07.12.1948
Neðri deild: 28. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1417 í B-deild Alþingistíðinda. (1818)

83. mál, almannatryggingar

Frsm. (Helgi Jónasson):

Herra forseti. Það er rétt, sem hv. þm. V-Húnv. sagði, að ég gaf vilyrði fyrir því, að við 2. umr. mundu liggja fyrir nánari upplýsingar um það, sem hann talaði um. En ég bjóst ekki við því í gær, að þetta mál yrði tekið á dagskrá í dag. En ég vissi, að fundur yrði í tryggingaráði á miðvikudag, og mun hann væntanlega ganga frá þessu. Það er búið að senda gæzlustjóra Tryggingastofnunarinnar tilmæli um það að leyfa lækkun á iðgjöldum um 25% að meðaltali. Um sjómannatrygginguna er ekki búið að taka að þessu leyti ákvörðun enn þá. En það verður sennilega tekið fyrir á fundi í tryggingaráði á morgun. Og hef ég ekki meira að segja um þetta að svo komnu máli.