15.12.1948
Efri deild: 33. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1418 í B-deild Alþingistíðinda. (1827)
83. mál, almannatryggingar
Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Á síðasta þingi var breytt lögum um almannatryggingar, og með þeim lögum frestað framkvæmd III. kafla þeirra laga, um sjúkratryggingu og heilsugæzu. Þetta frv. er í meginatriðum sama eðlis og frv. í fyrra, um frestun á III. kafla laganna. Þessi frestun stafar meðal annars af því, að ekki náðist samkomulag við læknana, og ýmsu öðru, t.d. á skorti á undirbúningi á sjúkrahúsunum o.fl. Er því nauðsynlegt að fresta framkvæmd laganna um 1 ár, þar til frekari undirbúningur hefur farið fram. — Þetta er nokkru ýtarlegra í frv. en þeim l., sem nú eru í gildi. — 1, tölul. 1. gr. er óbreyttur frá því, sem var, svo og 2. liður, en í 2. lið er lagt til, að heimild sú, sem Tryggingastofnun ríkisins var veitt í 2. lið 1. gr. viðaukal. frá 1947, verði framlengd til ársloka 1949. — Á 3. lið voru gerðar nokkrar breyt. Gert er ráð fyrir, að hann verði framlengdur til ársloka 1949, en jafnframt rýmkaður svo, að lagt er til, að styrkja megi sjúkrasamlög, sem verða fyrir óvenjulegum kostnaði vegna læknisvitjana og sjúkraflutninga og starfa í héruðum, þar sem ekki eru læknisvitjanasjóðir. Þetta er frávik frá gildandi lögum. — 4. tölulið er nokkuð breytt frá því, sem nú er, og er Tryggingastofnuninni nú heimilað að greiða giftum konum, þó að þær vinni ekki utan heimilis síns, sjúkrabætur samkv. 92. gr. gildandi laga, en það er aðeins, ef nauðsyn krefur að dómi læknis. En hér er full heimild til að greiða sjúkrabætur, sbr. 92. gr. — 5. liður fjallar um, að iðgjöld atvinnurekenda á II. verðlagssvæði skuli á árinu 1949 vera 25% lægri, en gr. ákveður. Og er þetta framlenging á gildandi lögum. — 6. liður fjallar um það, að Tryggingastofnun ríkisins skuli vera heimilt að fella niður iðgjöld þeirra atvinnurekenda, sem hætt hafa atvinnurekstri á árinu 1948, allt að þeirri upphæð, sem hlutaðeigandi greiddi í slysatryggingariðgjöld fyrir árið 1946 samkv. H. kafla laga nr. 104 frá 1943. Þetta er nýtt ákvæði, sem er sett hér inn og talið nauðsynlegt vegna fenginnar reynslu. Iðgjöld atvinnurekenda 1947 voru miðuð við fjölda vinnuvikna 1946, og er jafnan miðað við árið á undan. En þeir, sem hættu atvinnurekstri 1948, eiga að greiða slysaiðgjöld 1949. Það þykir því rétt að heimila Tryggingastofnuninni að fella niður þessi iðgjöld allt að því, sem hlutaðeigandi greiddi í slysatryggingaiðgjöld 1946. — 7., 8., 9., 10.. 11. og 12. liður eru framlengdir. Þó vil ég geta þess með 8. lið, að 1949 er gert ráð fyrir að innheimta iðgjöld með vísitölu 310 stig, og kemur það til af því, að Tryggingastofnunin hefur ákveðið að greiða ellilaun og örorkubætur með 315 stiga vísitölu, þó að aðrar launagreiðslur séu bundnar við 300 stig. Kemur þetta til af því, að þetta eru álitnar lágmarkstekjur til að lifa af fyrir þá, sem ekki hafa aðrar tekjur til að framfleyta lífinu á. Þykir því ekki rétt að skerða þetta, og er því lagt til, að þetta ákvæði gildi 1 ár enn. — 13. liður er um, að sjúkrasamlagsiðgjöld og iðgjöld samkvæmt almannatryggingalögunum vegna lögskráðra sjómanna og bifreiðastjóra skuli hvíla sem lögveð á hlutaðeigandi skipum og bifreiðum og skuli ganga fyrir öllum veðum nema lögveðum til ríkissjóðs, hið sama gildir um iðgjöld vegna byggingar húsa og annarra mannvirkja. Þetta er hið sama og er í núgildandi lögum, en fellur niður um áramót, ef það er ekki tekið upp aftur. — 14. liður fjallar um það, að heildarendurskoðun laganna verði hraðað svo, að niðurstöður hennar verði afgreiddar til ríkisstj. fyrir 1. okt. 1949. N. var þeirrar skoðunar, að sjálfsagt væri að setja inn í lögin nú, að endurskoðun þeirra verði lokið fyrir 1. okt., svo að unnt verði að lögfesta þær breyt., sem gerðar verða á l., áður en bráðabirgðalögin ganga úr gildi. — Tveir þm., ég og hv. 1. þm. N–M., vildu gera víðtækar breyt. á l. nú í stað þess að framlengja fyrri ákvæði, en féllum frá þeirri kröfu með því skilyrði, að endurskoðunin væri bundin við 1 okt., og var fallizt á það af Tryggingastofnuninni. — Málið var rætt í sameiningu af heilbr.- og félmn. Ed. og Nd. áður en það var borið fram í Nd., en ekki náðist fullt samkomulag milli allra nefndarmanna, og samþ. meiri hl. að fylgja því óbreyttu, en minni hl., hv. 4. landsk., gat ekki fallizt á þetta og skilaði séráliti á þskj. 215 og leggur til að frv. verði fellt. Meiri hl. leggur hins vegar til, að frv. verði samþ. án nokkurra breytinga.