmerkur. Og þykir mér líklegt, að það sé heppilegra, að fjallað sé um þau mál út af fyrir sig, heldur en í sambandi við önnur mál þeirrar þjóðar.
Það er rétt, að hæstv. ráðh. orðaði það svo, sem hann upplýsti um sambandslögin, að Danir teldu sambandslögin enn þá formlega í gildi, og er þá spurningin, hvort þeir telja þau að öllu leyti í gildi eða aðeins að nokkru leyti fallin úr gildi. Og mér er, eins og um fleiri atriði, alveg óljóst, hvaða atriði þeirra laga þeir þá telja í gildi. Ýmis höfuðatriði þeirra laga þykist ég vita, að þeir telji ekki lengur í gildi. En viðvíkjandi því, sem ég sagði áðan, mundi ég telja mjög óviðkunnanlegt, ef Íslendingar hafa frá árinu 1944 og fram til þessa dags notfært sér ýmis réttindi, sem íslenzkum þegnum bar eftir sambandslögunum, ef Íslendingar notfæra sér þau fríðindi enn þá þrátt fyrir sambandsslitin. Ég get vel skilið, að Danir telji sér skylt að veita Íslendingum jafnrétti, t.d. um styrkveitingar úr dönskum sjóðum, þegar Íslendingar eru þar í landi við nám, ef þeir líta þannig á, að sambandslögin séu í gildi. En óviðkunnanlegt virðist mér, ef Íslendingar notfæra sér þennan rétt enn þá á þessum grundvelli. Vafalaust lita Danir svo á, að réttindi og skyldur samkvæmt sambandslögunum séu jafnt í gildi, og vilja þá sennilega fá fullnægt sömu kröfum eftir sömu lögum á hendur Íslendingum, þegar Íslendingar vilja notfæra sér réttindi samkvæmt þeim.
Hér var um það spurt, hvort Ísland væri ennþá í heiti konungs Dana, og lét hæstv. utanrrh. það í ljós, að svo mundi ekki vera nú, og ég hygg, að það sé rétt. En ef það væri, þá væri það ámóta skraut í konungstitlinum eins og hin danska kóróna er enn þá sem skraut yfir íslenzka dómsm.- og utanrrh. hér í þessari hv. deild.